Reykjanes - 21.02.2013, Blaðsíða 10
21. febrúar 2013
SjálfStæðiS-
menn funda
Í dag fimmtudaginn 21. febrúar verður Landsfundur Sjálfstæðis-
flokksins settur. Á fundinum verður
mörkuð stefna flokksins fyrir kosn-
ingarnar í vor ásamt því að kosning fer
fram um forysrtu flokksins. Einn af
mestu leiðtogum Sjálfstæðisflokksins
var Ólafur Thors. Hann var merk-
isberi þeirra góðu gilda sem Sjálf-
stæðisflokkurinn var stofnaður til að
halda á lofti og berjast fyrir. Vonandi
markar Landsfundurinn stefnuna í
hans anda.
10
framboðSliSti
Samfylkingarinnar
Kjördæmaráð Samfylkingar-innar-Jafnaðarmannaflokks Íslands samþykkti á fundi um
helgina lista flokksins fyrir Alþing-
iskosningarnar 2013. Forvalið fór fram
16. og 17. nóvember og fyrstu fjögur
sætin í úrslitunum voru bindandi.
Oddný Harðardóttir, alþingismaður
og þingflokksformaður Samfylkingar-
innar leiðir listann.
Listinn er sem hér segir:
1. Oddný G. Harðardóttir, alþingis-
maður, Garði.
2. Björgvin G. Sigurðsson, alþingis-
maður, Árborg.
3. Sæti Arna Ír Gunnarsdóttir, félags-
ráðgjafi og bæjarfulltrúi, Árborg.
4. Árni Rúnar Þorvaldsson, kennari
og bæjarfulltrúi, Höfn.
5. Ólafur Þór Ólafsson, forstöðumað-
ur og bæjarfulltrúi, Sandgerði.
6. Bryndís Sigurðardóttir, fram-
kvæmdastjóri, Hveragerði.
7. Bergvin Oddsson, nemi, Reykja-
vík.
8. Borghildur Kristjánsdóttir, bóndi,
Rángárþing ytra.
9. Hannes Friðriksson, Innan-
húsarkitekt, Reykjanesbæ.
10. Gunnar Hörður Garðarsson, nemi,
Reykjanesbæ.
11. Marta Sigurðarsóttir, bæjarfulltrúi,
Grindavík.
12. Hróðmar Bjarnason, fram-
kvæmdastjóri, Sveitafélagið Ölf-
uss.
13. Dagmar Lóa Hilmarsdóttir, Við-
skiptafræðingur af alþjóðamark-
aðssviði, Reykjanesbæ.
14. Muhammad Azfar Karim, kennari,
Rangárþing ytra.
15. Guðrún Ingimundardóttir, stuðn-
ingsfulltrúi, Höfn.
16. Ingimundur B. Garðarsson, for-
maður félags kjúklingabænda,
Vatnsendi.
17. Soffí Sigurðardóttir, húsfrú, Ár-
borg.
18. Gísli Hermannsson, fyrrverandi
línuverkstjóri, Árborg.
19. Eyjólfur Eysteinsson, Formaður
félags eldri borgara á Suðurnesj-
um, Reykjanesbæ.
20. Margrét Frímannsdóttir, fangels-
isstjóri á Litla Hrauni, Kópavogi.
Pistill frá Sigríði Snæbjörnsdóttur
Forgangsröðun fjármuna ríkisins hefur því miður verið ábótavant og heilbrigðismál hafa alls ekki
fengið nægilegt vægi. Það er ekki horft
á fjármuni sem fara í heilbrigðismál
sem fjárfestingu. Þessu þarf að breyta.
Sama má segja um fleiri málaflokka
eins og t. d. menntamál og löggæslu.
Hins vegar hefur verið veitt fé í ýmsa
málaflokka t. d. stofnanir sem sýsla
(misvel) með fé og mættu að margra
mati bíða. Á sama tíma og heilbrigðis-
starfsfólk er við það að gefast upp vegna
álags og fjárhagsörðugleika , heyrist
að verið sé að greiða bónusa upp á
tugi þúsunda til starfsfólks ákveðinna
bankastofnana og menningarstofnanir
eru skornar niður úr snörunni. Er furða
þó maður spyrji hvað sé í gangi.
Í langan tíma hefur verið ljóst hvert
stefndi í heilbrigðismálum þjóðarinn-
ar. Margoft hefur verið bent á mögu-
legar afleiðingar svo harkalegs niður-
skurðar sem við höfum orðið vitni
að á undanförnum árum. Sparnaður
og niðurskurður um 25% á flestum
heilbrigðisstofnunum á s. l.4-5 árum
býður vart upp á annað en fækkun
sjúkrarúma, aukið álag, minnkandi
þjónustu, aukna óánægju starfsfólks og
versnandi vinnuaðstöðu svo eitthvað
sé nefnt. Helst mætti líkja stöðu okk-
ar stjórnenda við að vera með tifandi
tímasprengju í höndum.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
hefur álag aukist jafnt og þétt um leið
og fjárveitingar hafa minnkað hlutfalls-
lega. Starfsfólk er þreytt en hefur þrátt
fyrir það staðið sig aðdáunarlega vel
og lagt bæði metnað og alúð í störf sín.
Heilbrigðisstéttir hafa orðið útundan
í baráttu um laun og kjör og þá ekki
síst kvennastéttir eins og hjúkrunar-
fræðingar. Það hefur verið sýnt fram
á að laun sambærilegra stétta hvað
varðar menntun og ábyrgð, eins og t.
d. háskólamenntaðs starfsfólks stjórn-
arráðsins, er með 20% hærri laun en
hjúkrunarfræðingar þegar allar breytur
eru hafðar til hliðsjónar. Auðvitað getur
slíkur ójöfnuður ekki gengið lengur.
Það verður að setja upp örugga og
traustvekjandi áætlun um hvernig slíkt
skuli leiðrétt.
Í kjölfar uppsagna um 300 hjúkr-
unarfræðinga á LSH, hefur náðst
samkomulag um tæplega 7% með-
altalshækkun í stofnanasamningum.
Ríkið mun bæta tæp 5% en LSH þarf
að finna leiðir til að bæta það sem á
vantar. Einhvers staðar mun það koma
fram. Í dag,15. febrúar, er óljóst hversu
margir hjúkrunarfræðingar hafa dregið
uppsagnir sínar til baka. Það er hins
vegar nokkuð víst að ákveðin skriða
er farin af stað sem erfitt er að sjá fyrir
endann á. Á eftir hjúkrunarfræðingun-
um koma geislafræðingar og lífeinda-
fræðingar. Allar heilbrigðisstofnanir
fylgjast grannt með framvindu mála
ásamt öllum kvennastéttum á landinu
utan heilbrigðisgeirans.
Varðandi mikla fjölmiðlaumfjöllun
um álag á Landspítalanum (LSH) er
varla hægt að segja að rætt hafi verið um
aðstoð eða breytta verkaskiptingu milli
LSH og Kragastofnananna (Suðurnes,
Akranes og Selfoss). Kannski er þessi
staða sem komin er upp, gott dæmi
um að varasamt getur verið að setja öll
eggin í sömu körfuna. Er ekki kominn
tími til að endurskoða hvaða þjónustu
skuli veita hvar og hvenær?
Ég held ég tali fyrir munn margra
þegar ég segi að tími sé kominn til að
forgangsraða algjörlega upp á nýtt í
næstu fjárlögum ríkisins.
Reykjanesbæ,15.02.2013
Sigríður Snæbjörnsdóttir
Framtíðarsýn er lykilatriði
markaðS-og atvinnumálanefnd
garðS fundaði nýlega
• Farið yfir störf nefndarinnar frá
stofnun og framtíðarsýn hennar.
• Markaðssetning á Garðinum fyr-
ir fyrirtæki. T. d. leggja áherslu á
frábæra staðsetningu fyrir rekstur
tengdum flugi .
• Hvað sveitarfélagið getur gert til
að efla ferðamennsku innan bæj-
armarka. T. d. upplýsingamiðstöð,
kynningarefni um sveitarfélagið,
hestaferðir, strandveiði, aðstaða fyrir
sjósund og kafara.
• Hluti af störfum nefndarinnar er að
hjálpa nýsköpunarfyrirtækjum að
hefja rekstur innan sveitarfélagsins.
Nefndin leggur til að hafinn verði
undirbúningur á kynningarefni á
Sveitarfélaginu sem taka á þessum
þætti.
• Hefja undirbúning fyrir fyrirtækja-
sýningu fyrirtækja í Garði stefnan
sett á haustið 2013. Formanni falið
að senda atvinnurekendum í Garði
bréf.
• Nefndin Leggur áherslu á að Sveitar-
félagið Garður berjist fyrir því að
Garðvangur verði áfram starfræktur
innan Garðs.
Á síðasta fundir bæjarstjórnar Garðs
voru þessi mál rædd og bókaði minni-
hluti N-listans eftirfarandi:
N listinn tekur heilshugar undir að
fara þarf í grunnstefnumótun og mark-
miðssetningu í ferðaþjónustu. N listinn
bendir á að á fundi bæjarstjórnar þann
4. maí 2011 bókaði N listinn. ”Til að
skapa jákvæða athygli Garðs og efla
ferðaþjónustu í bænum þarf fleira til
en auglýsingaskilti á Rósaselstorgi. Vel
ígrunduð og meðvituð stefnumótun
að framtíðarsýn er lykilatriði“ . Til
þess að gera aðstöðu fyrir sjósund,
strandveiðar ofl. þarf að byggja upp
nýja snyrtingu sem gæti líka hýst upp-
lýsingamiðstöð. Einnig er mikilvægt að
tengja Byggðasafnið Uppsátrinu við
Lambastaði og að Menningasetrinu
að Útskálum með göngustíg. Gera þarf
heildstæða kostnaðaráætlun samhliða
stefnumótunarvinnu og ákveða leiðir
til fjármögnunar
Eignaumsjón er óháður fagaðili þegar kemur að rekstri húsfélaga og rekstrarfélaga – og því frábær lausn fyrir eigendur atvinnuhúsnæðis. Í okkar umsjá
ertu í góðum höndum - við sjáum um fjármálin, fundina, undirbúning framkvæmda og viðhalds og annarra þátta sem þarf að leysa.
Er húsfélagið í lausu lofti ?
»
Vantar óháðan aðila til að annast málefni húsfélagsins eða rekstrarfélagsins ?
Eignaumsjón hf . – Suður landsbraut 30 – Sími 585 4800 – afgreids la@eignaumsjon. is – www.eignaumsjon. is