Reykjanes - 07.02.2013, Síða 14
14 7. febrúar 2013
Grindavík
ný hUgsUn í átt
að BetRi fRaMtíð
Nýlega unnu starfsmenn menntastofnana Grindavíkur að verkefninu „Ný hugsun í
átt að betri framtíð". Eitt af markmiðum
verkefnisins er að aðlaga skólanámskrár
í samræmi við nýjar áherslur í aðal-
námsskrám. Samhliða verður mótuð
ný skólastefna sveitarfélagsins. Að þessu
sinni hélt Stefán Jökulsson erindi um
læsi í víðum skilningi.
Ókeypis Blóðsykurmælar og strimlar fyrir sykursjúka
Þú nærð tökum á sykursýkinni
með því að mæla blóðskykurgildið þitt reglulega
Bjóðum Medismart Zapphiro blóðsykurmæla og
strimla frá Swissneska fyritækinu Lobeck Medical Ltd.
* Mjög einfaldur í notkun, stór skjár, léttur og
handhægur
* "No Coding" - þarf aldrei að núllstilla
(calibrera)
* Þarf mjög lítið magn til mælinga * 0,6 µl
* Mælir blóðsykur á bilinu 1,1-35 mmol/L
* Mæling tekur aðeins 5 sek.
* Geymir 480 mælingar í minni
* Hægt að tengja við tölvu
blóðsykursmælir
Félagar í FEB
fá 12% afslátt
af öllum vörum
Apótek Suðurnesja
er opið
Mánud. - föstud. 9:00-19:00
Laugardaga 14:00-18:00
Velkomin í lágt lyfjaverð
í Apóteki Suðurnesja
slysaVaRnakonUR í gRinda-
Vík gefa endURskinsMeRki
Fyrr í vetur komu slysavarnakon-ur úr Þórkötlu færandi hendi með endurskinsmerki handa
nemendum í 1. -3. bekk í Hópsskóla.
Stuttu áður hafði lögreglan vakið
athygli á að notkun endurskinsmerkja
væri verulega ábótavant hjá þessum
aldurshópi og brugðust þær skjótt við.
Nemendur í 2. V voru aldeilis glöð með
nýju endurskinsmerkin sín.
salan
gengUR í
BylgjUM
Það er oft mikið að gera í timbursölu Húsasmiðjunnar. Þar ræður ríkjum Guðmund-
ur Einarsson. Hvernig gengur salan
Guðmundur. Það er búið að vera ró-
legt í janúar eins og alltaf, enþað var
fínt að gera fyrir jólin. Þetta gengur
svona í bylgjum.
Guðmundur sagðist bjartsýnn á
að atvinnuástandið færi að batna.
Þetta ástand hlýtur að fara að lagast.
Salan er núna aðallega til
viðhaldsframkvæmda. Guðmundur
sagði að þeir væru reyndar að selja
þó nokkuð til eldissöðvarinnar á
Reykjanesi. Það væri einnig mikill
hugur í mörgum ferðaþjónustuað-
ilum og veitingastöðum að lagfæra
og bæta aðstöðuna til að geta tekið
á móti ferðamönnum. Það er greini-
lega mikill uppgangur í þessari þjón-
ustu sagði Guðmundur.
80's þeMa
á áRshátíð
gRindaVíkUR-
BæjaR 2. MaRs
Árshátíð Grindavíkurbæj-ar verður haldin laugar-daginn 2. mars næstkom-
andi í LAVA sal Bláa lónsins. Hún
tókst frábærlega vel í fyrra en þá
var þemað tónlist úr Eurovision
þar sem keppt var á milli stofn-
ana undir nafninu Grindovision.
Að þessu sinni verður þemað í
Grindovision hið eina og sanna
80's og verður því áfram söng-
keppni á milli stofnana bæjarins.
Sendur hefur verið út tölvupóst-
ur á alla starfsmenn Grindavíkur-
bæjar með nánari upplýsingum.
Skráningarfrestur starfsmanna á
árshátíðina er til 15. febrúar eru
að sjálfsögðu allir hvattir til þess
að mæta. Þátttökutilkynningar
skulu sendar á formann árshá-
tíðarnefndarinnar á netfangið
gudbjorg@grindavik.is
(heimasíða Grindavíkur)
dögUn fagnaR
Framkvæmdaráð Dögunar fagnar niðurstöðu EFTA dómstólsins í
Icesave-málinu og óskar landsmönn-
um öllum til hamingju með þann
mikla lýðræðissigur sem í dómnum
felst.
sex á alþingi?
Það er útlit fyrir að fjölmenn sveit Suðurnesjamanna setjist á bekki Alþingis eftir næstu kosningar.
Þrír Suðurnesjamenn komast örugg-
lega fyrir Sjálfstæðisflokkinn, Ragn-
heiður Elín, Ásmundur ogVilhjálmur.
Miklar líkur er að Silja Dögg komist
fyrir Framsókn. Oddný á nokkuð ör-
uggt sæti víst fyrir Samfylkinguna.
Björt framtíð gæti náð Páli Vali inn
á þing , miðað við gott gengi í skoð-
anakönnunum. Ótrúlegt er að önnur
framboð komi manni að.
Suðurnesjamenn koma með sex á
Alþingi eftir kosningar.
Snjó kall inn skrif ar: