Reykjanes - 07.03.2013, Blaðsíða 8

Reykjanes - 07.03.2013, Blaðsíða 8
8 7. mars 2013 Árni Sigfússon, bæjarstjóri fjölskyldan er hornsteinninn Framtíðarsýn og verkefnalistar Reykjanesbæjar byggja á því að það sé sameiginlegt hlut- verk okkar sem hér búum að stuðla að hamingju og heilbrigði einstakling- anna. Fjölskyldan er hornsteinninn og atvinnan gefur henni færi á að skapa sér lífsviðurværi. Dagur fjölskyldunnar hér í Reykjanesbæ minnir okkur á þess- ar staðreyndir, því samlhliða því em við ræðum um mál sem skipta fjöl- skylduna miklu, eins og menntamál þá viðurkennum við fyrirtæki sem sýna viðleitni í þágu fjölskyldufólks, taka tillit til fjölskyldunnar í störf- um sínum. Það fer einnig vel á því að við ræðum um góðan árangur grunnskólanna okkar í dag, en ég vil minna okkur á að það er ekki siður full ástæða til að fagna góðu starfi á öðrum skólastigum. Við búum við hreint frábæra leikskóla sem byggt er á. Við eigum góðan framhaldsskóla þar sem Fjölbrautaskóla Suðurnesja er og nýjastaviðbótin er svo Keilir, þar sem gott samstarf við Háskóla Íslands er raunin, Nú er vorið að nálgast, birtan að aukast og vonin með. Það fer því vel á því að hér í þjónustumiðstöð aldraðra á Nesvöllum, sé nú í næsta sal yngsta kynslóðin staðsett, þar sem húne rað leik á meðan foreldrar hlýða hér á erindi og taka þátt í viðurkenningar- athöfn. Hinum megin við þilið rís nú hjúkrunarheimili aldraðra og þannig horfum við í dag til yngstu og elstu kynslóðanna á sama bletti. """"" """"" 5 """"" 6 (mynd) fjölskyldan í fyrsta sæti Dagur um málefni fjöl-skyldunnar var haldinn í 14. sinn laugardaginn 23. febr- úar Það er Fjölskyldu- og félagssvið Reykjanesbæjar sem stendur fyrir þessum degi, sem er m. a. ætlað að vekja athygli á jafnvægi fjölskyldu- og athafnalífs. Dagur um málefni fjöl- skyldunnar í Reykjanesbæ Bæjarstjóri setti samkomuna og minnti á að fjölskyldan er hornsteinn hvers samfélags. Jóhann Greirdal, skólastjóri fór yfir velgengni grunnskólanna í Reykjanesbæ á síðustu árum, sem hann þakkaði ekki hvað síst samvinnu við fjölskyldur barnanna. Ungur grunn- skólanemi sagði frá mikilvægi þess að eiga góða fjölskyldu, ekki síst á mótun- arárunum. Unglingar úr Heiðarskóla sýndu atriði úr söngleik sem frum- sýndur verður á árshátíð skólans. Hugað er að öllum við skipulag slíkrar uppákomu, svo fjölskyldan geti öll tekið þátt. Því var boðið upp á barnapössun og var stór barnaskari við leik undir eftirliti starfsmanna barna- verndar. Að lokum var öllum boðið upp á létt hádegissnarl. Um 100 manns tóku þátt í deginum. Fjölskylduvæn fyrirtæki og stofnanir Dagur um málefni fjölskyldunnar í Reykjanesbæ Að lokum voru veittar viðurkenn- ingar til sex fyrirtækja, eftir tilnefn- ingar frá starfsmönnum þeirra sem sýndu fram á að þau tækju tillit til fjölskyldunnar í skipulagi starfsem- innar. Eftirtalin fyrirtæki hlutu viður- kenningu sem fjölskylduvænt fyrirtæki og/eða stofnun; Fríhöfnin Ísavía Heiðarskóli Lögfræðistofa Suðurnesja Heilsuleikskólinn Háaleiti Kosmos & Kaos Hlustað af athygli. alltaf gaman að lita. Áhuginn leynir sér ekki. andlitið málað. Ungu börnin nutu sín. Jóhann Geirdal, skólastjóri Holtaskóla Hjördís Árnadóttir, framkvæmdastjóri Fjölskyldu og félagssviðs. Brynja Ýr úr Heiðarskóla söng fyrir gesti. Kosmos og Kaos. Heiðarskóli. Heilsuskólinn Háaleiti. Lögfræðistofa suðurnesja.

x

Reykjanes

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Reykjanes
https://timarit.is/publication/990

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.