Reykjanes - 21.03.2013, Qupperneq 14
14 21. mars 2013
Ókeypis Blóðsykurmælar og strimlar fyrir sykursjúka
Þú nærð tökum á sykursýkinni
með því að mæla blóðskykurgildið þitt reglulega
Bjóðum Medismart Zapphiro blóðsykurmæla og
strimla frá Swissneska fyritækinu Lobeck Medical Ltd.
* Mjög einfaldur í notkun, stór skjár, léttur og
handhægur
* "No Coding" - þarf aldrei að núllstilla
(calibrera)
* Þarf mjög lítið magn til mælinga * 0,6 µl
* Mælir blóðsykur á bilinu 1,1-35 mmol/L
* Mæling tekur aðeins 5 sek.
* Geymir 480 mælingar í minni
* Hægt að tengja við tölvu
blóðsykursmælir
Félagar í FEB
fá 12% afslátt
af öllum vörum
Apótek Suðurnesja
er opið
Mánud. - föstud. 9:00-19:00
Laugardaga 14:00-18:00
Velkomin í lágt lyfjaverð
í Apóteki Suðurnesja
samfylking oPnar kosningamiðstöð í reykjanesbæ
Samfylkingin opnaði kosninga-miðstöð sína í Reykjanesbæ að Hafnargötu 90 með pompi
og prakt á laugardaginn. Oddný G.
Harðardóttir oddviti S-listans í Suður-
kjördæmi bauð gesti velkomna og blés
baráttunda í brjóst, Árni Páll Árnason,
formaður Samfylkingarinnar, fór yfir
stöðuna í stjórnmálunum og Björgvin
G. Sigurðsson fór yfir kosningaundir-
búninginn og baráttuna framundan.
Feðgarnir Júlíus Viggó og Ólafur Þór
Ólafsson, sem skipar 5. sæti S-listans,
og sungu og léku nokkur lög við frá-
bærar undirtektir.
Kosningamiðstöðin í Reykjanesbæ
er sú fyrsta sem Samfylkingin opnar
þetta vorið. Hún verður opin fyrst um
sinn kl.13-18 virka daga og 10-15 á
laugardögum. Kosningastjóri Sam-
fylkingarinnar í Suðurkjördæmi er
Kristlaug M. Sigurðardótti, Kikka. Þeir
sem vilja leggja hönd á plóg geta haft
samband í síma 691-0301, sent póst á
sudur@xs.is eða kíkt í heimsókn. Heitt
á könnunni og allir velkomnir.
instragram #grindavik
Nú geta Grindavíkingar nær og fjær og reyndar landsmenn allir og öll heimsbyggðin
ef þannig ber undir, birt Instragram
myndir sýnar á heimasíðu Grinda-
víkurbæjar. Þið þurfið að merkja
myndirnar Grindavík, þ. e. „hasstagga"
Grindavík (#grindavik).
Við hvetjum snjallsímaeigendur að
senda okkur skemmtilegar myndir
sem þeir taka í Instagram forritinu,
hvort sem það er á snjallsímann eða á
spjaldtölvuna. Myndirnar geta verið af
hverju sem er en þá helst af lífinu hér
í Grindavík, nú er t. d. um að gera að
taka myndir úr MENNINGARVIK-
UNNI.
Talsvert er um að útlendir ferða-
menn merki myndir sem þeir taka
t. d. í Bláa Lóninu sem #grindavik.is
(Heimasíða Grindavíkur)
um náttúrulækningar
Fólk veltir því fyrir sér hvað er náttúrulæknir. Ég hef fengið margar spurningar í gegnum
tíðina um starf mitt í náttúrulækning-
um. Sumar þeirra byggjast á fáfræði
en aðrar á forvitni. Ég vil hér útskýra í
nokkrum orðum fyrir forvitnum hvað
náttúrulækningar eru og þá menntun
sem liggur að baki hjá mér.
Í Þýskalandi, þar sem ég er fædd og
uppalin, hef ég samtals varið þrettán
árum í að mennta mig í náttúrulækn-
ingum og er því læknir á sviði náttúru-
lækninga. Ég er nú á því stigi að geta
skrifað doktorsritgerð um náttúru-
lækningar og gæti þá í framhaldinu
skráð mig sem dr. Birgittu Jónsdóttur
Klasen náttúrulækni.
Náttúrulækningar eru kenndar
á þremur árum. Til að byrja með
er kennd lífeðlisfræði, líkamsfræði,
læknisfræði, vefjafræði og sjúkdóma-
fræði. Eftir þrjú árin getur maður bætt
við grasalækningum, næringarfræði,
homopatíu og augnsjúkdómslýsingu
og fleiru.
Ég hef lokið tveimur stigum í mínu
námi en þriðja stigið er ritun doktors-
ritgerðar. Að auki hef ég stundað nám í
sálfræðilegri ráðgjöf, sem tengist nátt-
úrulækningum. Einnig hef ég lokið
þriggja ára námi í félagsmálaráðgjöf
fyrir konur. Einnig hef ég lært þrýsti-
meðferð, ilmmeðferð, svæðameðferð,
súrefnismeðferð, Ziatsumeðferð,
öndunarmeðferð og litameðferð, og
hef verið gestur dozent við háskólann
í Bremen, Cuxhaven og Bremerhaven
yfir 5 ár. Náttúrulækningar eru þannig
yfirgripsmiklar og í Þýskalandi er vel
þekkt að náttúrulæknar og heimilis-
læknar vinna mikið saman. Náttúru-
læknar vísa oft fólki til heimilislæknar
og heimilislæknar vísa sínum sjúkling-
um til meðferðar hjá náttúrulæknum.
Náttúrulæknirnar voru fyrst stund-
aðar í síðari heimsstyrjöldinni árið
1939. Bandarískar og asískar nátt-
úrulæknirnar eru hins vegar öðru-
vísi en þær evrópsku og tengjast ekki
því námi sem ég hef rætt um hér að
framan.
Náttúrulæknar mega senda fólk
í blóðtöku en hafa ekki heimild til
skurðlækninga. Ég hef þá persónulegu
skoðun á mínu starfi að vinna bara
með höndunum. Ég vil eingöngu fá
þær upplýsingar þegar ég vinn með
líkamann hvað sé að hrjá hann, og
meðhöndla það á viðeigandi hátt.
Ég hef unnið með fólki í yfir 40 ár
og fólk verður að vita það að batinn
verður ekki á einni nóttu. Þeir sem
leggja stund á náttúrulækningar öðlast
reynslu sína á mörgum árum, bæði
líkamlega og andlega.
Birgitta Jónsdóttir Klasen
www. facebok. com/
heilsumiðstöð birgittu
Heilsumiðstöð Birgittu
Hafnargötu 48a
Formaðurinn og oddvitinn.
Feðgarnir Óli Þór og Júíus Viggó stigu á stokk og slógu í gegn.