Reykjanes - 07.02.2013, Blaðsíða 8
8 7. febrúar 2013
Séra Sigfús og Laufey segja ferðasögu.
flakkaRaR ÚR fagRagaRdi
Einn sólbjartan dag í júní sl. sát-um við fjölskyldan úti í garði og veltum því upp hvert við ætt-
um að fara í sumarfrí. Það hafði lengið
verið á planinu að fara til Indlands en
það er fæðingarland dætra okkar og
þar bjuggu þær fyrstu 5 mánuði ævi
sinnar. Þegar við spurðum þær hvort
þær hefðu áhuga á að fara til Indland
kom sú eldri með þá tillögu hvort við
gætum ekki bara líka farið til Thailands
en þangað höfðum við öll komið áður
og erum ákaflega hrifin af landi og þjóð
og það varð úr. Eftir heilmikinn undir-
búning sem fór allur fram við tölvuna
heima hjá okkur var ferðin fullmótuð.
Við ákváðum að byrja í Thailandi
og 11. desember héldum við glaðbeitt
af stað í ævintýraferð. Við lentum í
undarlegri uppákomu strax í London.
Þegar við ætluðum að brosa okkur í
gegnum útlendingaeftirlitið eins og
venjulega vorum við stoppuð og beðin
um pappíra sem sönnuðu að dætur
okkar væru okkar en ekki stolnar.
Við höfum ferðast með þær út um
allan heim og aðeins einu sinni lent
í óþægindum en það var lengst inn í
landi í Mexico en það er önnur saga.
Oft og mörgum sinnum farið þarna í
gegn og aldrei verið neitt. Við vorum
nú ekki sátt og bentum á vegabréfin
og gamla stimpla og þurftum að út-
skýra nafnavenjur okkar Íslendinga.
Eins vorum við ekki á eitt sátt þar sem
önnur íslensk hjón höfðu farið með
ungt barn í gegn rétt áður og ekkert
mál. Við kröfðumst þess að fá yfirmann
á staðinn og fengum afsökunarbeiðni
en þetta var mjög óþæginlegt.
Við lentum í Bangkok. að kvöldi 13.
des. eftir langt ferðalag með gistingu í
London, millilendingu í Istanbul og
Nýju Delhi. Það er vel hægt að fljúga
beint frá London en þetta sparaði okk-
ur tugi þúsunda og við ákváðum að
gera bara gott úr þessu og skoða flug-
stöðvar í leiðinni (híhí. . . . flugstöðin í
Nýju Delhi stóð upp úr af öllum þeim
fjölmörgu flugvöllum sem við fórum í
gegnum) Það tók okkur ekki nema 20
mín. í lest að komast frá flugvellinum
í Bangkok og niður í Pratunam hverf-
ið okkar í borginni og mikið ótrúlega
var notalegt að koma á Tango hótelið
einu sinni enn þar sem allt var kunn-
uglegt. Við skutluðum töskunum upp
á herbergi og fórum beint út að borða.
Gamla konan á horninu stóð enn við
pottana sína og eldaði ofan í gangandi
vegfarendur og verður enginn svik-
inn af réttunum hennar. Ilmurinn af
mismunandi réttum er út um allt því
allstaðar er fólk að elda og selja mat.
Það er bara eitthvað við þessa borg sem
heillar okkur, hún iðar öll af lífi langt
fram á kvöld og eru markaðir með öllu
milli himins og jarðar. En eitt af því sem
einkennir Thailand er að allstaðar eru
heimamenn að elda og selja mat og
flestir sem við höfum verslað við eru
meistarakokkar. Fólk er jafnvel bara
með prímus og pönnu og svo eru fram-
reiddir herramannsréttir hver öðrum
betri. Að þessu sinni stoppuðum við
stutt í Bangkok því við vorum búin að
panta okkur gistingu á Koh Phangan
eyju sem er í Thailandsflóanum sjálf-
um eða austan við Thailandsskagann.
Margir þekkja Koh Samui en hún er
einmitt næsta eyja við. Eftir 8 tíma næt-
urferð í rútu og 2 tíma siglingu lentum
við loksins á þessari dásemdar eyju.
Og mikið vorum við glöð þegar við
renndum í hlað á Best Western hót-
elinu sem við höfðum pantað okkur
og sáum að sú gisting var ekkert slor.
Kreppan í Evrópu hefur bitið í Asíubú-
ana en það hefur verið mikil fækkun
á ferðamönnum sl. ár. Það voru mjög
fáir á hótelinu svo þeir buðu okkur
fínustu „bungalows“ í staðinn fyrir að
vera á hótelinu sjálfu. Við fengum því
sitthvort húsið örfá skref frá ströndinni
og svignandi pálmatrjám. Sólin lék við
okkur á hverjum degi og var vel heitt
alla dagana nema á aðfangadag og
grínuðumst við með að við hefðum
fengið alvöru jólahret en það gerði
svona mikinn storm og hellirigningu
og rafmagnið datt út og ekki var hundi
útsigandi fram að hádegi.
Við vorum búin að ræða við dætur
okkar áður en við fórum að jólagjafirn-
ar yrðu með öðru sniði þetta árið, þær
voru sáttar við það og fengu pening
frá nánustu ættingjum sem þær svo
tóku með sér. En við ákváðum þar sem
öllum finnst gaman að fá pínu pakka
að hvert okkar mætti fá einn pakka að
verðmæti 250 baht eða 1000 ísl. kr. en
það yrði að vera eitthvað sem nýttist
í ferðinni og tæki ekki mikið pláss.
Á aðfangadag skelltum við okkur í
sandalana og örlítið fínni föt og röltum
yfir á Coral, uppáhaldsveitingastað-
inn okkar og hvert okkar valdi sinn
jólaréttinn. Það var hamborgari, steikt
engifer með meira grænmeti, ind-
verskur kjúklingaréttur og nautakjöt
með kasjúhnetum. Við hjónin höfðum
á orði að við hefðum aldrei borgað
eins lítið fyrir jólamatinn. Eftirréttinn
fengum við okkur svo „heima“ en við
sátum úti í 25 stiga hita borðuðum
íslenskt súkkulaði og opnuðum hvert
okkar sinn pakkann Gleðin var alveg
jafn mikil þó að pakkinn væri bara
einn á mann.
Þarna nutum við lífsins í 10 daga og
mundum mæla með þessum stað við
hvern sem er. Eldsnemma á jóladag
héldum við af stað enn á ný en núna
til að fara enn sunnar og fórum við á
Phuket eyju sem er mörgum Íslending-
um að góðu kunn. Við vorum búin
að ákveða að fara til Patong sem er
stór ferðamannabær á vesturströnd
eyjarinnar. Ströndin þar er dásam-
leg með silkimjúkum sandi og skógi
vöxnum hlíðum umhverfis. Þetta er
vinsæll ferðamannastaður og sérstak-
lega þegar vesturlandabúar eiga frí
þá fyllist bærinn. Þarna ætluðum við
aldeilis að kveðja árið með stæl sem
við og gerðum. Gamlársdagur rann
upp og við röltum á veitingastað sem
var orðinn uppáhalds og þar pönt-
uðu dæturnar sér ma. krabba sem er
herramannsmatur og svo röltum við
niður á strönd. Það voru bókstaflega
ALLIR á ströndinni og meira að segja
var David Guetta mættur en hann var
á risa sviði úti á sjó og spilaði taktfasta
tónlist þannig að maður var næstum
tilbúin í spinningtíma. Þegar nálgaðist
miðnætti slógu menn ekki slöku við og
ef við hefðum ekki verið berfætt og ber-
leggjuð hefðum við allt eins getað verið
á Íslandi því þeir sprengja ekki minna
en við. Það er falleg hefð í Thailandi
(og fleiri löndum í Asíu) að á ára-
mótunum eða þegar verið er að fagna
einhverju sérstöku þá kveikja þeir á
„wishing light“ sem mundi útleggjast
á íslensku sem óskaljós. Við vorum
búin að ákveða að flugeldarnir okkar
að þessu sinni yrði eitt óskaljós sem við
mundum sleppa saman. Það var yndis-
legt að horfa á eftir ljósinu okkar hverfa
upp í himininn og sendum við hvert
okkar bæn með í huganum. Lifandi ljós
fylltu himininn og var þetta eins og við
værum stödd í draumi. Við flugum svo
frá Phuket eyju 3. janúar eftir ljúft líf í
sól, sjó og hita. Við eyddum 2 dögum
í Bangkok en 6. janúar eða á þrettánd-
anum flugum við svo yfir til Kolkata
(Calcutta) á Indlandi. Spenningurinn
var mikill því á Indlandi er auðvitað
hluti af rótum dætranna og okkur
langaði til að þær upplifðu landið á
jákvæðan hátt. Það var dásamlegt að
fölskyldan við Taj Mahal.
Dýrahljóðin út í skógi voru okkar aðventutónleikar.apar eru frjálsir í borgunum.birta rut Tiasha og Hanna björk atreye niður við Ganges fljót.