Hagtíðindi

Árgangur

Hagtíðindi - 01.10.1917, Blaðsíða 8

Hagtíðindi - 01.10.1917, Blaðsíða 8
40 HAGTÍÐINDI 1917 landskosningarnar voru álíka margir karlar og konur (12 139 karlar og 12 050 konur). Við landskosningarnar greiddu atkvæði alls 5 873 kjósendur eða 24.3 °/o af þeim, sem á kjörskrá stóðu. Hefur hluttaka í alþingis- kosningum aldrei verið tiltölulega jafnlítil síðan 1874. Þetta stafar þó sjerstaklega frá kvenkjósendunum, þvi að af körlum kusu 4 628 eða 38.i °/o, en af konum kusu aðeins 1 245 eða 10.3%. 61 kjósendur eða rúml. l°/o greiddu atkvæði á öðrum kjörstað heldur en þar sem þeir stóðu á kjörskrá, og 138 eða rúml. 2%> greiddu atkvæði brjeflega fyrir kjörfund, auk þeirra, sem ekki komu til greina við kosninguna vegna þess, að þeir annaðhvort kusu brjef- lega af öðrum ástæðum en fjarveru (svo sem fjarlægð frá kjörstað, hestleysi, annriki, lasleika) eða skiluðu atkvæðabrjetunum á skakkan kjörstað eða eftir kjörfund. Bárust landskjörstjórninni 40 slík ógild atkvæðabrjef, er ekki voru talin með greiddum atkvæðum vegna þess, að þau komust aldrei niður í atkvæðakassann. En af þeim atkvæðum, sem þangað komu, voru 44 dæmd ógild við upplestur- inn, en það er aðeins 3/í°/o af greiddum atkvæðum. Er það miklu minna en verið hefur við nokkrar alþingiskosningar .siðan þær urðu leynilegár og það jafnvel þó talin væru líka með brjeflegu atkvæðin, sem ekki komu í atkvæðakassann. Þjóðaratkvæði um |iegnskylduvinnu. Jafnliliða alþingiskosningunum 21. okt. f. á. fór fram almenn alkvæðagreiðsla meðal alþingiskjósenda um það, hvort lögbjóða skyldi skylduvinnu fyrir alla heilbrigða karlmenn við verk í þarfir hins opinbera einhverntíma á aldrinutn 17—25 ára, alt að 3 mán- aða tíma í eiít skifti. Atkvæðagreiðslan fór þannig, að af 14 105 kjósendum er atkvæði greiddu um málið, greiddu 1 016 eða rúml. 7°/o atkvæði með, en 11 313 eða rúml. 80% móti þegnskylduvinn- unni, 1 080 eða tæpl. 8°/o skiluðu auðum seðli og 696 atkvæði (um 5%) urðu ógild. Prentsmiðjan Gutenbcrg.

x

Hagtíðindi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hagtíðindi
https://timarit.is/publication/994

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.