Vesturland - 18.07.2013, Qupperneq 1
Full búð
af nýjum vörum
Full búð
af nýjum vörum
Full búð
af nýjum vörum
Full búð
af nýjum vörum
Veiðivörur í úrvali Spúnar
Kaststangir
Veiðihjól
Fluguhjól
Flugur
Vöðlur
Flugustangir Spúnabox
Veiðitöskur Gervibeita Silunganet
Opið á
laugardögum
10-16
18. júlí 2013
7. tölublað 2. árgangur UMHVERFISVOTTUÐ PRENTUN
Menntaskóli Borgarfjarðar útskrifaði 23 stúdenta
Í byrjun sumars voru 23 stúdentar braut-skráðir frá Menntaskóla Borgarfjarðar. Tíu stúdentar luku námi á félagsfræða-
braut, ellefu á náttúrufræðibraut og tveir
luku viðbótarnámi til stúdentsprófs. Bjarni
Traustason kennari við skólann stýrði
athöfninni, Lilja S. Ólafsdóttir, aðstoðar-
skólameistari, flutti annál og Vilhjálmur
Egilsson, rektor Háskólans á Bifröst, flutti
gestaávarp. Dúx skólans var Bjarki Þór
Grönfeldt, en hann lauk námi á tveim og
hálfu ári. Að lokinni brautskráningu hélt
Þórkatla Dagný Þórarinsdóttir ræðu fyrir
hönd útskriftarhópsins og athöfninni lauk
með ávarpi Kolfinnu Jóhannesdóttur skóla-
meistara.
Nýstúdentar sáu um tónlistarflutning;
Magnús D. Einarsson lék 1. þátt úr 14.
sónötu Beethovens, Jóhanna María Þor-
valdsdóttir söng lag úr söngleiknum um
Mary Poppins og Magnús Kristjánsson
flutti lagið Circle of Life eftir Elton John.
útskriftarhópurinn.