Reykjanes - 07.02.2013, Síða 4

Reykjanes - 07.02.2013, Síða 4
4 7. febrúar 2013 sinnUM öllUM dýRUM Dýrin þurfa á heilbrigðis-þjónustu að halda, eins og við vitum. Í Reykjanesbæ er Dýralæknastofa Suðurnesja staðsett að Flugvöllum 6. Reykjanes leit við einn daginn og hitti þær Hrund Hólm, Ey- dísi Ármannsdóttur og Unni Olgu Ey- vindsdóttur, sem eru hér á myndinni. Dýralæknastofan var stofnuð árið 2004 og var þá staðsett við Hringbraut- ina. Í núverandi húsnæði hefur Dýra- læknastofan verð frá 2008. Fram kom í spjallinu að dýrahald er að aukast hér á Suðurnesjum. Al- gengast er að leitað sé til stofunnar með hunda og ketti. En við sinnum öllum dýrum. Hér eru starfandi tveir dýralæknar. Við sinnum nagdýrum og svo þeim sem stærri eru eins og hestar og kindur. Það er skráningarskylda á hundum og köttum og eru þau með örmerkingu. Langflestir eigendur þessara dýra sjá um að þau séu skráð. Ragnheiður Elín Árnadóttir oddviti Sjálfstæðismanna. nÚ þaRf að foR- gangsRaða Rétt Ragnheiður Elín hlaut afgerandi kosningu í 1. sæti lista Sjálf-stæðismanna í Suðurkjördæmi. Nú hefst baráttan fyrir kosningarnar í apríl, þar sem Sjálfstæðisflokkurinn í Suðurkjördæmi stefnir á að ná verulega góðum árangri. Í prófkjörsbaráttunni og á Alþingi hefur Ragnheiður Elín lagt mikla áherslu á að leysa þurfi skulda- vanda heimilann. Reykjanes leitaði til Ragnheiðar El- ínar og spurði hana hvernig hún og hennar fólk gætu lagt fram tillögur að lausn á fjárhagsvanda heimilanna. Lausn sem kjósendur hefðu trú á að hægt væri að framkvæma komist Sjálf- stæðisflokkurinn í ríkisstjórn. Svar Ragnheiðar Elínar: "Á undanförnum mánuðum og á ferðum mínum um kjördæmið í próf- kjörsbaráttunni var alveg skýrt hvaða mál er brýnasta forgangsmálið – það er að leysa fjárhagsvanda heimilanna og koma atvinnulífinu í gang. Það er ömurlegt að við skulum enn, rúmum fjórum árum eftir hrun, vera með þennan vanda óleystan og að tíman- um hafi verið sóað í hugmyndafræðileg gæluverkefni stjórnarflokkanna. Nú þarf að forgangsraða rétt og snúa okkur að því sem er brýnast og mestu máli skiptir – annað má bíða. Vandi heim- ilanna er margþættur – þetta er ekki bara skuldavandi heldur eru vanda- málin ekki síður á tekjuhliðinni vegna atvinnuleysis, lækkandi kaupmáttar og hækkun á verðbólgu. Ég vil setja lausn þessa vanda í forgang og mun beita mér fyrir því innan míns flokks. Ég hef fulla trú á því að við getum leyst þessi mál, það eru þegar fjölmargar tillögur á borðinu úr mörgum áttum sem þarf að skoða, reikna og taka af- stöðu til. Breytingar á samsetningu verðtryggingarinnar, skattaívilnanir eða sértækar leiðréttingar? Það er engin ein töfralausn til og þeir sem lofa slíku eru ekki trúverðugir. Við sjálfstæðis- menn munum kynna okkar lausnir að loknum landsfundi og þær verða trú- verðugar og það sem mestu skiptir, þær munu taka á vandanum og leysa hann". noRðURljósin í sinni fegURstU Mynd Haraldur Hjálmarsson áhuga-ljósmyndari var á ferðinni um daginn og náði þessum skemmtilegu Norðurljósamyndum. Ótrúlegur fjöldi ferðamanna kemur til Íslands gagngert í þeim tilgangi að sjá og upplifa norðurljósin og margir þeirra gista á Norðurljósahótelinu (Northern Light Inn) í Svartsengi. Efri myndin var tekin við Kleifarvatn og neðri myndin við Seltún. (heimasíða Grindavíkur) takið 16. feBRÚaR fRá! Grindvíkingar eru hvattir til þess að taka frá laugardaginn 16. febrúar nk. Þá mætast Grindavík og Stjarnan í úrslitum bik- arkeppni karla í körfubolta í Laugar- dalshöll kl.15: 00. Um kvöldið er svo risa þorrablót í íþróttahúsinu sem vonandi verður sigurhátíð í leiðinni! Þorrablótið er á vegum körfuboltans, fótboltans og Kvenfélags Grindavíkur. Dagskrá: Hljómsveitin Upplyfting leikur fyrir dansi og þá verða heimatilbúin skemmtiatriði að hætti Grindvíkinga. Veislustjóri Jón Gauti Dagbjartsson. Húsið opnar kl 19: 00. Borðhald hefst stundvíslega kl 20: 00. Miðaverð 6.500 kr fyrir mat og dansleik. Miðaverð 2.000 kr. fyrir dansleik. Við hvetjum Grindvíkinga til að sýna samstöðu og taka með sér vini, ættingja og brottflutta Grindvíkinga. (heimasíða Grindavíkur) stóRsigUR sUðURnesjaManna Það vakti athygli hversu útkoma Suðurnesjamanna var glæsileg í prókjöri Sjálfstæðismanna á dögunum. Þrír af fjórum efstu eru Suðurnesjamenn. Ragnheiður Elín, Reykjanesbæ skipar fyrsta sætið, Ás- mundur Garðmaður skipar þriðja sætið og Vilhjálmur Grindvíkingur fjórða sætið. Öll verða þau örugglega þingmenn eftir kosningar. Ekki veitir af fyrir Suðurnesin að fá góða tals- menn á Alþingi. Auglýsingasíminn er 578 1190 - Netfang: auglysingar@fotspor.is.

x

Reykjanes

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.