Reykjanes - 07.03.2013, Side 4
4 7. mars 2013
flutningur öldrunarþjónustu til sVeitarfélaga
Velferðarráðherra skipaðI nefnd á árinu 2011 um flutning málefna aldraðra til sveitarfélaga.
Nefndin er fjölmenn og skip-uð fulltrúum hlutaðeigandi ráðuneyta, Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga og annarra hags-
munaaðila svo sem fulltrúum félaga-
samtaka aldraðra, samtaka fyrirtækja
í heilbrigðisþjónustu og stéttarfélaga
starfsmanna. Hlutverk nefndarinnar
er að hafa umsjón með undirbúningi
yfirfærslunnar og vera vettvangur til
skoðanaskipta aðila um verkefnið og
einstaka þætti þess. Ennfremur er það
hlutverk nefndarinnar að miðla upp-
lýsingum um framvindu verkefnisins
til hagsmunaaðila. Nefndin er ólaunuð.
Lögð er áhersla á að efla sveitarstjórn-
arstigið, meðal annars með tilfærslu
verkefna frá ríki til sveitarfélaga, þar
sem hlutverk sveitarfélaga á sviði vel-
ferðarþjónustu við börn, fatlað fólk,
aldraða og fjölskyldur verði aukið. Enn
fremur er áhersla lögð á að fólk geti
búið heima eins lengi og kostur og vilji
er til, meðal annars með því að sam-
þætta heimaþjónustu og heimahjúkr-
un. Reiknað er með því að nefndin skili
áliti árið 2015.
-Hvað felst svo í tilfærslu á þjónustu frá
ríki til sveitarfélaga?
Þótt ríkið fari með yfirstjórn og fjár-
mögnun mikilvægra þjónustuþátta sjá
sveitarfélög nú þegar um framkvæmd
mikils hluta öldrunarþjónustu. Þá sjá
einnig sjálfstæðir rekstraraðilar um
rekstur margra öldrunarstofnana.
Flutningurinn felst því meira í tilfær-
slu á fjármögnun frá ríki til sveitarfé-
laga en flutningi á rekstri og þjónustu.
Hjúkrunar- og dvalarheimili, dagvist
aldraðra, endurhæfing og hvíldarinn-
lagnir flytjast yfir til sveitarfélaga.
Sömuleiðis heimahjúkrun, en komin
er jákvæð reynsla frá Reykjavík, Ak-
ureyri og Höfn í Hornafirði á flutning
heimahjúkrunar frá ríki til sveitarfé-
laga ,
Einnig er reiknað með að hjúkr-
unarrými á sjúkrahúsum flytjist yfir
til sveitarfélaga.
Mat á vistunarþörf á hjúkrunarheim-
ilum verði framvegis hjá sveitarfélög-
um.
Yfirstjórn og eftirlit með framkvæmd
þjónustu verði áfram hjá ríkinu.
Fara þarf fram mat á umfangi og
kostnaði við öldrunarþjónustu, fjölda
þeirra sem þurfa á þjónustu að halda
og tekið tillit til aldurs einstaklinga.
Þá þarf að skoða möguleika á
tengslum svokallaðs RAI-mats, sem
mælikvarða á hve mikla umönnun
einstaklingar á hjúkrunarheimilum
þurfa, og vistunarmats sem ákvarðar
hvort einstaklingar eru taldir þurfa
hjúkrunarrými.
Eitt umfangsmesta verkefnið við yf-
irfærsluna snýr að því að endurskoða
fyrirkomulag á greiðslu til þeirra sem
búa á hjúkrunarheimilum og afnema
svonefnt vasapeningakerfi .
Í stað þess að allar lífeyrisgreiðslur
fari í gegnum Tryggingastofnun er gert
ráð fyrir því að íbúar hjúkrunarstofnana
fá greiðslurnar beint frá Tryggingastofn-
un og greiði sjálfir húsaleigu og annan
kostnað sem fylgir venjulegu heimilis-
haldi svo sem mat, þvott og fleira.
Gerðir verða þjónustusamningar við
öll hjúkrunarheimili áður en tilfærslan
kemur til framkvæmda.
Flutningur öldrunarþjónustu til
sveitarfélaga er viðamikið viðfangsefni
sem krefst mikillar skipulagningar og
því er mikilvægt að taka þann tíma sem
verkefnið krefst.
Það er réttlætismál og löngu tíma-
bært að endurskoða greiðslufyrir-
komulag einstaklinga sem dvelja á
hjúkrunarheimilum og afnema vasa-
peningakerfið. Heimilismenn greiði
sjálfir húsaleigu og annan kostnað sem
fylgir heimilishaldi.
Með góðum fyrirvara þarf að liggja
fyrir fjárhagsrammi yfirfærslunn-
ar. Meta þarf kostnaðaráhrif svo sem
fjölgunar aldraðra og greina veikleika
fjármögnun þjónustunnar eins og hún
er í reynd.
Forstjóri Heilbrigðisstofnunar
Suðurnesja talar nú fyrir því að HSS
taki að sér þjónustu við eldri borgara
hér á svæðinu og setur þetta í samengi
við ónotaðar skurðstofur. En það er haft
eftir forstjóra að “Það er verið að skoða
hvort staðan í málinu sé að rífa niður
tvær skurðstofur, innréttingar sem kosta
nokkra tugi milljóna og koma annarri
starfsemi þar fyrir í staðinn”.
Kveður nú við annan tón en þegar
forstjórinn tók við rekstri HSS og lét þá
verða sitt fyrsta verk að breyta áætlun-
um um nýtingu D- álmu sem að áætlað
hafði verið að nota sem langlegudeild
þar til að fjölgað hefði verið hjúkr-
unarheimilum á Suðurnesjum.
Sveitarfélögin og ríkið eru að móta
framtíðarstefnuna í málefnum aldraðra
hér, sem annarsstaðar á landinu. Það er
síðan spurningin hver ræður stefnunni
hér, forstjórinn eða sveitarfélögun og
ríkið.
Eldri borgarar á Suðurnesjum styðja
stefnu þá sem að ríkið og sveitarfélögin
eru að móta og mælum með því að
þjónusta við okkur verði á ábyrgð og
stjórnun sveitarfélaga hér á Suðurnesj-
um í samræmi við áætlanir sem unnið
er að af kjörnum fulltrúum okkar í
sveitarstjórnum.
Núna er í byggingu hjúkrunarheimili
fyrir 60 íbúa á Nesvöllum fyrir okkur
Suðurnesjamenn.
Við fögnum þeirri framkvæmd.
Hjúkrunarheimilið nýja að Nesvöll-
um köllum við hjúkrunarheimili
framtíðarinnar. Áhersla er lögð á að
innbú og öll aðstaða verði sem líkast
heimilum okkar.
Það er þegar ljóst að fljótlega verður
að fjölga úrræðum fyrir aldraða sem
ekki geta lengur haldið heimili og að
fjölga verður hjúkrunarheimilum enn
frekar.
Tímabært er að gera sér ljóst hvar og
með hvaða hætti verður best staðið að
fjölgun úrræða fyrir þá sem ekki geta
lengur verið heima hjá sér.
Eins og áður sagði er það skoðun
eldri borgara að best verði fyrir okkur,
að samstarf sveitarfélaga á Suðurnesj-
um um rekstur hjúkrunarheimilanna
verði áfram eins og verið hefur.
Eyjólfur Eysteinson
námskeið hjá Bruna-
Vörnum suðurnesja
Stórt námskeið er í gangi þessa dag-ana hjá Brunavörnum Suðurnesja í samstarfi við Slökkvilið Isavia
þetta námskeið byrjaði í fyrra og stóð
yfir í 6 vikur, en hófst svo aftur núna í
febrúar eftir hlé og lýkur 16 mars.
Tíu slökkviliðsmenn munu ljúka
þesssu námi, sex frá Brunavörnum
Suðurnesja og fjórir frá slökkviliði Isavia
Keflavíkurflugvelli.
Þetta nám er mjög yfirgripsmikið
og krefjandi, það er bæði bóklegt og
verklegt og tekur yfir flest alla þætti sem
slökkvliðsmenn þurfa að kljást við á
vettvangi eða geta átt von á S. S Reykköf-
un, Björgun úr bílflökum, Mengunar-
slys, Vatnsöflun á brunavettvang eða
björgun fólks úr erfiðum aðstæðum.
Íbúar í Garðinum urðu varir við
slökkviliðsmenninina í síðustu viku en
þá var kveikt í íbúðarhúsinu á Skaga-
braut 25(Móar). En slökkvliðið hafði
stuttu áður fengið beiðni/heimild til að
æfa sig á þessu húsi og brenna svo niður.
Mikið viðbragð var við húsið þennan
dag og æfðu slökkvliðsmenn reykköfun
í húsinu og að bjarga fórnalömbum út.
Að lokum var svo alveg kveikt í húsinu
og því leyft að brenna niður. Einnig
höfðu slökkvliðsmenn mikið viðbragð
sökum nálægðar við önnur hús.
Á fá svona hús til að æfa hefur mikla
þýðingu fyrir slökkvilið og gefur svona
stóru námskeiði ennþá meira vægi
Oddný G. Harðardóttir 1. sæti Samfylkingar.
enn sterkari suðurnes
Þann 9. mars 2012 var samþykkt í ríkisstjórn tillaga mín um að komið yrði á samstarfshóp ráðu-
neyta, sem fjallaði um höfnina í Helgu-
vík og legði mat á aðstæður og kostnað
við nauðsynlegar framkvæmdir. Fram
hafði komið ósk eftir þátttöku ríkisins
við það að gera innviði á iðnaðarsvæð-
inu þannig úr garði að það gæti þjónað
fyrirtækjum með starfsemi sem krefð-
ist breytinga á höfninni. Þar sem ljóst
væri að Reykjanesbær gæti ekki einn
staðið undir kostnaði til að mæta þeim
kröfum á uppbyggingartíma svæðisins,
þyrfti aðkomu ríkisins. Starfshópurinn
skipaður fulltrúum iðnaðarráðuneytis,
fjármálaráðuneytis og innanríkisráðu-
neytis fjallaði á sama veg um iðnaðar-
svæðið á Bakka í Norðurþingi enda
svipaðar aðstæður á báðum stöðum
hvað hafnirnar varðar. Í báðum tilfell-
um er miðað við aðkomu ríkisins þegar
ljóst verður að fyrirtæki taki til starfa á
svæðunum og allir nauðsynlegir samn-
ingar undirritaðir. Fyrirsjánlegar tekj-
ur verði af höfnunum sem geri þeim
kleift að greiða niður skuldir og aðstoð
ríkisins.
Eftirsóknarvert
starfsumhverfi
Síðastliðið haust fór matið á Helgu-
víkurhöfn fram og ríkisstjórnin sam-
þykkti á föstudagsmorguninn í síðustu
viku að gengið yrði til viðræðna við
Reykjanesbæ um framhald málsins
sem síðan yrði afgreitt með lögum frá
Alþingi. Þar með er ljóst að ekki mun
standa á hafnarframkvæmdum til að
gera þjónustu mögulega við þau fyr-
irtæki sem hefja vilja starfsemi sína
í Helguvík. Nú þegar hafa ráðherrar
í ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur
staðfest fjárfestingarsamninga vegna
álvers í Helguvík og einnig vegna
kísilvers. Engin starfsemi er hafin en
nú er ljóst að verði hún ákveðin mun
ríkið koma að málum er varðar hafnar-
framkvæmdir. Sú ákvörðun ætti að gera
iðnaðarsvæðið enn eftirsóknarverðara
því með henni er tryggt að á hafnar-
fræmkvæmdum muni ekki standa.
Byggingarsaga
Bygging olíuhafnar í Helguvík hófst um
miðjan níunda áratuginn en þær fram-
kvæmdir voru kostaðar af Mannvirkja-
sjóði NATO. Þessi hluti hafnarinnar er
nú rekinn af Landhelgisgæslunni. Á
árunum 1994-1997 var byggður við-
legukantur til almennra nota í skjóli
olíubryggjunnar, framkvæmd sem
tengdist einkum byggingu fiskimjöls-
verksmiðju við höfnina. Síðasti áfangi í
uppbyggingu Helguvíkurhafnar tengist
iðnaðaruppbyggingu á svæðinu. Fyrst
voru það áform um stálpípuverk-
smiðju sem urðu til þess að landið
var lækkað umtalsvert og grjót nýtt
til uppbyggingar sjóvarnargarða. Nú
síðast á árunum 2006-2009 var unnið
að framkvæmdum við höfnina vegna
áforma um byggingu álvers.
Mikill fjármagnskostnaður
Reykjanesbær óskaði eftir aðkomu rík-
isins bæði árið 2006 og 2009. Í bæði
skiptin var erindinu hafnað. Þrátt fyr-
ir að ríkisstuðningi hafi verið hafnað
og þrátt fyrir drátt á því að fyrirtæki á
iðnaðarsvæðinu við Helguvík tækju til
starfa, tók Reykjanesbær ákvörðun um
að ráðast í umtalsverðar fjárfestingar.
Þess vegna situr höfnin nú uppi með
mikinn fjármagnskostnað með litlum
tekjum á móti. Ef beðið hefði verið
með framkvæmdir þar til ljóst væri
að starfsemi fyrirtækjanna færi af stað
væri fjárhagsstaðan öllu betri.
Áherslur jafnaðarmanna
Í framhaldi af ríkisstjórnarsamþykkt-
inni frá 9. mars 2012 var lagður grunn-
ur að samstarfi ráðuneyta og sveitar-
félaga á Suðurnesjum um markvissa
uppbyggingu á iðnaðarsvæðinu í
Helguvík. Það hefur nú skilað sér
í mati og greiningu á þörfum fyrir
hafnarframkvæmdir og kostnaði við
þær ásamt ákvörðun ríkisstjórnar um
að fela fjármála- og efnahagsráðherra
að hefja viðræður við Reykjanesbæ um
aðkomu ríkisins að hafnarframkvæmd-
um í Helguvík. Þegar sjálfstæðismenn
skipuðu bæði samgönguráðuneytið og
fjármálaráðuneytið árið 2006 reyndist
torsótt að sækja nauðsynlega aðstoð til
ríkisins fyrir iðnaðarsvæðið í Helguvík.
Nú er hins vegar tekið með festu og
skynsemi á málunum og þau afgreidd
í réttri röð. Af þessari sögu sannast enn
að það eru áherslur jafnaðarmanna og
markviss vinnubrögð þeirra sem gefa
Suðurnesjamönnum byr undir báða
vængi.