Selfoss - 26.09.2013, Page 10

Selfoss - 26.09.2013, Page 10
10 26. september 2013 Þetta mátti lesa á forsíðu Alþýðublaðsins fyrir 70 árum: Til Danske i Reykjavik og Omegn I Anledning af Hans Majestæt Kong- ens Födselsdag Söndag den 26. Sept- ember 1943 indbyder den danske Minister og Det Danske Selskab i Reykjavik alle herboende Danske med Familie etil en Sammenkomst i Gamla Bio kl 1.30 Em. Præcis. Á dagskrá var m.a. Oplæsning af Herr Skulespiller Lárus Pálsson, Herr Minister, Fr. De Fontenay taler for Kongen og Forevisning af Filmen: H.M. Kongens 70 Aars Födseldag. Kóngurinn sem í hlut átti var Kristján tíundi, að skírnarnafni: Christian Carl Frederik Albert Al- exander Vilhelm Glücksburg. Hann átti varla heimangengt eftir að hafa fallið af hestbaki 1942 og slasast. Hann andaðist 1947. ----------- „Ölvuðum mönnum bannaður að- gangur.“ Sunnudaginn 26. september 1943 er haldin mikil hlutavelta íþrótta- félagsins Ármanns í ÍR húsinu í Reykjavík þar sem hægt er að eignast afpassað fataefni, rykfrakka, kol og saltfisk, og fjóra 500 króna vinninga. Ekket núll. „Þetta verður ábyggilega stórfeng- legasta og happadrýgsta hlutavelta ársins.“ SKT auglýsir dansleik í Góð- templarahúsinu klukkan 10 eftir hádegi sunnudag 26. september 1943. Þar verða m.a. nýir dansar en aðgöngumiðar seldir frá kl. 6.30 (líka e.h.). Það er ákveðnari tónn í auglýsingunni um dansleik þennan sunnudag sem á að verða í Alþýðu- húsinu kl. 10 s.d. (síðdegis). „Ölvuð- um mönnum bannaður aðgangur,“ stendur undir auglýsingunni. ----------- Fé skorið í Árnessýslu Blaðið Heimskringla á Íslendinga- slóðum í Vesturheimi fagnar 65 ára afmæli 26. september 1951. Mik- ið er um afmælisóskir í blaðinu. Meðal annars ósk um að blaðið deyi ekki (seinna voru Lögberg og Heimskringla sameinuð). Fréttir eru frá Íslandi: Fé verður skorið niður í þremur sýslum á svæðinu frá Hval- firði og austur að Þjórsá. „Áður en fjárpestirnar byrjuðu að herja á fjárstofn landsmanna var Árnessýsla ein hin fjárríkasta sýsla landsins. Í mesta fjárrekstrarsvæðunum, svo sem í Biskupstungum og Hrepp- unum voru á nokkrum bæjum sett á vetur 500-1000 fjár.“ Talið sé að um 60000-80000 fjár verði skorin niður að hausti. ----------- Árið 1951: Búa til „Hnött“ og ætla til tunglsins! Heimskringla greinir frá því 26. september 1951 að vísindamenn frá 12 þjóðum séu að vinna að því að búa til „hnött“ sem muni hringsóla um jörðina líkt og máninn. Þannig yrði hægt að verða sér úti um frek- ari þakkingu. Hnötturinn sem ætti að verða tilbúinn eftir tuttugu ár er hluti af miklum áformum: Vís- indamennirnir hafi stofnað með sér alþjóðlegan félagsskap sem vona að hægt verði að komast til tunglsins og reikistjarnanna. (Árið 1961 varð Júrí Gagarín fyrsti maðurinn til að kom- ast út í geiminn og fyrsta lending á tunglinu varð 1969) ÞHH 26. september: Með greinarstúfum sem hér birtast bregðum við á leik. Framvegis mun verða leitað fanga í gömlum blöðum og tímaritum. Útgangspunkturinn verður dagsetning viðkomandi blaðs. Að þessu sinni er útgáfudagur- inn 26. september. Efnið sem hér birtist felur í sér dagsetninguna 26. september. Atburðir eru látnir ráðast af því að þessi dagsetning finnst í textanum. Þeir geta verið mis forvitnilegir, en við látum dagsetninguna stjórna ferðinni. Vona að þetta geti verið skemmtilegt. Kristján konungur tíundi á hestbaki í Kaupmannahöfn 1940. OG HAUSTA FER TILBOÐ VIÐ HÖFUM Í SEPTEMBER ER SUMRI HALLAR KOMDU MEÐ MÁLIN og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð FAGMENNSKA Í FyRIRRúMI Þú nýtur þekkingar og reynslu og fyrsta flokks þjónustu. VIÐ KOMUM HEIM TIL þÍN, tökum mál og ráðleggjum um val innréttingar. þú VELUR að kaupa innrétt- inguna í ósam- settum einingum, samsetta eða uppsetta. HREINT OG KLÁRT Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 Mán. - föst. kl. 9 -18 Laugardaga kl. 11-15 Fataskápar Baðherbergi Skóhillur Helluborð Ofnar Háfar Kæliskápar RAFTÆKI FYRIR ELDHÚSIÐ TILBOÐ AFSLÁTTUR 25% AF ÖLLUM INNRÉTTING UM Í SEPTEMBER Mjúklokun Búrskúffur Þvottahúsinnréttingar ÁByRGÐ - þJÓNUSTA 5 ár á innréttingum, 2 ár á raftækjum. VÖNDUÐ RAFTÆKI Á VÆGU VERÐI friform.is Skúffuinnvols Fjárpestir herjuðu allt frá Hvalfirði og austur að Þjórsá. myndin er úr Flóanum. Rakel Sif sýnir í Lista- gjánni út september Rakel Sif Ragnarsdóttir sýnir í Listagjánni.. Hún hefur lokið listnámi frá Háskóla Íslands, er starfsmaður bóksafnsins. Handverk hennar má m.a. sjá í Torbjörn Egner klippimyndunum sem nú prýða barnadeild safnsins. Sýningin stendur út september og er jafn- framt sölusýning. Upplýsingamiðstöðin lokar Sumri hallar en þó er enn fólk á ferðinni og við leitumst að sjálf- sögðu við að aðstoða alla þá sem inn koma ef við mögulega getum, segir Heiðrún Dóra, forstöðumað- ur safnsins. Margir ferðamenn lögðu leið sína til okkar í sumar. Skábraut Gestir Bókasafns Árborgar hafa getað gengið á skábraut inn í safnið. Nú er loskins hægt að bjóða upp á almennilegt aðgengi fyrir alla um aðaldyrnar. Það stóðst, menn komust á tunglið í tæka tíð. rakel sif við eitt verka sinna í Listagjánni.

x

Selfoss

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Selfoss
https://timarit.is/publication/988

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.