Reykjanes - 27.06.2013, Qupperneq 8
8 27. júní 2013
Landsmót 50+
Suður-
nesjafólk
stóð sig vel
Landsmót 50+ var haldið í Vík í Mýrdal dagana 7-9 júní s.l. Fyrir hönd Suðurnesja fór vösk sveit
kvenna og karla til að keppa í hinum
ýmsu greinum. Okkar fólk náði ágætis
árangri ig kom heim með fjölda verð-
launapeninga.
Glæsilegt bókasafn
Bókasafn Reykjanesbæjar hefur nú flutt sig í Ráðhús bæjarins að Tjarnargötu. Bókasafnið er
á fyrstu hæð þar sem Landsbankinn
(Sparisjóðurinn) var til húsa. Virkilega
flott að sjá hve vel hefur tekist að koma
öllu smekklega fyrir. Glæsilegt .
Von GK er hæst línubáta
Hérna á árum áður þá var oft ansi mikið um togaraland-anir í Njarðvík, og þeirra
aðal voru Aðalvík KE og Bergvík KE
sem þar lönduðu. Um þessar mundir
er nú ekki mikið um landarni báta
í Njarðvík. Fremur er þarna um að
ræða legustæði fyrir báta sem er hætt
að gera út. Tveir stórir stálbátar hafa
legið þarna sem hafa þó verið í út-
gerð. Fram ÍS hefur legið í höfninni
enn báturinn var gerður út á lúðu
og hét þá Guðrún Guðleifsdóttir ÍS.
Núna hefur sá bátur verið seldur til
Ísafjarðar og planið er að setja hann á
fiskveiðar. Sá bátur á nokkra sögu á
Suðurnesjnum því báturinn var gerður
út frá Keflavík í fjöldamörg ár og hét
þá Boði KE. Seinna fékk hann nafnið
Eldeyjar-Boði KE þegar Eldeyjar fyr-
irtækið var stofnað.
Hinn báturinn sem er að fara í verk-
efni er Stafnesið hans Odds. Í fyrra þá
var Stafnes KE gert út á túnfiskveiðar,
enn núna í ár þá tapaði Oddur hlut-
kesti um hvort hann eða Jón Gunn-
laugs ST fengi það. Til stendur að
Stafnes KE sé að fara í olíuleit.
Talandi um þennan bát Jón Gunn-
laugs ST þá er hann Sandgerðisbátur
svo til alla leið, því Miðnes HF sem var
stórt fyrirtæki í Sandgerði lét smíða
bátinn í Stálsmiðjunni í Reykjavík árið
1972 og var báturinn gerður út í hátt í
30 ár frá Sandgerði. Þessi bátur leysti
af annan bát sem hét sama nafni og
sá bátur var hvað þekktastur hérna á
Suðurnesjnum undir nafninu Hafnar-
berg RE.
Annars af veiðum þá eru flestir línu-
bátanna núna staddir á austurlandi og
hafa þeir fiskað ágætlega. Von GK er
hæst þeirra með 72 tonn í 8 róðrum.
Þórkatla GK kemur næst enn báturinn
er á bölum og er með 62 tonn í 12,
annar balabátur Óli á Stað GK er með
55 tonn í 12, Bergur Vigfús GK 51 tonn
í 9 , Dóri GK 50 tonn í 11. Hópsnes GK
sem er á bölum er með 50 tonn í 11.
Gísli Súrsson GK 40 tonn í 7.
Þeir bátar sem eftir eru á
Suðurnesjnum eru flestir á hand-
færum og hefur Ragnar Alfreðs GK
landað 14 tonnum í 4. Sædís Bára GK
er með 11 tonn í 4, Maggi Jóns KE 10
tn í 4,Una SU sem Stakkavík gerir út
er með 7 tonn í 3.
Svala Dís KE er kominn á Rif til
skötuselsveiðar og byrjaði vel og hefur
landað 10 tonnum í 4 róðrum, þar er
líka Happasæll KE og hefur landað 8
tonn í 4. Sæljós GK er í Sandgerði og
er með 13 tonn í 5 á skötusel og þar af
kom báturinn með 7 tonn í 2 róðrum.
Ekki eru margir bátar á dragnóta-
veiðum og var Farsæll GK með 41 tonn
í 6 enn báturinn er kominn í stopp
núna fram til 1.september. Arnþór GK
hefur fiskað vel og landað 62 tonnum
í einungis 3 löndunum.
Frystitogarinn Hrafn Sveinbjarnars-
son GK hefur ekki landað enn í júní
en var með 400 tonn í 2 löndunum í
maí. Hrafn GK hefur sömuleiðis ekki
landað í júní þegar þetta er skrifað enn
var með í maí 787 tonn í 2 og þar af
um 500 tonn í einni löndun sem má
segja að sé fullfermi hjá togaranum.
Gnúpur GK er á úthafskarfanum
og hefur landað tvisvar samtals 850
tonnum. Fyrri lönduninn var 585
tonn. Baldvin Njálsson GK hefur ekki
landað í júní en var með í maí 674 tonn
í einni löndun.
Gjögursbátarnir halda áfram að
fiska vel og hafa þeir verið að veiðum
bæði fyrir austan og vestan og silgt
þá til baka til Grindavíkur til þess að
landa aflanum. Áskell EA er með 134
tonn í 2 og Vörður EA 240 tonn í 4,
enn geta má þess að tvær af þessum
löndunum hjá Verði EA voru á
Grundarfirði og var þá aflanum ekið
til bæði Grenivíkur og Grindavíkur
þar sem aflinn var unnin.
Gísli R.
Aflafréttir
Línudanshópurinn fékk silfurverðlaunin. Elsti dansarinn í hópnum Gunnar
jónsson varð 90 ára í maí s.l.
Frá vinstri: Aðalbergur,ísleifur,Marinó og Guðbrandur hlutu silfurverðlaun
í pútti.Lithia hlaut silfurverðlaun í pútti.Sigurbjörg silfurverðlaun í pönnu-
kökubakstri.júlíus P. silfurverðlaun í pútti. Hákon,jón ísleifs,Elías og Ragnar
hlutu gullverðlaun í pútti. Guðbrandur náði silfurverðlaunum í kúluvarpi í
flokki 70-74 ára.
Átak í skráningu hunda og katta
Grindavíkurbær og Heilbrigð-iseftirlit Suðurnesja hafa ákveðið að gera átak í skrán-
ingu hunda og katta í bænum og hvetja
grindvíska hunda- og kattaeigendur
til að skrá dýr sín. HES býður ókeypis
árgjald út árið 2013 á nýskráðum
hundum og köttum séu dýrin skráð
fyrir 30. júlí 2013.
Hundahald
Samkvæmt samþykkt um hundahald
á Suðurnesjum er hundahald almennt
bannað að. Bæjarstjórnum er heimilt
að veita undanþágu til hundahalds
með ákveðnum skilyrðum og sér Heil-
brigðiseftirlit Suðurnesja (HES) um þá
framkvæmd.
Meðal skilyrða er að hundurinn sé
skráður hjá HES og skal hann merktur
með örmerki og merki HES. Sé hundur
ekki með appelsínugult merki HES (sjá
meðfylgjandi mynd), er hann líklega
ekki skráður. Þá skal árlega greiða
leyfisgjald fyrir þá hunda sem undan-
þága er veitt fyrir. Innifalin í skrán-
ingargjaldinu er ábyrgðartrygging. Ef
fleiri en einn hundur er á sama heimili
og í eigu sama einstaklings, greiðist fullt
gjald af einum hundi en hálft gjald af
öðrum.
Á hundaeigendum hvíla skýrar
skyldur til að tryggja öryggi hundsins
og annarra íbúa. Hundur skal aldrei
ganga laus á almannafæri heldur vera í
taumi í fylgd aðila sem hefur fullt vald
yfir honum. Barn ætti ekki að vera með
hund í taumi sem það ræður ekki við.
Hundaeigendum ber að viðhafa full-
komið hreinlæti í meðferð hunda sinna
til að draga úr sýkingarhættu, þ. m. t.
að fjarlægja hundaskít og láta hreinsa
hunda sína af bandormum.
Kattahald
Kattahald er heimilt á Suðurnesjum
með ákveðnum skilyrðum. Allir heim-
iliskettir skulu skráðir og örmerktir hjá
Heilbrigðiseftirliti Suðurnesja gegn
greiðslu leyfisgjalds sem innheimt er
einu sinni.
Leyfisgjaldið felur ekki í sér
ábyrgðartryggingu og því þarf kattar-
eigandi að kaupa ábyrgðartryggingu
hjá viðurkenndu vátryggingafyrirtæki.
Tryggingin á að standa undir tjóni sem
köttur hans kann að valda mönnum og
munum. Kattareiganda ber auk þess
að láta ormahreinsa kött sinn árlega
og gæta þess að hann valdi ekki ama
eða tjóni.
Á heilbrigðisnefnd hvílir skylda til
að útrýma villi- eða flækingsköttum.
Ómerktur köttur sem fangaður er skal
geymdur í 7 daga. Hafi kattarins ekki
verið vitjað innan þess tíma er heimilt
að aflífa hann. Ef eigandi gefur sig fram
skal hann greiða leyfisgjald og áfallinn
kostnað.
Á vef Heilbrigðiseftirlits Suðurnesja
og bæjarskrifstofunni er hægt að sækja
um leyfi fyrir hunda og ketti. www.
hes.is
Á vef Grindavíkurbæjar er hægt að
nálgast upplýsingar um skráða hunda
og ketti í Grindavík www. grindavik.
is/dyrahald
Ábendingar um óskráða hunda og
ketti eru vel þegnar með því að senda
upplýsing-ar á netfangið hes@hes.is.
Í sumar munu starfsmenn á vegum
Grindavíkurbæjar og HES ganga hús úr
húsi og kanna hvort skráin sé uppfærð.
(Heimasíða Grindavíkur)