Reykjanes - 21.02.2013, Qupperneq 4
4 21. febrúar 2013
StærSti SandbláSturSklefi
á landinu Stendur ónotaður
vegna verkefnaSkortS
Fúsi ehf er sandblástursfyrirtæki í Sandgerði. Það var stofnað í byrjun árs 2005 og er því átta
ára. Flest árin hefur fyrirtækið haft
nóg að gera og veltan að jafnaði verið
yfir 100 milljónir árlega. Einn til tvö
mánuði á ári í mesta skammdeginu
hefur vinnan verið minni og tíminn
notaður til viðhaldsverka.
Eigendur Fúsa gerðu ítrekaðar
tilraunir til að kaupa stóran sand-
blástursklefa á Ásbrúarsvæðinu án
árangurs. Þá hófust Fúsamenn handa
og byggðu stærsta sandblástursklefa á
landinu. Stærð hans er 16x6x6. .
Svona langur blástursklefi gefur
mörg tækifæri. Hægt er að taka inn
stórvirkar vinnuvélar allt að 4.5 m
háar. Einnig löng rör ofl. Eftir hrun
hafa margar vinnuvélar verið fluttar
úr landi og þörfin á þeim vettvangi
því minni. Sömuleiðis hafa verkefni
sem vænst var að yrðu til með til-
komu álvers í Helguvík engin orðið
eins og menn vita. En það var ein af
ástæðum þess að farið var í svo stóra
framkvæmd sem klefinn er. Það sem
gerir þennan klefa einstakann er að
hægt er að keyra tækjunum í gegn um
hann inn í málningarkerfið og út úr
húsinu annarstaðar.
En undanfarið hafa atvinnuhorfur
versnað. Fyrirtækin í viðskiptahópn-
um virðast halda að sér höndum og
viðhaldi er greinilega slegið á frest.
Það á við olíu og orkufyrirtækin,
Landsvirkjun og fyrirtæki í sjávarút-
vegi þar sem algjört stopp virðist vera
á viðhaldsframkvæmdum.
Í haust þurfti að grípa til uppsagna.
Í september hættu allir starfsmenn
utan eins eiganda, Sigfúsar Gunnars-
sonar. Í fyrravetur var fyrirtækið
stopp í tvo mánuði. En nú er þetta
mun verra.
Fúsamenn hafa áratuga reynslu en
þeir sáu um sandblástur á vegum Ís-
lenskra Aðalverktaka frá árinu 1983.
Undanfarin ár hefur mest verið
unnið fyrir olíufyrirtækin og þá víða
um land. Í sumar var til að mynda
unnið á Patreksfirði. Orkufyrirtækin
hafa einnig verið góðir viðskiptavinir
og þess má geta að fyrsta verkefni Fúsa
ehf voru tankar Orkuveitu Reykjavík-
ur í Perlunni árið 2005. Þeir unnu til
að mynda við Búrfellsvirkjun sumarið
2008.
Sl. sumar fór starfsmannafjöldi fyr-
irtækisins upp í 16 manns sem er það
mesta sem verið hefur. Að jafnaði hafa
starfað 6-7 manns allt árið. Allt var
gert sem hægt var til að halda þess-
um frábæru starfskröftum í vinnu. En
allt kom fyrir ekki. Nú eftir langan og
strangan vetur er aðeins að birta til því
með vorinu hefst vinna við tanka hjá
Eldsneytisafgreiðslunni á Keflavíkur-
flugvelli. Þar gætu hugsanlega orðið til
þrjú störf. Silla E.
um borð í þrælagaleiðunni
Ég hitti unga konu um daginn. Unga konan er gift, á eitt barn og annað á leiðinni. Þau hjónin
keyptu sína fyrstu íbúð fyrir nokkrum
árum og tóku verðtryggt lán. Unga
konan stóð í þeirri trú að það væri
betra að kaupa en leigja. „Alltaf betra
að fjárfesta og eiga eitthvað“, eða hvað?
Unga flutti inn og byrjaði að borga af
íbúðinni. Eftir nokkra mánuði fór unga
konan yfir bókhald heimilisins og sá að
lánið var orðið talsvert hærra en það
var þegar hún skrifaði undir lánasamn-
inginn. Hvernig má það vera? Jú, hún
fór í rannsóknarvinnu og uppgötvaði
töfra verðtryggingarinnar.
Varanlegt frí á
kostnað annarra
Er þetta heilbrigt kerfi? Svarið er nei.
Það er ekki í lagi að fjármagnseigendur
séu bæði með háa vexti á lánum og
verðtryggingu. Þeir eru bæði með belti
og axlabönd. Það hlýtur að vera frábært
að vera lánveitandi í dag. Þeir lána pen-
inga og fá þá margfalda til baka án þess
að hreyfa legg né lið. Lánveitandi getur
hreinlega farið í varanlegt frí og látið
peningana vinna fyrir sig, eða réttara
sagt skuldarann. En hver er skuldar-
inn? Það er þessi venjulegi Íslendingur.
Ég og þú. Manneskjan sem vinnur og
vinnur og borgar og borgar en eignast
lítið sem ekki neitt. Borgar hús sitt a.
m. k. tvöfalt til baka á starfsævinni.
Ferð sem verður að fara
Þetta er ekki réttlátt kerfi, sú stað-
reynd blasir við. En hvað er hægt að
gera? Við getum ekki afnumið verð-
trygginguna eina og sér. Við verðum að
taka peningakerfið okkar í heild sinni
til gagngerrar endurskoðunar. Við
þurfum að ná tökum á verðbólgunni,
vöxtum, endurskoða lífeyrissjóðskerfið
og Íbúðalánasjóð og skapa heilbrigt
samkeppnisumhverfi á fjármálamark-
aði. Verkefnið er risavaxið. En við get-
um gert breytingar og við verðum að
gera breytingar. Fjármálakerfið okkar
er aðeins mannanna verk. Það kostar
hugrekki og kjark að breyta og þann
kjark hefur Framsókn.
Það er dýrt að
gera ekki neitt
Fyrsta skrefið í þessu verkefni er að
setja fram markmið og síðan tekur við
vinna við að ná fram settum markmið-
um. Við þurfum að finna leiðir og við
vitum að þær verða ekki án hindrana.
Ferðalagið verður torsótt, sársauka-
fullt og kostnaðarsamt. En það mun
verða okkur mun dýrkeyptara að gera
ekki neitt. Ef við gefumst ekki upp, þá
komumst við á leiðarenda.
Ég segi upp!
Verðtryggingunni er viðhaldið
af okkur sjálfum. Við látum fjár-
málastofnanir plata okkur um borð
í galeiðuna með fagurgölum. Síðan
tekur raunveruleikinn við. Við sitjum
neðan þilja, sjáum ekki sólina, róum
áfram í þeirri von að ná að landi og
að eiga erindi sem erfiði. Á meðan
sitja fjármagnseigendur uppi á dekki,
sötra svaladrykki og sóla sig. Þetta er
ekki sanngjarnt. Þessu verðum við
að breyta. Ég segi hér með upp sem
galeiðuþræll!
Silja Dögg Gunnarsdóttir
2. sæti hjá Framsóknarflokknum
í Suðurkjördæmi
Selma hrönn fær
verðSkuldaða
viðurkenningu
Selma Hrönn Maríudóttir býr í Sandgerði. Ég mælti mér mót við hana og þrátt fyrir að vera
önnum kafin gaf hún sér tíma til að
spjalla við mig yfir kaffibolla. Hún
er eigandi Tónafóðs ásamt manni
sínum Smára Valtý Snæbjörnssyni.
Hún er rafeindavirki, skáld og tón-
skáld. Hún fékk nýlega verðlaun fyrir
„Grallarana“ sína.
„Þetta eru verðlaun sem eru veitt
í tengslum við sameiginlegt átak
netöryggismiðstöðva í Evrópu til
að vekja athygli á gæðaefni á netinu
fyrir börn og unglinga, “ sagði Selma
Hrönn Maríudóttir, sem hlaut í byrj-
un mánaðarins verðlaun SAFT fyrir
besta barnaefnið á netinu árið 2013.
SAFT er vakningarátak um örugga
og jákvæða tölvu- og nýmiðlanotkun
barna og unglinga á Íslandi.
Verðlaunin fékk vefsíðan Grallar-
ar.is en hún byggist á bókum Selmu.
Bækurnar eru orðnar fimm, sú sjötta
á leiðinni og eru þær mjög skemmti-
legar með fræðsluívafi. Fjórar þeirra
hafa verið þýddar á táknmál. Bækurn-
ar eru um kisurnar Glingló og Dabba
og hundinn Rex. Þau eru öll til í raun-
veruleikanum og búa hjá Selmu og
fjölskyldu.
Bækurnar gerast víðsvegar um land
og þau hafa farið um t. d Sandgerði og
sveitirnar, Vestmannaeyjar og Stykk-
ishólm. Þar hafa þau ásamt vinum
sínum fræðst um margt í umhverf-
inu. Selma hefur ekki aðeins gefið
út bækurnar. Í fyrra gaf hún svo út
smáforrit í vefverslun Apple á ensku
um þá vinina og íslensk útgáfa er í
vinnslu. Á ensku nefnast Grallararnir
Perky Pranksters og er þegar orðið
vinsælt efni.
Erlendis er hópur kennara, foreldra
og forritara sem skoða svona mál
af kostgæfni og hún nýtur mikillar
athygli þeirra. Einnig fær hún leið-
beiningar um það sem betur mætti
fara og hyggst nota þær í íslensku
útgáfunni til að gera hana enn betri.
Í Grunnskólanum í Sandgerði hafa
þær stöllur og kennarar Erla Björg
Rúnarsdóttir og Margrét Sigurvins-
dóttir útbúið vinnubækur í tengsl-
um við Grallarabækurnar, enda eru
þær að mínu áliti hið besta námsefni.
Undirrituð hefur átt bækurnar og þær
hafa verið skoðaðar í kjölinn af barna-
börnunum.
Selma hefur fengið styrki frá Menn-
ingarráði Suðurnesja, Mannréttinda-
ráði Reykjavíkurborgar og Þróunar-
sjóði námsgagna. Það hjálpar henni
að þróa verkefnið enn frekar.
Hugmyndin að grallarabókunum
fæddist fyrir tíu árum en fyrsta bókin
kom út 2006. Hún segist hafa gefið sér
tíu ár til að þróa þær og má segja að
það hafi ræst og miklu betur. Í ár er
henni boðið erlendis með verkefnið
þar sem keppt verður í Evrópukeppni
um besta barnaefnið á netinu.
Ég mæli með því að þeir sem eru
nettengdir kíki inn á síðuna Grallar-
ar.is
Silla E
„Þetta eru verðlaun sem
eru veitt í tengslum við
sameiginlegt átak netör-
yggismiðstöðva í Evrópu
til að vekja athygli á
gæðaefni á netinu fyrir
börn og unglinga,“ sagði
Selma Hrönn Maríudótt-
ir, sem hlaut í vikunni
verðlaun SAFT fyrir besta
barnaefnið á netinu árið
2013. SAFT er vakn-
ingarátak um örugga
og jákvæða tölvu- og
nýmiðlanotkun barna og
unglinga á Íslandi.