Reykjanes - 07.03.2013, Side 12
7. mars 2013
Breytingar á strætóáætlun
Það ánægjulega vandamál hef-ur komið upp varðandi stræt-óferðir á milli Garðs, Sand-
gerðis og Reykjanesbæjar, að nýting
á þessum ferðum hefur sprengt allt
skipulag utan af sér. Strætóinn fer
nú ellefu sinnum á dag virka daga og
fjórum sinnum á dag um helgar eða
samtals sextíu og þrjár ferðir í hverri
viku og hefur greinilega verið þörf
á, þar sem komið hefur upp að ekki
hafi verið pláss fyrir alla í sumum
ferðunum, og aukabíll sendur til að
redda málum.
Garður og Sandgerði greiða fyrir
ferðirnar og eru þær því fríar fyrir þá
sem nýta sér strætóinn.
Vegna þessarar óvæntu notkunar á
strætó var ákveðið á samráðsfundi, nú
nýverið, að stökkva til og aðlaga kerfið
þessari miklu aukningu, þrátt fyrir að
nýbúið sé að gera breytingar á kerfinu.
Þessi mikla þjónusta sem nú er
veitt hefur kallað t. a. m. á samstarf
íþróttafélaganna fjögurra á svæðinu,
en knattspyrnudeildir Reynis, Víðis,
Keflavíkur og Njarðvíkur eru komnar
í samstarf með nokkra flokka iðkenda
sem byggist að miklu leyti á að boð-
ið sé upp á þessar ferðir hér á milli
byggðarlaganna.
Helstu breytingarnar eru þrjár.
- Ferð kl.14: 15 verður flýtt og verður
hún kl.14: 00 virka daga.
- Einni ferð er bætt við kl.16: 15 alla
virka daga.
- Eftir tvær fyrstu ferðir dagsins, sem
aka leiðina Reykjanesbær–Sand-
gerði–Garður–Reykjanesbær og
eru kallaðar "skólaferðir", breytist
akstursleiðin og verður Reykjanes-
bær–Garður–Sandgerði–Garð-
ur–Reykjanesbær. Við það breyast
einnig biðstöðvar í Sandgerði og
Garði. Stoppað verður við Miðhús
í stað Hlíðargötu í Sandgerði og
ekki verður farið út að Nýjalandi í
Garðinum. Verður því Bræðraborg
ysta biðstöðin í Garðinum, þ. e. eftir
tvær fyrstu ferðirnar.
Vonast forstöðumenn strætó og full-
trúar bæjarfélaganna til að þetta auki
þjónustuna og létti á þeim álagspunkt-
um sem hafa myndast
12
Góugleði í Garði.
Kvenfélagið Gefn í Garði og Félag eldri borgara
á Suðurnesjum halda Góugleði í Samkomuhúsinu
í Garði sunnudaginn 10. mars kl. 15:00.
Kafhlað borð á kr. 1500
Eldri borgarar á Suðurnesjum kvattir til að mæta
og eiga saman skemmtilega stund.
Kvenfélagið Gefn og Félag eldri borgara Suðurnesjum
www.eignaumsjon.is
S. 585 4800, Suðurlandbraut 30.
Aðalfundur framundan?
Heildarlausn í
rekstri húsfélaga.
gestir frá hVammstanga í
heimsókn í sandgerði og garði
Laugardaginn 2. febrúar fengu sóknarnefndir Hvalsnessókn-ar og Útskálasóknar góða
gesti. Kór, prestur og sóknarnefnd
Hvammstangakirkju komu í heim-
sókn og dvöldu yfir helgina.
Starfsfólk Hvalsnes og Útskála-
kirkna hafði farið í heimsókn til þeirra
í mars 2011 og voru þau nú að endur-
gjalda heimsóknina.
Það hefur þarna myndast skemmti-
legt samband og á auðvitað presturinn
okkar Sr. Sigurður Grétar þarna stóran
hlut en hann var prestur á Hvamms-
tanga í 11 ár.
Tekið var á móti hópnum 30 manns
í stöðvarhúsi HS í Reykjanesvirkj-
un þar sem Hitaveitan bauð upp á
veitingar fyrir langt að komna gestina.
Gengið var um og skoðuð sú skemmti-
lega sýningaraðstaða sem þeir hafa
komið upp þarna. Leiðsögumaður var
Þorgrímur St. Árnason og var kynn-
ingu hans vel tekið.
Næst var ekið eftir strandlengjunni
að Hvalsneskirkju og hún skoðuð og
fór formaður sóknarnefndar Reyn-
ir Sveinsson á kostum við kynningu
hennar sem og aðra leiðsögn. Þar
tók kórinn að norðan einnig nokkra
sálma.
Síðar um daginn hélt kirkjukór
Hvammstanga svo tónleika í Safnað-
arheimilinu í Sandgerði undir stjórn
Pálínu Fanney Skúladóttur við mikinn
fögnuð áheyrenda.
Um kvöldið var svo sameiginlegt
borðhald og skemmtun í Byggðasafn-
inu á Garðskaga . Þar fór fólk á kost-
um, vígt sem óvígt. Þarna var sannar-
lega glatt á hjalla.
Á sunnudaginn var síðan messa í
Útskálakirkju. Þar prédikaði sóknar-
presturinn á Hvammstanga Sr. Magn-
ús Magnússon. Sr. Sigurður Grétar
þjónaði fyrir altari. Kirkjukórinn
fyrrnefndi og stjónandi sáu um
sönginn. Þetta var kærkomin til-
breyting því eins og margir vita hef-
ur ekki verið starfandi kór í þessum
sóknum nú um hríð.
Að messu lokinni bauð Nesfiskur
gestum í súpu. Þakklátir gestir fóru
til síns heima og við hérna í Útskála-
prestakalli þökkum fyrir okkur.
Sem sóknarnefndarmaður í
Hvalsnessókn leyfi ég mér að þakka
Hvammstangafólki fyrir frábæra
heimsókn, söng, prédikun og góðan
félagsskap.
Silla E.
Borðhald í Byggðasafninu í Garði.
smá æfing í Hvalsneskirkju.
OPNUNARTÍMI
mánudaga - föstudaga 07:00-18:00
laugardaga 08:00-16:00
sunnudaga 09:00-16:00
Sigurjónsbakarí - Hólmgarði 2 - 230 - Reykjanesbæ
NÝ BÖKUÐ BRAUÐ
ALLA DAGA
VERIÐ VELKOMIN
Í SIGURJÓNSBAKARÍ
HÓLMGARÐI
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is.