Selfoss - 11.04.2013, Blaðsíða 12

Selfoss - 11.04.2013, Blaðsíða 12
11. apríl 201312 VORIÐ ER KOMIÐ Laugavegur 58 S. 551 4884 still@stillfashion.is stillfashion.is ERNA Skipholti 3 - Sími: 552 0775 www.erna. is Skipholti 3 - Sími: 552 0775 - www.erna.isERNA GULL- OG SILFURSMIÐJA Fyrir orrustuna um Milvian brú yfir Tíberfljót, 28. október 312 fyrir réttum 1700 árum, sá Konstantín mikli teikn krossins á himni og orðin “in hoc signo vinces” “Undir þessu tákni muntu sigra”. Árið 313 er Konstantín var orðinn keisari veitti hann kristnum mönnum trúfrelsi eftir langvarandi ofsóknir. Menin eru smíðuð á Íslandi eftir hugmynd Dr Gunnars Jónssonar og fást silfurhúðuð á 3.500,- úr silfri: 5.900,- (með demanti: 11.500,-) og úr 14k gulli á 49.500,- (með demanti: 55.000,-). IN HOC SIGNO VINCES (Undir þessu tákni muntu sigra) Þegar ég frétti að dóttir mín og tengdasonur í Hollandi höfðu haft páskamatinn með líbönskum blæ fékk ég þau til að senda mér uppskriftir og myndir. Nú fer að styttast í að hægt verði að grilla úti og þá er alveg tilvalið að skoða mat frá þessum slóðum. Líbanskur matur hefur verið mjög vinsæll á vesturlöndum og margir farið á frábæra líbanska matreiðslu- staði í stórborgum erlendis. Þeir spruttu víða upp eftir að líbanskir matreiðslumenn urðu eins og aðr- ir að flýja stríðsátök í landinu og koma sér fyrir í öðrum löndum. Ég læt Evu Maríu dóttur minni eftir að segja frá: Í staðinn fyrir hefðbundna ís- lenska páskalambið með brúnuðum kartöflum og sósu var ákveðið að hafa páskamatinn undir áhrifum frá Líbanon, enda er matargerðin þar mun líkari matargerðinni á sögu- slóðum biblíunnar en matargerð á Íslandi. Maturinn samanstóð af grill- uðum lambakótelettum, taboulleh, heimatilbúnu hummus og brauði (gott er að nota t.d. pítubrauð). Kóteletturnar voru smurðar með kryddmauki sem heitir Spicy Lemon Tagine Paste frá Al’Fez fyrirtækinu og síðan grillaðar á grillpönnu. Nú er ekki víst að þetta tiltekna krydd- mauk sé til á Selfossi en þá er hægt að nota allskonar norður-afrísk eða arabísk kryddmauk í stað þess eða náttúrulega búa til sitt eigið. Best er auðvitað að grilla kóteletturnar úti á grilli en þegar veðrið býður ekki upp á það er vel hægt að nota grillpönnu. Herlegheitin voru borin fram á beði af ferskum kryddjurtum og sítrónu. Taboulleh er kryddjurtasalat sem er mjög vinsælt í öllum Arabalönd- um. Í þessari uppskrift er eftirfar- andi: 2 stór búnt af flatlaufa steinselju ½ búnt af ferskri myntu 1 rauðlaukur 2 tómatar Safi úr 2 sítrónum 1 bolli af soðnu couscous Salt og pipar Ólívuolía eftir smekk Aðferð: Grænmeti og kryddjurtir saxað smátt. Það er hægt að nota mat- vinnsluvél en þá þarf að passa að hráefnið verði ekki að mauki. Grænmeti, kryddjurtum, couscous, sítrónusafa, salti og pipar blandað saman og sett í skál. Að lokum er ólívuolíu “drisslað” yfir eftir smekk. Tekið skal fram að þetta er ansi stór uppskrift og því má auðveldlega helminga hana. Annars er mjög gott í hádeginu daginn eftir að blanda af- gangnum saman við meira couscous og skella smá fetaosti yfir. Hummus er líka klassískt meðlæti á þessum slóðum og hægt er að nota hvort sem er tilbúið eða heimagert. Til eru ótal uppskriftir af hummus en hér er ein góð: 1 dós kjúklingabaunir (400 gr.) ½ dl. Tahini ½ dl. sítrónusafi 2 msk. ólívuolía 1 pressað hvítlauksrif 1 tsk. salt ½ tsk. cummin Aðferð: Sigtið og skolið kjúklingabaunirnar. Síðan er allt maukað saman í mat- vinnsluvél og vatni bætt við þar til fallegri áferð er náð. Þegar hummus- ið er borið fram er fallegt að setja það í skál, sáldra paprikudufti yfir og góðum slatta af ólívuolíu. Ég þakka þeim í Hollandi fyrir skemmtilegt innlegg í eldhúsið mitt. Verði ykkur að góðu. Að hætti hússins PÁSKAMATUR í Hollandi Kristjana Sigmundsdóttir kristjanasig@simnet.is Arctic Trucks | Kletthálsi 3 | 110 Reykjavík | Sími 540 4900 | www.arctictrucks.is Vönduð amerísk heilsársdekk - stærðir 31- 44 tommur - slitsterk - neglanleg - má míkróskera - frábært veggrip Gott verð! fyrir flestar stærðir jeppa og jepplinga Við eigum dekkin undir bílinn þinn og bjóðum upp á alla dekkjaþjónustu. Þú kemur þér notalega fyrir með kaffibolla meðan þú bíður. Bjóðum einnig ástandsskoðanir, smurþjónustu og almenna viðgerðarþjónustu. Skjót og góð þjónusta! 38x15,5R15 38 tommu dekk sem er sérstaklega hannað fyrir íslenskar aðstæður. - slitsterkt - endingargott - hljóðlátt - míkróskorið - neglanlegt Dekkja- verkstæði á staðnum. Bjóðum alla almenna dekkja- þjónustu. SELFOSS-SUÐURLAND Auglýsingasími: 578 1190

x

Selfoss

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.