Reykjanes - 27.06.2013, Síða 10
10 27. júní 2013
Auglýsingasíminn er 578 1190
Netfang: auglysingar@fotspor.is
Fréttir úr Garðinum:
Fagna rafrænum
íbúakosningum
Reglugerð vegna rafrænna íbúa-kosninga sem er liður 26 í fundar-
gerð stjórnar Sambands ísl.sveitarfé-
laga. N listinn fagnar nýsamþykktri
reglugerð um undirbúning, fram-
kvæmd og fyrirkomulag rafrænna
íbúakosninga og gerð rafrænnar kjör-
skrár. N listinn hvetur bæjarfulltrúa
meirihlutans til dáða svo uppfylla megi
13. gr. reglugerðar um rafrænar íbúa-
kosningar hér í sveitarfélaginu.
Fyrirtækjasýning í Garði 2013.
Bæjarráð Garðs hefur lagt til að
samþykktur verði viðauki við fjár-
hagsáætlun að fjárhæð kr. 1.700.000,
samkvæmt kostnaðaráætlun vegna
fyrirtækjasýningar í Garði í október
2013. Kostnaðurinn færist á 1304-4990
og handbært fé verið lækkað sem því
nemur.
Samþykkt samhljóða.
Bláa lónið greiðir arð
Aðalfundur Bláa lónsins ehf. sam-þykkti að greiða hluthöfum arð
vegna rekstrarársins 2012. Sveitar-
félagið Garður fær greiddan arð af
hlutareign sinni að fjárhæð kr. 273.933
eftir að fjármagnstekjuskattur hefur
verið greiddur.
Norrænir dagar í Garði 2014
Á Bæjarráðsfundi Garðs nýlega var lagt fram bréf frá Norræna-
félaginu í Garði.Til kynningar eru
drög að bréfi til norrænna vinabæja
vegna norrænna daga í Garði 2014.
Bréfið er til kynningar á norrænum
dögum og með því á að fylgja dagskrá.
Samkvæmt því er áformað að norrænir
dagar í Garði verði í tengslum við Sól-
seturshátíð dagana 25.-29. júní 2014.
Bæjarráð gerir ekki athgasemdir við
drögin.
Vilja Garðvang áfram
Bæjarráð Garðs ítrekar fyrri afstöðu um uppbyggingu hjúkrunar-
þjónustu aldraðra á Suðurnesjum og
leggur sem fyrr áherslu á að áfram
verði rekin hjúkrunarþjónusta fyrir
aldraða á Garðvangi. Jafnframt ítrekar
bæjarráð þá stefnu sem full samstaða
var um í Svæðisskipulagi Suðurnesja
2008-2025, að hjúkrunarþjónusta við
aldraða verði veitt í öllum sveitarfé-
lögunum. Bæjarráð skipar tvo fulltrúa
í starfshóp sem stofnaður var að frum-
kvæði Reykjanesbæjar og er ætlað að
fara yfir gögn er varða rekstur hjúkr-
unarheimila. Fulltrúar Garðs í hópnum
verða Einar Jón Pálsson og Magnús
Stefánsson. Bæjarráð leggur áherslu
á að starfshópurinn skoði áfram-
haldandi rekstur á vegum DS, sem einn
valkost varðandi rekstur hjúkrunar-
þjónustu við aldraða á svæðinu. DS
er samvinnuverkefni sveitarfélaganna
um hjúkrunarþjónustu við aldraðra.
Jafnframt leggur bæjarráð áherslu á
að sveitarfélögin auki samvinnu sína í
stað þess að draga úr henni.
Gróðrarstöðin Glitbrá
Ég ræddi við Gunnhildi Ásu Sigurðardóttir eiganda gróðrarstöðvarinnar.
Hún byrjaði sem ung áhugamann-
eskja um gróður að rækta birki,
reynir, víðir og ösp á Bárugerðis-
landinu, landi afa síns og föður. Hug-
myndin var bara að planta því síðar
upp í heiði og í kringum heimili fjöl-
skyldunnar til að gera skjól. Þetta var
árið 1990. Mikið af þessum plöntum
drápust, sumar bara einfaldlega
þrifust ekki í þessari sjávarseltu og
roki og svo hefur kunnáttuleysi sjálf-
sagt eitthvað hjálpað til, til að byrja
með segir Ása. En hún gafst ekki
upp og plantaði bara meira af því
sem lifði og prófaði fleiri tegundir.
Og áhuginn var mikill. Svo kom að
því að hún sá að hún hafði ekki efni
á þessu. Þetta var dýrt og það fór í
þetta mikil vinna.
Það var þá sem hún ákvað að fara
að selja af afurðinni. Hún girti af
smá reit þar sem hún var með rækt-
unina gerði þar nokkra reiti fyrir
plönturnar og opnaði plöntusölu
með einhverjar 10-12 tegundir af
trjám og runnum! Margir hlógu að
henni og sögðu að þetta þýddi ekki
hér á þessum stað. En hún hlustaði
ekki á það og fannst þetta ganga al-
veg frábærlega. Hún sá fljótlega að
þetta var ekki nógu mikið úrval til
að halda út plöntusölu svo hún varð
að stækka og bæta við fleiri plöntum
og sumarblómum.
Með aðstoð annarra garð-
plöntuframleiðanda sem hún kynnt-
ist á þessu brölti sínu þá smám saman
jókst úrvalið hjá henni. Síðan bættist
aðstaðan og framleiðslan jókst. Hún
lagði í þetta mikla vinnu. Fyrsta litla
plasthúsið var gert úr límtré sem faðir
hennar aðstoðaði hana við að útbúa
og næstu tvö plasthúsin smíðaði hún
aðallega sjálf. Árið 2000 breytti hún
fyrirtækinu sínu sem hingað til hafði
heitið Gróðurstöð Gunnhildar Ásu, í
Gróðrarstöðina Glitbrá ehf.
“Nú er svo komið segir Ása að
með hjálp yndislegra fjölskyldu, og
ekki síst núverandi eiginmanns míns
Geirs Sigurðssonar að við þetta hefur
bæst 320 ferm glerhús árið 2005 og
300 ferm plasthús árið 2008.“
Auk þess hef hún tvo hektara af
landi undir beð.
Ása hefur lokið garðyrkjunámi
frá Landbúnaðarháskólanum
á Reykjum og er nú garðyrkju-
fræðingur af garðplöntuframleiðslu-
braut og er farin að rækta allt sjálf
fyrir utan smá innflutning. Glitbrá
sérhæfir sig í rok og sjávarþolnum
plöntum og ánægðum viðskipta-
vinum. Umsvifin hafa enda aukist ár
frá ári. Glitbrá er eina garðplöntu-
gróðrarstöðin á Suðurnesjum. Ég
þakka Ásu kærlega fyrir spjallið.
Hún á stóran þátt í uppgræðslu á
svæðinu okkar sem og í görðum
íbúanna. . Reykjanesið óskar þeim
hjónum áframhaldandi velgengni í
framtíðinni.
Silla E.
Gunnhildur Ása Sigurðardóttir og Geir Sigurðsson