Reykjanes - 16.05.2013, Síða 14
14 16. maí 2013
Heilsustofnun NLFÍ:
HeilsudVöl í HVeraGerði
er Góð fyrir líkama oG sál
Markmiðið hjá Heilsustofnun NLFÍ er að efla heilbrigði,
auka andlega og líkamlega vellíðan og
styrkja einstaklinginn í að bera ábyrgð
á eigin heilsu. Á Heilsustofnuninni er
frábær aðstaða og starfsfólið er alveg
einstalega þægilegt í alla staða. Það
er virkilega hægt að mæla með dvöl á
Heilsustofnun NLFÍ. Árlega koma um
1800 dvalargestir í læknisfræðilega
endurhæfingu.
uNNið að Gerð sí- oG eNdurmeNNtuN-
aráætluNar GriNdaVíkurbæjar
Í framhaldi af ábendingum sem fram komu á starfsmannadegi Grinda-víkurbæjar í haust hefur Þorgerður
Guðmundsdóttir deildarstjóri launa-
deildar tekið að sér ýmis verkefni er
varða starfsmannamál en
bæjarstjóri verður áfram starfs-
mannastjóri bæjarins. Þorgerður
mun innleiða og halda utan um sí- og
endurmenntunarmál, innleiðingu og
utanumhald viðveruskráningakerfisins
Vinnustundar og innleiðingu starfs-
mannahandbókar, móttöku nýliða og
fleira.
Þorgerður hefur verið deildarstjóri
launadeildar hjá Grindavíkurbæ í tæp
20 ár. Hún lauk námi í mannauðs-
stjórnun við endurmenntun Háskóla
Íslands fyrir nokkrum árum. Þegar hún
var spurð að því í síðasta starfsmanna-
viðtali hvar hún sæi sig í framtíðinni
kom hún því á framfæri að hún hefði
áhuga á starfsmannamálum í ljósi
menntunar sinnar og áhugasviðs.
Í framhaldi af því tók hún við fleiri
starfsmannatengdum verkefnum sem
að mestu hafa verið munaðarlaus hjá
bænum fram að þessu.
„Lokaverkefni mitt og Stefaníu H.
Gylafdóttur í mannauðsstjórnunar-
náminu var gerð starfsmannahand-
bókar fyrir Grindavíkurbæ. Eitt af
verkefnum mínum núna verður að
uppfæra og innleiða starfsmannahand-
bókina og koma skipulagi á nýliðamót-
töku þannig að hún verði að einhverju
leyti samræmd á milli stofnana, “ segir
Þorgerður.
Stærsta verkefnið er gerð sí- og
endurmenntunaráætlunar Grinda-
víkurbæjar sem Þorgerður heldur
utan um ásamt stýrihóp með aðkomu
Miðstöðvar Símenntunar á Suðurnesj-
um. Í stýrihópnum eru auk Þorgerðar
fulltrúar kennara, leikskólakennara, frá
BSRB, BHM og MSS.
„Verkefnið er komið af stað í sam-
vinnu við MSS. Margar góðar óskir og
ábendingar komu fram á starfsmanna-
deginum sem við byggjum á og vinnum
út frá. Ég á von á því að boðið verði
upp á eitthvað af námskeiðum fyrir allt
starfsfólk sem og sértæk námskeið eins
og fyrir kenn-ara, leikskólakennara og
aðra. Sum námskeið- anna verða árleg
eins og t. d. í Uppbyggingastefnunni
fyrir nýtt starfsfólk, skyndihjálparnám-
skeið og fleira, “ segir Þorgerður.
Búið er að taka upp viðveruskrán-
ingakerfið Vinnustund í öllum stofn-
unum Grindavíkurbæj-ar nema í
grunnskóla og tónlistarskóla en það
værður væntanlega klárað næsta vet-
ur. Þorgerður heldur utan um inn-
leiðinguna og allt sem snýr að Vinnu-
stund. Margir kannast við gömlu
góðu stimpilklukkuna en Vinnustund
er mun víðtækara kerfi sem heldur
utan um viðveruskráningu starfsfólks
eins og þekkist í flestum fyrirtækjum
í dag. Að sögn Þorgerðar er slíkt kerfi
til mikillar hagræðingar bæði fyrir
starfsfólk og vinnuveitanda eins og
hvað varðar skráningu vinnutíma,
veikindi, skipulag, orlof og ýmislegt
fleira. Starfsfólk bæjarins mun áfram
vera í sambandi við sinn næsta yfir-
mann um slík mál en Þorgerður heldur
utan um kerfið í heild sinni.
„Ég er mjög spennt fyrir þessum
nýju verkefnum. Hér nýtist mér vel
sú menntun sem ég aflaði mér. Starfs-
manna- og launamál hafa breyst mikið
frá því ég hóf störf hjá Grindavíkurbæ í
ágúst 1993. Á þeim tíma tíðkaðist ekki
að gera ráðningasamninga þannig að
ekki var til ráðningasaga starfsmanns-
ins hjá bænum með fullri vissu, “ sagði
Þorgerður að endingu.
Margir starfsmenn
að mennta sig
Starfsmenn Grindavíkurbæjar hafa
verið duglegir að mennta sig í há-
skólastofnunum samfélagsins og að
sækja ýmis námskeið sem eru í boði
samkvæmt upplýsingum frá forstöðu-
mönnum bæjarins.
Í grunnskólanum eru t. d. Petrína
Baldursdóttir og Bryndís Hauksdótt-
ir í meistaranámi, Petrína í stjórnun
menntastofnana og Bryndís í sér-
kennslufræðum. Þá hafa kennarar
verið duglegir að sækja ýmis nám-
skeið í vetur út frá sínum áhuga- og
sérsviðum. Þá eru allir starfsmenn
skólans í námi í tengslum við aðal-
námskrána.
Hjá tónlistarskólanum er Inga
Þórðardóttir í meistaranámi í stjórn-
un, Renata Ivan í meist-aranámi í tón-
list, Vera Steinsen er í námi í HÍ og
Vignir Ólafsson í Tónlistarskóla FÍH.
Á bæjarskrifstofunum er Þorsteinn
Gunnarsson í meistaranámi í verk-
efnastjórnun og Kjartan Fr. Adólfsson
var að ljúka námi sem löggiltur bók-
ari. Á félagsþjónustu- og fræðslusviði
er Hildigunnur Árnadóttir félagsráð-
gjafi í meistaranámi í sínu fagi.
Þá hafa stjórnendur bæjarins verið
á námskeiðum um hlutverk stjórn-
enda, þjálfun í starfsmannaviðtölum
og skipulagi. Þá er slökkviliðið reglu-
lega með námskeið og öryggistrúnað-
arfólk hefur verið á námskeiðum hjá
Vinnueftirlitinu, svo eitthvað sé nefnt.
Róbert Ragnarsson bæjarstjóri, Kristín mogensen og maría Jóhannesdóttir
sem fengu viðurkenningar fyrir 20 ára starf hjá Grindavíkurbæ, og Þorgerður
Guðmundsdóttir deildarstjóri launadeildar. (Heimasíða Grindavíkur)
Umhverfisdagar í Garði
17.–21. Maí 2013
Sveitarfélagið Garður stendur fyrir umhverfisdögum 17. – 21. Maí 2013.
Allir bæjarbúar, stofnanir og fyrirtæki eru hvött til að taka fullan þátt og
fagna vorkomunni með tiltekt og fegrun síns nærumhverfis.
Allir geta komið og losað rusl í gáma á lóð
Áhaldahúss Garðs án endurgjalds:
Föstudaginn 17. maí kl. 13 – 17.
Laugardaginn 18. maí kl. 10 – 16.
Þriðjudaginn 21. maí kl. 08 – 17.
Starfsmenn bæjarins verða til þjónustu og leiðbeina um flokkun.
Afklippur og gróðurúrgangur á að fara á merkt svæði ofan Háteigs.
Mikilvægt er að halda garðaúrgangi aðskildum frá öðrum úrgangi.
Einnig er mikilvægt að halda ólíkum tegundum garðaúrgangs aðskildum.
Nánari upplýsingar um Umhverfisdaga í Garði koma fram í dreifibréfi til
allra íbúa í Garði, sem og á heimasíðu sveitarfélagsins, svgardur.is.
Bæjarstjóri Garðs.
GARÐUR