Innsýn - 01.02.1979, Page 10
10
HEILBRIGÐI OG
HOLLUSTA
VATN
Hvort sem maður er heil-
brigður eða sjúkvir, er vatn
með þeim bestu blessunum,
sem við fáum. Það er drykk-
ur, sem Guð hefur gefið bæði
mönnum og dýrum til að
slökkva þorsta sínum með.
Hreint vatn hjálpar líkaman-
um til að standast sjúkdóma
og það er nauðsynlegt fyrir
líkamann til að geta fengið
full not af nauðsynlegustu
næringarefnunum og salti.
Vatn getur á margan hátt
minnkað sársauka. Að drekka
glas af tæru, heitu vatni
fyrir hverja máltíð er allt-
af gott. Margir gera það
glappaskot að drekka kalt
vatn með matnum. Maturinn
byrjar ekki að meltast
fyrr en vatnið hefur sogast
upp í líkamann og ef vatnið
er kalt, þá þarf maginn að
byrja á því að hita það svo
að soga það upp þannig að
meltingin seinkar mjög
mikið.
Ef sjúklingar með hita
myndu fá nóg að drekka og
einnig ýmis konar útvortis
vatnsbakstra (sem við þekkj-
um lítið hér) hefðu margar
nætur og dagar með kvölum
og erfiðleikum orðið betri
og mörg líf bjargast. Við
notum vatn til að slökkva í
logandi húsi, svo þegar sjú
sjúkt fólk liggur í óráði
vegna hita fær það ekki að
slökkva hann með því efni
sem náttúran hefur upp á að
bjóða, og Guð hefur ætlast
til að við notuðum til svo
margs, sem við hugsum ekki
út í.
Vonandi verður þessi
þáttur okkur öllum til gagns
og gamans.
Ef þið eigið góðar upp-
skriftir af grænmetismat og
önnur góð ráð yrði ég mjög
glöð að heyra frá ykkur.