Alþýðublaðið - 19.11.1919, Síða 4
4
ALPÝÐUBLAÐIÐ
og barði hann oían við augað,
svo að hann fóll aftur á bak og
barði frá sér öllum öngum.
II.
Þegar Hallur Warner raknaði
úr rotinu, var dimt umhverfis
hann, og hann fann það, að hann
var marinn og lemstraður hátt
og lágt. Hann lá á steingólfi og
reyndi að velta sér yfir á hina
hliðina, en velti sór brátt við
aftur, því að enginn ósár blettur
var til á líkama hans. Síðar, þegar
hann gat athugað sjálfan sig nán-
ar, fann hann votta fyrir meira
en 20 meiðslum eftir stigvéla-
hæla þeirra, sem hann hafði átt
í höggi við.
Þarna lá hann nokkrar klukku-
stundir, og honum varð það brátt
ijóst, að hann mundi staddur í
fangelsi, því að hann sá stjörn-
urnar gegnum járngrindaglugga.
Hann heyrði einhvern hrjóta og
kallaði tíu, tuttugu sinnum, og
hækkaði altaí köllin, unz hann
heyrði urra í einhverjum.
„Get eg ekki fengið svolítið af
vatni“, sagði hann.
(Frh.).
€yslras alts - œf intýrinn
lokið?
Kaupmannahöfn 17. nóv.
Frá Berlín er símað að Ber-
mondt hafi gengið á hönd Eber-
hardts hershöfðingja, og álíta
blöðin sem þar með sé lokið
„Eystrasalts-æfintýri" hans.
ÓÍHXgja nel floske.
ithöfn 17. nóv.
Frá Berlín er símað að þýskir
jafnaðarmenn séu óánægðir með
[hermáiaráðherra sinn] Noske.
Harður vetur.
Khöfn 17. nóv.
Óvenju harður vetur er nú í
Norður- og Miðevrópu.
St. ]eane i’jfírc.
Eftir Mark Twain í Harpers
Magazin. Lausl. þýtt.
(Frh.).
í sögu mannsandans — hins
ótamda og óþroskaða anda, sem
að eins getur beitt sínum með-
fæddu en óæfðu gáfum — finst
ekkert það, er þoli nokkurn sam-
jöfnuð við þetta. Jeanne d’Arc er
einsdæmi og hlýtur að verða það,
sökum þeirrar fáheyrðu staðreynd-
ar, að í þeim efnum sem hún
skaraði mest fram úr öðrum í,
þá komu yfirburðirnir að öllu leyti
innan að, frá henni sjálfri, en stöf-
uðu engan veginn frá aðfengnum
áhrifum eða styrk, svo sem von
eða ádrátt um hjálp, mentun,
æfingu nó lífsreynslu. Það er eng-
inn sá maður til, sem hægt væri
að líkja henni við, enginn, sem
taka mætti til samanburðar; því
öll önnur mikilmenni hafa alist
upp við þannig lífsskilyrði, að þau
hafa ósjálfrátt eða sjálfrátt miðað
að því, að styrkja og hvetja
gáfur þeirra og skapa afburða-
manninn. Til hafa verið margir
ungir hershöfðingjar, en þeir voru
ekki 'stúlkur; ungir herforingjar,
en þeir höfðu verið óbreyttir
liðsmenn, áður en þeir urðu
yfirboðarar. En hún byrjaði sem
hershöfðingi; hún stýrði fyrstu
herdeildinni, sem hún hafði aug-
um litið, og hún leiddi hana frá
sigri til sigurs og beið aldrei nokk-
urn ósigur í áhlaupum sínum. Til
hafa verið ungir hershöfðingjar,
en enginn jafn ungur og hún var;
hún er sá eini stríðsmaður í ver-
aldarsögunni, sem seytján ára gam-
all hefir haft æðstu herstjórn yfii
heilum þjóðar her.
(Fth.).
Xolavanðrxlin þýsku.
Khöfn 17. nóv.
Frá Berlín er símað að dregið
só úr vöruflutningalestaferðum á
þýsku járnbrautunum.
,Socialdemokratisk Ungdomsr
forbund4 í Danmörku samþykti
fyrir skömmu á sambandsþingi
sínu með 1427 atkv. gegn 1187,
að slíta allri samvinnu við social-
demokratiska flokkinn. Ástæðan
til þessa er án efa sú, að Social-
demokratisk Ungdomsforbund mun
hafa þótt flokkurinn of vægur við
andstæðinga sína og mun álíta
aðferðir hinna svæsnari socialista
um heim allan happadrýgri fyrir
framgang socialismans.
Penlng'abudda fundin á
götum bæjarins. Afgr. vísar á.
Olíuofnae eru „lakkeraðir"
og gerðir sem nýir. Gert við lampa
og lampagrindur á Laugaveg 27.
Alþýðubrauðgerðin
vill fá brauðaútsölu í Miðbænum eða í Grjóta-
þorpinu. Þeir sem þessu vilja sinna tali við forstjór-
ann, er hittist á hverju kvöldi kl. 9 á skrifstofu
Alþýðubrauðgerðarínnar, Laugaveg 61.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Ólafur Friðriksson.
Prentsmiðjan Gutenberg.