Selfoss - 26.09.2013, Síða 12
Flott föt fyrir
flottar konur
Stærðir 38-58
Verslunin Belladonna
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Skeiða- og Gnúpverjahreppur leitar að áhugasömum og
metnaðarfullum aðila til að taka að sér rekstur og upp-
byggingu ferðaþjónustu í Árnesi sumarið 2014.
Um er að ræða rekstur félagsheimilisins í Árnesi,
tjaldsvæðis og Þjórsárstofu.
Í félagsheimilinu Árnesi eru salarkynni sem henta vel fyrir
ýmis konar veitingarekstur samhliða gestastofunni.
Fallegt tjaldsvæði er við Árnes, það hefur nýlega verið
rafvætt.
Þjórsárstofa er gestastofa fyrir ferðamenn sem er opin yfir
sumartímann. Þar er að finna margmiðlunarsýningu um
Þjórsá og Þjórsárdal, sögu, náttúrufar og mannlíf í Skeiða-
og Gnúpverjahreppi.
Spennandi tækifæri fyrir réttan aðila.
Áhugasamir aðilar setji sig í samband við sveitarstjóra
Skeiða- og Gnúpverjahrepps á skrifstofu sveitarfélagsins
í Árnesi, 801 Selfoss eigi síðar en 30. september
næstkomandi. Sími 486-6100 og 861-7150
netfang kristofer@skeidgnup.is
Í Skeiða og Gnúpverjahreppi eru um 540 íbúar aðalatvinnuvegur
er landbúnaður. Auk þess er ferðaþjónusta og iðnaður stundaður
í nokkrum mæli. Þéttbýliskjarnar eru við Árnes og Brautarholt.
Grunnskóli, Leikskóli, sundlaugar, verslun og bókasafn er í sveitar-
félaginu. Náttúruperlur og sögustaðir eru margir í sveitarfélaginu.
Nefna má Þjórsárdal og Áshildarmýri.
Veitingarekstur- ferðaþjónusta
í Árnesi- rekstraraðili óskast
26. september 2013
Mörgun finnst erfitt að ákveða kvöldmatinn einn daginn enn. Hvað
á nú að hafa í matinn?
Oft verður eitthvað gamalkunn-
ugt fyrir valinu sem eðlilegt er, en
einnig er gaman að breyta til.
Fiskur er á borðum á mínu heimili
3 – 4 kvöld í viku. Það krefst þess að
stundum þarf að hugsa um einhverja
tilbreytingu í fiskrétti. Fiskur hefur
þann eiginleika að möguleikarnir eru
margir til að krydda hann og veita
tilbreytingu í hvunndaginn.
Á mánudaginn keypti ég karfa en
auðvitað má nota hvaða fisk sem er.
Karfinn var skorinn í bita og þeim
raðað í eldfast form, síðan kreisti ég
safa úr hálfri sítrónu yfir hann.
Stappaði svo saman fetaosti úr
hálfri krukku og hálfri krukku af sól-
þurrkuðum tómötum (smátt brytj-
aðir). Smurði blöndunni yfir fiskinn
og yfir það fóru Cashew hnetur,
einnig má hafa t.d sólblómafræ eða
önnur fræ eða hnetur. Óþarfi er
að hafa salt og pipar vegna þess að
osturinn er saltur. Sjálfsagt er samt
að bera það með á borðið. Bakað í
200°C heitum ofni í 20 mínútur.
Með þessu er haft salat úr öllu þessu
yndislega haustgrænmeti. Karföflur
eða/og aðra rótarávexti.
Núna stendur sláturtíðin sem hæst
og er mikilvægt að minna foreldra
á innmatinn, lifur, hjörtu og nýru.
Þetta er mjög ódýr matur og holl-
ur. Innmat má nota í allar tegundir
af hinum ýmsu pottréttum. Hann
passar mjög vel við grænmeti hausts-
ins. Einnig spennandi í alls konar
framandi kryddrétti enda mikil hefð
fyrir að borða innmat í mörgum
menningarsamfélögum.
Ég rakst á nýstárlega en gamla
uppskrift af Skjaldbökubróður
(Forloren Skilpadde) í Matreiðslu-
bók fyrir fátæka og ríka eftir Jó-
hönnu Sigurðardóttur frá Drafla-
stöðum sem gefin var út á Akureyri
1916. Uppskriftin fylgir hér með í
upprunalegu útgáfunni.
Gangi ykkur vel og verði ykkur að
góðu. Kv, KS
Að hætti hússins
Kristjana Sigmundsdóttir
kristjanasig@simnet.is
GÓÐ TILBREYTING
12
Það væsti ekki um þau í
langsíðri kerrunni í blíðviðr-
inu á Selfossi sl. þriðjudag.
Er ekki hægt að tala um
að fimmmenna í einu? Þau
voru sallaróleg enda finnst
þeim þetta allra besti ferða-
mátinn. Sum voru þegar
sofnuð. Önnur létu ekki
myndasmið trufla.