Alþýðublaðið - 19.11.1919, Side 1

Alþýðublaðið - 19.11.1919, Side 1
Alþýðublaðið Oeíið út sil Alþýðuílokknum. 1919 Miðvikudaginn 19. nóvember 19. tölubl. Haflð þér reykt Teofani? Þar, sem þjóðfélagsskipun er á lægsta stigi og fátt er gert í sam- -einingu, þar sem einstaklingarnir 4)auka hver í sínu horni, eru akattarnir eðu gjöldin til hins 'opinbera lítil sem engin. Hinar aiiklu fornþjóðir létu flestar hin undirokuðu skattlönd greiða ríkis- gjöldin. Á miðöldunum var því avo háttað í þeim löndum, sem nú $iafa komist lengst á braut hinnar svonefndu menningar, að fastar álögur á alþjóð voru sjaldgæfar, ■on þegar eitthvað mikið lá við, ^ögðu höfðingjarnir skatta á þjóð- ina, sem féllu niður jafnskjótt ®em bætt var úr þörfinni. Á ein- veldistímunum er fyrst farið að ieggja fasta skatta á alþjóð, og fara þeir sívaxandi úr því, þangað *il nú á stríðsárunum, að þjóð- irnar hafa neyðst til þess að snargfalda Þá. Þó nemur aukning akattanna tæplega eins miklu og ■verðfall peninganna. íslenzka þjóðin hefir ekki held- ’br farið varhluta af aukning akattanna. Til þess að reyna að iialda fjárhag þjóðarinnar í horf- ™u, hafa því síðustu alþingi rembst við að tolla alla skapaða hluti, einkum það, sem ómögulegt er að framleiða í landinu. Svo að segja iiver einasti munnbiti, sem hvít- voðungurinn og alt til gamal- snennisins lætur sér í munn, er tollað. Klæðnaðurinn, hitinn, ljósið, húsaskjólið, meira að segja svefn- inn, alt er tollað. Og nú virðast ráðgjafar þjóðarinnar að þrotum ^romnir með það, hvernig þeir eigi að afla nauðsynlegs fjár til t>ess, að hið yngsta ríki á Norður- löndum fari ekki undir hamarinn ^g verði boðið upp eins og hrepps- ömagi á einhverri næstu alþjóða- samkundu. Sé vel og viturlega farið með fé, sem landinu áskotnast, er ^kkert við því að segja, þó skatt- arnir séu háir, komi þeir þá á bak þeirra, sem helzt mega við því að greiða þá. En eins og þeim nú er fyrir komið, að þeir allflestir eru óbeinir (o: tollar), greiðir fátæklingurinn, sem eyðir 8/i tekna sinna, eða oftar öllum tekjunum, til matar og hins allra nauðsynlegasta, margfalt hærri skatt tiltölulega en efnamaðurinn, sem ef til vill eyðir aðeins V* tekna sinna eða minna til hins sama; afganginn getur hann svo notað til þess að auka á þægindi sín og efla auð sinn. Nágrannaþjóðir vorar, einkum Danir, komu á hjá sér stríðsgróða- skatti, nógu snemma til þess, að hann kæmi að einhverju gagni. En íslenzka þjóðin var fljótari til þess, að ganga mótstöðulítið, að því er virtist, að ósvífnum kröf- um hinna drembilátu, en smásál- arlegu Engilsaxa, en ,að koma á hjá sér stríðsgróðaskatti, meðan tækifæri var til. Allir vita, að t. d. ýmsir heildsalar hafa á stríðsár- unum orðið stórefnamenn, eftir íslenzkum mælikvarða. En alt átti að gerast þegar stríðið var búið, þá átti að jafna hallann!!! Annars var það upphaflega ekki ætlun mín, að hefja ádeilu á nú- verandi stjórn; hún hefir haft í mörg horn að líta, og landsmenn hafa með deyfð sinni og fram- kvæmdaleysi altof mjög trassað að rétta henni hjálparhönd. Eg gat þess áður, að forráða- menn þjóðarinnar virtust að þrot- um komnir með ráð til þess, að afla nægilegs fjár til nauðsynlegra þarfa, hvað þá til þess, að auka fjárþol landsins. Það er sízt að undra, þótt að því reki, að jafn-fámenn þjóð og við erum, íslendingamir, getum ekki risið undir næglega háum sköttum til þess, að fram- kvæma allar þær umbætur, sem gera þarf á jafn-strjálbýlu og víð- áttumiklu landi og ísland er. Auð- vitað heflr landið aðrar tekjur en skattana, en þær 6ru hverfandi. Nú er mér spurn, hvers vegna ætti landið ekki að auka beinar tekjur sínar á kostnað annara þjóða, með því að gerast fram- leiðandi? Hví ekki að nota fiski- miðin umhverfls landið, til þess að auka gjaldþol landsins bein- línis? Það er staðreynd, að þeir, sem lagt hafa stund á sjávarútveg, einkum útgerð togara, hafa stór- grætt bæði á stríðsárunum og fyrir þau. Þeir hafa ekki haft þúsunda, heldur miljóna hagnað, og það af örfáum skipum. Enginn getur með sanni sagt, að landið standi ver að vígi, hvað útgerð snertir, en einstaklingarnir. Enn hefir það lánstraust, engu síður en þeir. Enn er ekki of seint að bjarga við fjárhag þess, ef farið verður að ráðum þeirra, sem bezt vilja landi og lýð. Og enn eru til þeir íslendingar, sem ekki eru slíkir ættlerar, að þeir svíki land sitt í trygðum og dragi sér vilj- andi fé hins unga kóngsríkis hve- nær sem færi gefst, þótt svo virð- ist, sem helzt til margir hafi stundum rétt ágirndarkrumlurnar af alt of mikilli græðgi niður í kjötpott landsins. Að landið tapar ekki á fyrir- tækjum þeim, sem það ræðst í, sýna ljóslega síma- og póstreikn- ingarnir, og svo skipaútgerðin nú upp á síðkastið. Á henni græddi landið s.l. ár um x/a miljón króna, þrátt fyrir 160 þús. kr. tap á strandferðunum. Og svo eru til þeir menn, eða öllu heldur þær mannleysur, sem vilja láta landið hætta skipaútgerðinni, í stað þess að það ætti að auka hana að mun. Þeir, sem gefa slíkt í skyn, meðan landinu í heild er hagur að útgerðinni, eru þjóðfélaginu hættulegri en allar sóttkveikjur

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.