Selfoss - 26.09.2013, Page 8

Selfoss - 26.09.2013, Page 8
8 26. september 2013 Spennandi hugmyndasamkeppni um Geysissvæðið: Blesi, Sísjóðandi, Óþerrishola og Konungshver leika veigamikil hlutverk í samkeppni um Geysi Blesi hæfði „forhertum kjaftakerlingum“ en Geysir hresstist við jarðskjálftana 1896. Hann „stundi eins og giktveikur karl“ fyrir skjálfta. Bláskólabyggð blæs til hugmyndasamkeppni um Geysissvæðið Spennandi hlutir eru að ger-ast. Boðuð er samkeppni um Geysissvæðið og er markmiðið að fá fram hugmyndir um skipulag og uppbyggingu þess. Um er að ræða tugi hektara svæði þar sem náttúra og land eru einstök. „Vonandi fáum við mjög spennandi og áhugaverðar hug- myndir um skipulag og hönnun svæðisins,“ segir Drífa Kristjánds- dóttir, oddviti Bláskógabyggðar. Hver kann nöfnin öll? Fata, Óþerrishola, Þykkuhverir, Sí- sjóðandi, Smiður, Litli Geysir, Litli Strokkur, Sóði, Móri, Blesi, Kon- ungshver . Kristján níundi kom að Geysi 1874. „Fyrir því hugkvæmdist okkur að skíra hver þennan Konungshver.“ Timburhjallurinn reyndist konungshús! Sænski rithöfundurinn Albert Engström kom að Geysi fyrir öld (árið 1911) og skrifar miklar lýs- ingar á aðstæðum og atburðum. Hann gisti í því sem reyndist „svo- lítill timburhjallur með fimm her- bergjum. Á íslenskan mælikvarða er það nú samt reglulega gott ... En við þessu er ekkert að gera. Í staðinn er okkur sagt, að það sé ekki sjálft gistihúsið, sem við höfum lent í ... Það er konungshúsið, sem við höf- um lagt undir okkur. Hús sem byggt var alveg sérstaklega konunginum, þegar hann kom hingað til landsins, fyrir nokkrum árum síðan (1907).“ Timburhjallurinn reyndist þó ekki verri en svo að Engström og félagar sofnuðu eftir tíu mínútur „eins og rotaðir selir.“ Blesi hæfði forhertum kjaftakerlingum Engström var gengið út á dyrapalll- inn og heyrir hvin mikinn eins og hvalablástur. Þetta er Óþerrishola, sagði fylgdarmaðurinn. Smám saman kynntist Engström fleiri hverum og laugum. Veltir hann fyrir sér hvort einsetumennirnir sem komu til Ís- lands á undan Norðmönnum (pap- arnir) hafi framið helgar athafnir í návist jarðarandanna. Og áfram lét hann hugann reika: Hvað á að hafa til morgunverðar? „Eigum við að sjóða uxatungur frá Argentínu í Blesa, eða eigum við að binda spotta í þýzka pylsu og sökkva henni í Geysi, allt niður að miðpunkti jarðar?“ Heitar uppspretturnar í kring- um Geysi telur Engström vera um hundrað en aðeins þrjár sem gjósa: Geysi, Óþerrisholu og eina enn sem ekki hafi sérstakt nafn. Blesi er feg- urst uppstrettanna, segir Engström. „Vatnið kyrrt, tært, blágrænt næstum því eins og í bláa hellinum á Capri.“ Hvelfingar sé að finna í Blesa og gætu vatnadísir búið þar. „Þá eru það vatnadísir sem þola 92 gráðu hita!“ Engström efast og bætir við: „Lík- lega hæfði Blesi samt forhertum kjaftakerlingum.“ Aðrar laugar og Engström telur meðal þeirra merk- ustu heita Stjarna, Fata, Konungs- hver, Ástarauga, Strokkur (sem sé hættur að gjósa), Gunnhildarhver og Sísjóðandi. (Stuðst við tímaritið Dvöl, 10. júní 1934) Geysir stundi eins og giktveikur karl! Þess má geta að það var við jarð- skjálftana á Suðurlandi árið 1896 eða 15 árum áður en Albert Engström sótti Ísland heim sem Geysir hress- ist. „Eitt hafa þeir (jarðskjálftarnir) gert til bóta: þeir hafa bætt Geysi til muna. ... Áður boðaði hann stórgos- in með miklum dunum og dynkjum niðri í jörðinni; hann stundi eins og giktveikur karl ... Ennfremur hafa landskjálftarnir skapað 10-12 nýja hveri og hvera-augu þar á söndun- um umhverfis.“ Stærstur þeirra er Konungshver, segir höfundur frétt- arinnar sem birtist í Ísafold 24. ágúst 1897. Spennandi hugmynda- samkeppni Nú spretta þau fram Sísjóðandi, Óþerrishola og Konungshver og verða að forskrift í athyglisverðri samkeppni sem boðuð er um skipulag á Geysissvæðinu. Bent er á að gera megi Geysi og Strokk hærra undir höfði. Markmið samkeppninnar sé að fá fram hugmyndir um skipulag og uppbyggingu svæðisins. Áhersla sé lögð á raunhæfar og spennandi til- lögur sem m.a. taki mið af helstu sérkennum svæðisins. Ekki kæmi á óvart þó að þátttakendur leituðu í smiðju Engströms gamla! „Vonandi fáum við mjög spennandi og áhugaverðar hug- „Vatnið í blesa er kyrrt, tært, blágrænt næstum því eins og í bláa hellinum á Capri,“ sagði sænski rithöfundurinn Albert engström sem gisti í konungs- húsi að Geysi árið 1911. „Vonandi fáum við mjög spennandi og áhugaverðar hugmyndir um skipulag og hönnun svæðisins,“ segir Drífa Kristjándsdóttir, oddviti bláskógabyggðar.

x

Selfoss

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.