Reykjanes - 21.03.2013, Blaðsíða 9
921. mars 2013
safnið verði kaldastríðssafn
Fyrir nokkru komu fram hug-myndir hjá stjórnvöldum að koma upp herminjasafni á Ás-
brú. Reykjanes leitaði til Sigurgests Guð-
laugssonar hjá Kadeco til að kanna gang
mála. Sigurgestur sagði:
Mikil vinna hefur farið fram vegna
uppbyggingar hersetusafns á Ásbrú.
Þegar ríkisstjórnin fól Þróunarfélagi
Keflavíkurflugvallar að standa að upp-
bygginu safnsins voru hugmyndir um
það á algeru frumstigi. Eftir að hafa leit-
að til lykilaðila í safnamálum, bæði hér á
Suðurnesjum sem og á landsvísu hefur
verið mótuð stefna fyrir safnið og þessa
dagana er unnið að fjármögnun þess.
Helstu niðurstöður stefnumótun-
arinnar eru þær að safnið verði byggt
upp sem kaldastríðssafn, en verði ekki
einskorðað við herminjar eða hersetu á
Suðurnesjum. Saga „vallarins“ er enda
mun stærri en svo að hún taki einung-
is til hersetu hér á svæðinu. Inní sögu
varnarsvæðisins spilast mörg stærstu
mál í sögu þjóðarinnar frá stofnun
lýðveldis. Enda mótaði staður Íslands
í samfélagi kaldastríðsáranna bæði
ástæðurnar fyrir veru bandaríkjahers
hér á landi sem og framþróun varnar-
stöðvarinnar.
Næstu skref eru því að fjármagna
safnið og í framhaldi af því að hanna
sýningu sem segi þessa sögu. Sýn-
ingunni hefur verið valinn staður í
gamla „Officera „klúbbnum. Það hús-
næði hefur nú allt verið tekið í gegn
og þar bíður um 700m2 salur eftir því
að sýningin komist af undirbúnings og
hönnunar stigi svo hægt verði að hefja
framkvæmdir við uppsetningu hennar.
góugleði í garðinum
Sunnudaginn 10. mars s. l. stóð Kvenfélagið Gefn í samvinnu við Félag eldri borgara fyrir Gó-
ugleði. Félagarnir Víkingur Sveinsson,
Þórólfur Þorstseinsson og Baldvin Elís
Arason spiluðu og sungu. Mæðginin
Ólafur Kjartansson og Þórhildur Inga
Ólafsdóttir sungu nokkur lög. Glæsilgt
kaffihlaðborð var í samkomuhúsinu.
Reykjanes smellti af nokkrum mynd-
um ag gestum á Góugleðinni.
safnahelgi á
suðurnesjum
Safnahelgi á Suðurnesjum var vel sótt. Veðrið lék við gesti sem nýttu sér það og
fóru í skoðunarferðir. Í Þekkingar-
setrinu(áður Fræðasetri) í Sandgerði
var margt um manninn.
Mikla athygli vakti krabbinn og
heimkynni hans í Sandgerði.
Reynir Sveinsson forstöðumaður
sagði að mikill gestagangur hefði ver-
ið í Þekkingarsetrinu. Sjókerið vakti
mikla lukku þar sem gestir fengu
að halda á hinum ýmsu sjávardýr-
um. Aðilar í skel og kræklingarækt
funduðu á öðrum stað í húsinu. Mikið
var því um að vera um þessa helgi
fræðanna og sögunnar.
SillaE