Selfoss - 26.09.2013, Side 2

Selfoss - 26.09.2013, Side 2
2 26. september 2013 Ný kynslóð sólarkrema Lækjargötu 34 • Hafnarfirði • Opið þriðjudaga kl 14 - 18 Sími 565 0500 • 897-1923 Swiss Nature fást á vefsíðunni www.scincare.is eða í k Viðsnúningur í rekstri – ekki sjálfsagt mál Í síðasta blaði var grein eftir Þor-lák Helgason ritstjóra blaðsins um fjármál Sveitarfélagsins Árborgar. Þorlákur hefur lengi sýnt bæjarmálum áhuga og meðal annars verið formaður Samfylk- ingarinnar í Árborg og situr sem fulltrúi hennar í íþrótta- og menn- ingarnefnd. Það er út af fyrir sig fagnaðarefni að rætt sé um fjármál sveitarfélagsins og ljóst af grein Þorláks að ekki er ágreiningur um stórbætta fjárhagsstöðu Árborgar. Eins og flestir vita var sveitarfé- lagið undir eftirliti Eftirlitsnefnd- ar með fjármálum sveitarfélaga þar til á síðasta ári, enda taldi nefndin sveitarfélagið hvorki standast viðmið um sjálfbæran rekstur né þolanlegt skuldahlutfall. Árangur í fjármálum Árborgar er því ekki eingöngu sýnilegur í ársreikning- um sveitarfélagsins heldur þótti eft- irlitsnefndinni ástæða til eftir árið 2009 að setja sveitarfélagið undir sérstakt eftirlit. Skuldir sveitarfé- lagsins höfðu þá hækkað hlutfalls- lega öll árin frá stofnun þess og farið úr um 50% skuldahlutfalli í 206% miðað við tekjur. Slíkt er ósjálfbær skuldastaða. Nú eru skuldir um 150% af tekjum, sem er enn mik- ið, en byrðunum hefur verið létt það mikið að eftirlitsnefndin telur skuldastöðuna sjálfbæra í dag. Hitt viðmiðið er afgangur af rekstri en sú tala þarf að duga fyrir fjárfestingum, vöxtum og afborg- unum skulda. Á síðasta kjörtímabili var rekstrarafgangur af reglulegum rekstri sveitafélagsins að meðaltali 620 milljónir króna en hefur verið á þessu kjörtímabili 1.067 milljón- ir að meðaltali sem er 172% betri rekstrarafkoma. Þorláki verður tíðrætt um auknar tekjur sveitar- félagsins en ekki má gleyma því að verkefnum hefur fjölgað og launa- vísitala hækkað um 18% síðustu þrjú árin. Staðreyndin er einfaldlega sú að árin 2006-2009 var eytt mun meira en aflað var og þegar nettó fjárfestingar og fjármagnsgjöld eru dregin frá rekstrarafkomunni kem- ur í ljós að sveitarfélagið vantaði 5.139 milljónir til að ná endum saman. Gerir þetta 3,5 milljónir á dag! Til samanburðar er afgang- ur upp á tugi milljóna þegar sami mælikvarði er lagður á árin 2010- 2012. Það er því ánægjulegt að fá tækifæri til að ræða bætta stöðu sveitarfélagsins Árborgar á þessum vettvangi. Í "fréttaskýringu" Þorláks Helga- sonar er að því látið liggja að engu máli skipti hverjir stjórni og bætt fjárhagsstaða gerist af sjálfu sér. Fátt er fjær sanni. Á sama tíma og Sveita- félagið Árborg hefur náð að lækka skuldahlutfall sitt verulega hefur það hækkað hjá öðrum. Á sama tímabili og Árborg hefur skilað af- gangi af rekstri í þrjú ár í röð þegar tekið er tillit til allra útgjalda hefur eingöngu eitt af átta stærstu sveitar- félögunum á landinu náð sama ár- angri. Það sveitarfélag er Garðabær. Það er því ljóst að ekki vill eitt yfir alla ganga og veldur hver á heldur. Bæjarfulltrúar allra flokka hafa á þessu kjörtímabili sýnt ráðdeild og ábyrgð í fjármálum. Komið með fjölda gagnlegra ábendinga, tekið á sig skerðingar og náð góðri sam- stöðu með starfsfólki sveitarfélags- ins til að ná þessum góða árangri. Það ber að þakka. Skautað framhjá raunveruleikanum Í grein Þorláks er skautað fram hjá ýmsum staðreyndum sem of langt mál er að telja, en rétt er að benda á að í útreikningum hans varðandi holræsamál gleymast út- gjöld eins og rekstur lagnakerfisins, fjármagnskostnaður og viðhald. Af- borganir lána einar og sér eru þrjú hundruð og tuttugu miljónir á tímabilinu. Munar um minna. Ekki vitum við hvernig Þorlákur sér fyrir sér að hægt sé að skauta fram hjá afborgunum skulda fráveitunnar. Í raunveruleikanum þarf að borga af lánunum, reka kerfið og sinna viðhaldi. Þetta þekkja allir sem reka heimili og fyrirtæki. Eitthvað hef- ur þetta gleymst í útreikningum Þorláks og er því einboðið að þetta verði leiðrétt í blaðinu. Eitt af því sem fjárfesta þarf í er hreinsistöð við Ölfusá og er gert ráð fyrir að ráð- ast í þá fjárfestingu fyrr en seinna. Afgangur af rekstri holræsakerfa nýtist þá vel í þá dýru framkvæmd sem framundan er. Verra væri ef ekki hefði verið rekstrarafgang- ur; þá væri rétt að hafa áhyggjur. Framkvæmda- og veitustjórn hef- ur unnið að undirbúningi þessa löngu tímabæra umhverfisátaks sem margir bíða eftir. Rétt er að horfa saman fram á við og vinna saman að enn frekari uppbyggingu sveitarfélagsins; öllum til heilla. Ásta Stefánsdóttir, fram- kvæmdastjóri Sveitarfélagsins Árborgar, Eyþór Arnalds, formaður bæjarráðs Fjallkonan er frumkvöðull ársins Bæjarstjórn Árborgar hefur valið Fjallkonuna á Selfossi sem frumkvöðul ársins. Frum- kvöðlaviðurkenningunni fylgir ekki önnur vegtylla en að það er litið upp til þeirra sem til hennar stofnuðu. Búðin sjálf er falleg og leikur sín hlutverk af lífi og sál: matur beint frá býli, afbragðs grænmeti og innfluttir ostar. Allt í bland og miklu meira. Til ham- ingju! Fjallkonan tekur vel á móti manni. minnir á krambúð af bestu sort. Skammhlaup milli tveggja heima og gullöld abstraktmálverksins. Tvær sýningar opna í Listasafni Árnesinga laugardaginn 28. september kl. 15 Skammhlaup milli tveggja heima, kallar Ólafur Gíslason sýningu Rósu Gísladóttur. Hin sýningin leiðir okkur inn í heim abstraktlistarinnar á Íslandi 1945-1969. Verk Rósu „fela í sér sprengikraft í kyrrstöðu sinni vegna þess að þau mynda skammhlaup á milli tveggja heima“ svo vitnað sé í texta Ólafs Gíslasonar listfræðings í sýningar- skránni. Verk Rósu eru sett upp sem tvær kyrralífsmyndir sem vísa í klassíska hefð. Sú stærri nýtir stærsta sal listasafnsins og samanstendur af verkum sem Rósa vann fyrir sýn- ingu í rústum Keisaratorganna í Róm sumarið 2012 en sú minni er frá árinu 1999 og endurspeglar klassísk kyrralífsmálverk. Hin sýningin ber heitið Sam- stíga og opnar sýn inn í þróun abstraktlistar á árunum 1945- 1969 í víðu samhengi. Þá náðu íslenskir myndlistarmenn athygli erlendis og voru samstíga öðrum listamönnum í Evrópu. Þetta er önnur sýningin í þriggja sýninga samstarfsverkefni Listasafns Árnes- inga, Listasafns Hornafjarðar og Listasafns Íslands. Eyborg Guð- mundsdóttir, Guðmunda Andrés- dóttir, Guðmundur Benediktsson, Hörður Ágústsson, Karl Kvaran, Nína Tryggvadóttir, Svavar Guðna- son, Valtýr Pétursson og Þorvaldur Skúlason eru höfundar verka sem koma úr safneign Listasafns Íslands en verk eftir Gerði Helgadóttur eru fengin að láni hjá Listasafni Kópa- vogs - Gerðarsafni. Samstíga er þriðja sýning ársins sem tileinkuð er 50 ára listaverka- gjöf Bjarnveigar Bjarnadóttur og sona hennar til Árnesinga. Í anda hugsjóna Bjarnveigar hefur lítilli listasmiðju verið komið fyrir í safn- inu þar sem börnum og fullorðnum er boðið upp á leik og fræðslu með verkefnum til þess að glíma við og hafa gaman af. ÞHH Karl Kvaran var einn af abstrakt- málurunum. myndin er máluð 1954. Óljóst um fjármagn til endurnýjunar gamla hluta Sjúkrahúss Suðurlands Það mátti ekki minna vera: þrír fyrrverandi ráðherr-ar fóru með fylgdarliði um hérað í vikunni. Heimsóttu vinnustaði og fræddust um stöðu mála. Magnús Skúlason fram- kvæmdastjóri Heilsustofnunar Suðurlands kynnti stöðu mála. Samnefnarinn er niðurskurður en bjartsýni um betri tíð framundan. Halli var um 4% á rekstri fyrstu 7 mánuði þessa árs. Er ljóst að enn verður að skera niður. 22-23% af þeim sem koma á bráðamóttökuna er fólk sem hefur lögheimili utan umdæmisins. Mik- ilvægt verkefni er endurnýjun eldri hluta sjúkrahússins og hafa fengist um 370 milljónir til verksins. Er heldur óljóst hvort þeir peningar haldist þar sem boðaður er niður- skurður víða. ÞHH Þrír fyrrverandi ráðherrar með föruneyti hittu sl. þriðjudag magnús, Óskar og Önnu maríu, forstöðumenn Heilsustofnunar suðurlands.

x

Selfoss

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.