Reykjanes - 07.02.2013, Blaðsíða 6
6 7. febrúar 2013
VeRðUM að UppRæta Mis-
MUnUn í okkaR saMfélagi
Ásmundur Friðriksson náði gífurlega góðum árangri í prófkjöri Sjálfstæðismanna í
Suðurkjördæmi. Öruggt að Ásmundur
sest á þing eftir kosningar. Ásmundur
talaði mjög skýrt í prófkjörsbaráttunni
fyrir ýmsum hagsmunamálum fólks
bæði hér í kjördæminu og fyrir alla
þjóðina. Eitt af hesltu baráttumálum
Ásmundar er átak í atvinnumálum,
þannig að það takist að auka atvinnu
og eyða atvinnuleysi.
Reykjanes leitaði til Ásmundar og
spurði hann hvernig Sjálfstæðisflokk-
urinn gæti lagt fram trúðverðuga stefnu
í þessum málum , sem hrint yrði í fram-
kvæmd komist Sjálfstæðisflokkurinn í
ríkisstjórn.
Punktar í atvinnustefnu.
Landsfundur Sjálfstæðisflokksins er
framundan og þar verður stefna flokks-
ins í atvinnumálum lögð fram. Ég mun
beita mér fyrir að eftirfarandi punktar
og hugsun komi fram í þeirri stefnu.
Fjárfesting í atvinnulífinu er í al-
gjöru lágmarki og því eru vonir litlar
um ásættanlegan hagvöxt, aukna at-
vinnuþátttöku og aukið framboð vel
launaðra starfa. Við verðum að skapa
atvinnulífinu þannig umhverfi að það
laði að sér ungt fólk sem útskrifast mun
úr íslenskum og erlendum skólum og
leitar af eldmóði inn á vinnumarkaðinn.
Við þurfum á kröftum unga fólksins
okkar að halda til að skapa tækifæri til
aukinnar verðmætasköpunar. Þetta er
lykilforsenda fyrir lækkun skulda rík-
issjóðs, aukningu kaupmáttar, lækkun
skatta og síðast en ekki síst getu okkar
til að koma heimilum landsmanna til
bjargar. Heimilin og fjölskyldurnar eru
grunneiningar okkar dýrmæta samfé-
lags og framtíð og velferð Íslendinga í
gjöfulu landi, endurspeglast í velferð og
hagsæld heimilanna.
Gjaldeyrishöftin þarf að afnema og
draga úr vægi vertryggingar. Bjóða
þarf landsmönnum óverðtryggð lán og
koma heimilunum til hjálpar. Við verð-
um að uppræta mismunun í okkar sam-
félagi og tryggja að hér sitji ríkistjórn
sem vinnur ötullega með atvinnulíf-
inu og heimilunum að uppbyggilegum
umbótum og tækni- og efnahagslegri
framþróun.
Hátt auðlindagjald á útgerðina mun
ganga endanlega frá einstaklingsút-
gerð á fáum árum og þar munu fyrir-
tæki á landsbyggðinni verða verst úti.
Útgerðin vill greiða auðlindagjald og
henni ber að gera það. Gjaldið fyrir
nýtingu auðlindarinnar þarf hins vegar
að vera sanngjarnt um leið og það er
útfært á skiljanlegan og einfaldan hátt
og felur ekki í sér mismunun. Gjaldið
má ekki vera letjandi fyrir útgerðina og
hamla t. d. framþróun í nýtingu annarra
nytjastofna. Hér má nefna t. d. gulllax og
grálúðu. Hagsmunaaðilar í sjávarútvegi
höfðu náð einstökum samningum um
kvótamálin, en þar var lausn á framsali
kvóta helsta úrlausnarefnið. Ég tel að
ríkisstjórnin hefði átt að ganga að þeirri
góðu sáttarlausn sem þar var sett fram.
Þess í stað hefur ríkisstjórnin haldið sjáv-
arútveginum í spennitreyju og vöxtur og
viðgangur greinarinnar heftur á tímum
sem greininni gengur vel.
Byggjum upp framtíð veiða og
vinnslu. Stórmerkilegir hlutir eru að
gerast í þeim málum hér á Suðurnesjum
og Codland þeirra Grindvíkinga er og
verður risastökk fiskvinnslunnar inn í
framtíðina. Fyrir nokkrum árum hefði
þurft að segja gömlum fiskverkenda
og verkstjóra það nokkrum sinnum
að slóg yrði meðhöndlað sem matvæli
árið 2013. Þetta er hinn nýi veruleiki
nýsköpunar í sjávarútvegi. Leggjum
slíkri nýsköpun lið og sköpum henni
þær aðstæður sem hún á skilið og þarf
til að þróast og eflast. Í framtíðinni þarf
hálaunastörfum í fiskvinnslu að fjölga
og mikilvægt að undirstöðuatvinnuveg-
ur þjóðarinnar verði aftur sú atvinnu-
grein sem fólk vill starfa í launanna og
tækifæranna vegna. Sjávarútvegur er
einn af hornsteinum velferðar þjóðar-
innar og mikilvægt að svo verði áfram.
Um leið og gjaldeyrishöftum verð-
ur aflétt er mikilvægt að laða erlenda
fjárfestingu til Íslands. Við verðum að
skapa atvinnulífinu aðstæður til ný-
sköpunar og tryggja að frumkvöðlar
fái svigrúm til uppbyggingar atvinnulífs
sem skapar vel launuð störf og eykur
útflutning.
Með sanngjörnu skattkerfi og já-
kvæðu umhverfi fyrir atvinnulífið
munu sprotar framtíðarinnar vaxa úr
frjóum jarðvegi mannauðs, menntunar,
hugmyndaauðgi og náttúruauðlinda
Íslendinga. Aðilar sem hafa haldið
að sér höndum sl. fjögur ár eru nú að
skríða út úr skeljum sínum í þeirri von
að breyting sé framundan og að landinu
verði stjórnað af ríkisstjórn sem bæta
mun hag heimila og atvinnulífs.
Við eigum fyrst og fremst að byggja
atvinnulífið og nýsköpun á þeim sterku
stoðum sem við þegar höfum í landinu.
Selja gæði þess og fegurð erlendum
ferðamönnum sem vilja sjá náttúrperlur
okkar og upplifa hreinleikann og feg-
urðina. Um leið verðum við með gætni
að nýta þau náttúrulegu auðævi sem
landið vill gefa okkur og samningur
var gerður um. Við eigum að byggja á
þeirri sterku stöðu sem ferðaþjónust-
an er að komast í og nýta þann kraft
sem byr í segl frekari uppbyggingar á
landsbyggðinni. Kælivatn virkjana á
Reykjanesi skapar tugi eða hundruð
starfa, m. a. í Bláa lóninu og fiskeldi sem
rís á Reykjanesi. Í skoðun er að veita
affalli virkjana á Hellisheiði til sjávar
við Þorlákshöfn. Þar gætu skapast nýjar
auðlindir, tækifæri og störf ef vel verður
að því staðið.
Það er skylda Alþingis að skapa at-
vinnulífinu almenna og góða umgjörð
til þróunar og vaxtar. Við þurfum
breiða flóru fyrirtækja í hverri grein.
Við þurfum bæði stór fyrirtæki og smá
til að skapa samfélag þar sem tækifærin
verða til. Við þurfum líka rómantík í
atvinnulífið sem gleðin og viljinn til
góðra verka skapar. Atvinnulíf sem
skapar vel launuð störf er það mikil-
vægasta fyrir fólkið og sveitarfélögin.
Sjálfbær orkuöflun er verðmæti fyr-
ir þau fyrirtæki sem slíka orku nýta í
sinni framleiðslu. Þannig verður íslensk
framleiðsla eftirsótt. Það gefur okkur
forskot að búa yfir slíkum auðæfum
og við verðum að nýta þetta forskot
af skynsemi.
Ef við komum verðmætasköpuninni í
gang, fjölgum atvinnutækifærum, sköp-
um verðmæti til útflutnings þá fylgja
greinar eins og þjónusta og byggingar-
iðnaður í kjölfarið. Við höfum allt til
að skapa þessi tækifæri, en við höfum
búið við ríkisstjórn sem hefur sett fót-
inn fyrir atvinnulífið allt kjörtímabilið.
Í kosningunum 27. apríl nk. verður
kosið um hvort hjól atvinnulífsins fari
í gang eða ekki.
Kæru vinir–Áfram Ísland!
BReyting
eR BRýn
Alþingiskosningar eru á næsta leiti og á framboðslistum flokkanna er margt framb-
ærilegt fólk héðan af Suðurnesjum.
Við þurfum að tryggja að þau komist
sem flest á þing. Ég treysti þessu fólki
til að vinna að hagsmunum svæðisins
og að ný ríkisstjórn muni taka betur á
málum heldur en hin máttlausa stjórn
sem nú er við völd. Sveitarstjórnarkosn-
ingar verða að ári og þá er lag að breyta
um stjórnarhætti og áherslur í rekstri
Reykjanesbæjar.
Síðustu ár í rekstri Reykjanesbæjar
hafa verið erfið og það er ljóst að á 10 ára
einræðistíma Sjálfstæðismanna hefur
skuldasöfnun og skortur á skynsemi í
rekstri og fjárfestingum valdið því að
tekjur bæjarins hafa ekki dugað fyrir
gjöldum. Til að ná endum saman hef-
ur verið gripið til sölu eigna og rekstur
bæjarfélagsins er ekki sjálfbær. Aðeins
þarf að líta á stöðu Reykjaneshafnar sem
skuldar 6 milljarða og árlegur vaxta-
kostnaður er þrefaldar árstekjur hennar.
Dæmið gengur einfaldlega ekki upp.
Fyrirtæki sem áhuga hafa haft á Helgu-
vík undir starfsemi sína hafa ekki byrjað
rekstur. Þar af leiðandi hafa tekjur af
þeim verkefnum sem ráðis var í, hvorki
skilað sér í hafnarsjóð né bæjarsjóð.
Nú blasir við að á kjörtímabilinu
verði skipt um skólastjóra í öllum
grunnskólum sveitarfélagsins. Tveir
sögðu nýlega upp störfum. Niðurskurð-
ur í rekstri skólananna er orðinn svo
mikill að ekki verður lengur við unað.
Það er áfellisdómur fyrir meirihlutann
og sýnir glöggt að fífldirfska í fram-
kvæmdum bitnar á fé til rekstrar mik-
ilvægasta hluta samfélagsins – menntun
og uppeldi barnanna okkar.
Samstarf sveitarfélaganna á
Suðurnesjum hefur einkennst af tor-
tryggni og samstaðan er brotakennd.
Verkefni eins og málefni fatlaðra sem
nýlega var flutt yfir til sveitarfélaganna
hefur liðið fyrir það. Febrúarfundur S.
S. S. verður helgaður þessu verkefni og
vonandi næst þar samstaða um fram-
tíðarskipan málaflokksins.
Bygging nýs hjúkrunarheimilis á
Nesvöllum er í góðum farvegi og nú er
beðið samkomulags um rekstrarform
og rekstraraðila. Hafa verður hagsmuni
allra íbúa Suðurnesja að leiðarljósi.
Rekstrarhæfi heimilisins til framtíð-
ar væri betur tryggt með byggingu 4.
hæðarinnar að mínu mati.
Töluverðar breytingar hafa orðið á
samstarfi í ferðaþjónustu hér í kjölfar
stjórnarskipta og tilfærslu Markaðs-
skrifstofunnar til Heklunar. Það er mik-
ilvægt að huga að nýrri stefnumótun í
ferðamálum fyrir Suðurnes sem miði að
því að lengja dvalartíma ferðamanna.
Ferðaþjónustan er ung grein og þar ríkir
mikil samkeppni. Brýnt er að aðilar til-
einki sér líka samvinnu í samkeppni til
þess að svæðið í heild styrkist og komi
fram sem ein heild. Það skilar þeim og
samfélaginu mestum árangri til framtíð-
ar. Í ferðaþjónustunni búa ótal sprotar
tækifæra til atvinnusköpunar, hlúa verð-
ur að þeim svo þeir fái þroskast.
Með samvinnu og samstöðu til að
vinna að vexti samfélagsins tryggjum
við velferð fyrir okkur öll til framtíðar.
Kristinn Þór Jakobsson
Bæjarfulltrúi Framsóknar í
Reykjanesbæ