Reykjanes - 07.03.2013, Blaðsíða 6
6 7. mars 2013
Traust geymsla
– og öruggur flutningur alla leið!
Frystigámar
til sölu eða leigu
Klettagörðum 5 | 104 Reykjavík | Sími 568 0100
AT
H
YG
LI
E
H
F.
-0
2-
13
Eigum á lager 20 og 40 ft. frystigáma.
Bjóðum einnig gámahús, geymslugáma og
salernishús í ýmsum stærðum og gerðum.
Fjöldi sérlausna í boði, sniðnar að þörfum
hvers og eins.
www.stolpiehf.is Hafðu
samband!
ístölt hjá
Brimfaxa
Hestamannafélagið Brimfaxi stóð fyrir ístölti á dögunum. Þátttaka var góð en þessa
skemmtilegu mynd tók Haraldur
Hjálmarsson áhugaljósmyndari frá ís-
töltreiðinni. (Heimasíða Grindavíkur)
afli dragnóta-
Bátanna ansi góður
Þá er febrúarmánuður liðinn en hann var ansi rysjóttur og endaði með ansi mörgum
bræludögum. Þrátt fyrir það þá var
afli bátanna þokkalegur og var t.d
afli dragnótabátanna ansi góður. Og
margir bátanna náður stórum róðr-
um eða um og yfir 20 tonn í róðri.
Örn KE var aflahæstur bátanna hérna
á Suðurnesjunum með 152 tonn í 17
róðrum og var stærsti róðurinn 23
tonn. Sigurfari GK var með 131 tonn
í 14 og 24 tonn í stærsta róðri sínum.
Siggi Bjarna GK 114 tn í 13 og 18 tonn
í stærsta róðri. Benni Sæm GK 88
tonn í 14, Arnþór GK 82 tn í 11 og
21 tonn í stærsta róðri. Þrír Reykja-
víkurbátar voru að landa í Grindavík
og Sandgerði og landaði Sólborg RE
á báðum höfnunum og var með 107
tn í 15. Aðalbjörg RE var með 90 tn
í 13 og Aðalbjörg II RE 78 tn í 15 en
báðir bátarnir lönduðu í Sandgerði.
Von GK var hæst smábátanna með
89 tn í 11 róðrum og var stærsti róð-
urinn tæp 16 tonn og var þessi róður
næst stærsti róður allra smábátanna
á landinu. Dóri GK var með 75 tn í
13, Daðey GK 75 tn í 15, Gísli Súrsson
GK 72 tn í 12. Af balabátunum þá
var Sæborg SU hæst með 50 tn í 11
róðrum.
Erling KE var langhæstur neta-
bátanna með 256 tonn í 17 róðrum,
kom mest með 36 tonn í einum róðri.
Happasæll KE var með 119 tonn í 19,
Grímsnes BA 115 tonn í 18. Maron
HU 97 tn í 17. Askur GK 62 tn Í 12.
Fyrst við erum farin að skoða neta-
veiðarnar þá er ekki úr vegi að fara
aftur til ársins 1980 og skoða þar febr-
úar mánuð. Þá voru mun fleiri bátar á
veiðum eins og gefur að skilja og var
veiði bátanna nokkuð góð. Bátarnir
sem við skoðum núna eru allt neta-
bátar sem voru að veiðum í febrúar
árið 1980.
Í Grindavík þá var Hafberg GK
187 tn í 13 róðrum. Geirfugl GK var
með 196 tn í 12 , Höfrungur II GK
208 tn í 14. Jóhannes Gunnar GK
204 tn í 12, Skúmur GK 22 216 tn í
12. Þorsteinn Gíslasson GK 102 tn í
11, Hrafn Sveinbjarnarsson GK 169
tn í 11 róðrum, Vörður ÞH 216 tn í
12, Kópur GK 244 tn í 14 og Sigurður
Þorleifsson GK 221 tn í 12
Í Sandgerði voru t.d Víðir II GK
með 97 tn í 9 á netum, Bliki ÞH 56
tn í 11. Aflaskipið Arney KE var með
250 tn í 11 róðrum.
Sandafell GK 82 var í Keflavík á
netum og var með 250 tn í 13 róðrum,
Vatnsnes KE 192 tn í 22.
Í þessum mánuði árið 1980 þá
var Magnús Þórarinsson skipstjóri á
báti sínum Bergþóri KE og var hann
á línuveiðum og var með 43 tonn í 11
róðrum. Núna á vertíðinni 2013 þá
hefur Einar Magnússon sonur Magn-
úsar heitins tekið sig til og byrjað að
róa á báti sinum Sævari KE á netum.
Magnús fórst með Bergþóri KE í jan-
úar árið 1988 og var þá Einar um borð
í bátnum en hann bjargaðist ásamt
tveim öðrum um borð í Akurey KE
sem Árni Vikarsson var þá skipstjóri
á. Báðir þessir menn hafa verið mikl-
ir netamenn og þau ár sem Magnús
var með Bergþór KE þá fiskaði hann
oft ævintýralega vel. Nafnið Bergþór
KE var í raun á tveim bátum. Fyrst
var þá á 143 tonna stálbáti og síðan
á 57 tonna eikarbáti. Það er nokkuð
merkilegt að í október árið 1976 þá fór
Magnús í prufuveiðiferð með Mustad
beitningarvél og var þetta með fyrstu
tilraunum hérna á landiu til þess að
vera á línu með beitningavél. Farið
var út með línu sem var með 36000
krókum eða sem samsvaraði 90 bjóð-
um. Berþór KE gerði þá aldrei út á
línu með beitningavél.
Einar hélt áfram skipstjórn strax
eftir slysið og leigði þá Dröfn RE sem
þá var í eigu Hafrannsóknarstofnunn-
ar og réri á henni út vertíðina 1988.
Einar var þó lengst af með bát sem í
dag heitir Maron HU. Þá hét bátur-
inn Ósk KE og var Einar með hann í
fjöldamörg ár og fiskaði vel á bátnum.
Meðal annars þá lét hann breyta bátn-
um þannig að byggt var yfir skutinn
á honum og er báturin því eins og
hann er í dag.
Vertíðirnar árið 1996 og 1997
voru ansi góðar því á vertíðinni árið
1996 þá fiskaði Ósk KE um 730 tonn.
Best gekk honum þá í mars þegar að
hann landaði tæpum 300 tonnum. Þá
komst hann í 100 tonn í 6 róðrum eða
17 tonn í róðri. Mesti vikuafli bátsins
var þó í mars árið 1997 þegar að Ein-
ar á Ósk KE og Tómas eða Tommi á
Hafnarberginu RE lentu í ufsamoki og
landaði þá Ósk KE 116 tonn í 6 róðum
eða 19 tonn í róðri. Hafnarberg RE
var þá aðeins ofar eða með 119 tonn
í 6 róðrum.
Það er kanski ekki viðbúið að Sæv-
ar KE sem Einar er með núna muni
fiska svona rosalega mikið þar sem
að Sævar KE er nú mun minni bátur
en Ósk KE ( núna Maron HU), en
báturinn hefur þó komið með 15 tonn
að landi og það gerði hann þegar að
báturinn hét Hafborg KE.
Og í lokin aðeins að öðru en
togarnir okkar eru farnir norður
í land því Nesfiskur keypti rækju-
vinnslu Meleyrar á Hvammstanga og
eru því Berglín GK og Sóley Sigur-
jóns GK farnir norður til rækjuveiða.
Þegar þetta er skrifað þá er Berglín
GK búin að landa tæpum 13 tonnum
þar sem að rækja var rúm 6 tonn.
Gísli R.
AflafréttirBókasafn Reykjanesbæjar
gestum og lánþegum fjölgar
Forstöðumaður gerði grein fyrir starfsemi safnsins á síðasta ári. Starfsemin var metnaðarfull og
gróskumikil að vanda. Þó útlánum hafi
fækkað fjölgar gestum og lánþegum.
Sífellt er leitað leiða til að bjóða upp á
sem besta þjónustu og auka fjölbreytni
í starfseminni.
LYKILTÖLUR 2012: (tölur frá síðasta
ári í sviga)
Útlán: 111.100 (117.113)
Útlán á íbúa: 7,9 (8,4)
Útlán frá afgreiðsluborði safns árið 2011
voru 101.591 (107.134)
Heimsendingar og útlán á elliheimili og
sjúkrahúsið voru alls 944 (1.140)
Útlán til grunn- og leikskóla (koffort, hljóð-
bækur, bekkjarsöfn) voru: 7.950 (8.959)
Útlán í öðrum verkefnum s.s. bóka-
spjalli voru 619
Millisafnalán voru 4.169 (4.263)
Fjöldi lánþegar með gild kort 31. des-
ember 2012 um 3.000 (3.018)
Gestir: 76.648 (72.639), að meðaltali 268
(290) manns á dag
Heimsóknir leikskólabarna í sögust-
undir: 81 (81)
Heimsóknir bekkja úr grunnskólum:
7 (4)
Sumarlestur: 293 (204) börn tóku þátt
Þjónustutími: 51 klst á viku yfir veturinn
/ 45 klst á viku yfir sumarið (45 /45)
Þjónustudagar: 286 (252)
Fjöldi skráðra eintaka í Gegni 31. 12
2012: 70.328 (69.522)
Fjöldi starfsmanna í árslok 2012: 8 (9).
Stöðugildi 5,85 (6,80) auk 75% stöðu-
gildis vegna þjónustusamnings við Keili.
Auglýsingasíminn er
578 1190
Netfang:
auglysingar@fotspor.is.