Hagtíðindi - 01.04.1993, Side 33
1993
175
Tala búfjár, heyfengur og uppskera garðávaxta 1992
Number of livestock and production offield crops 1992
Um langt árabil hafa birst árlega í Hagtíðindum töflur um
bústofn, heyfeng og uppskeru garðávaxta á landinu á liðnu
ári með samanburð við næstliðið ár. Þessar töflur birtust fyrst
íjanúarblaði Hagtíðinda I969ogþáfrá 1965, siðan fjúliblaði
1970 og síðan í aprílblaði ár hvert, en vegna seinkunar á
upplýsingagjöf birtust þær í maíhefti 1989 en síðan hafa
þessar töflur komið í aprflblöðum. Talnaefni þetta er fengið
frá Búnaðarfélagi íslands, og er það byggt á forðagæslu-
skýrslumbúfjáreftirlitsmannaíhverju sveitarfélagi í samræmi
við ákvæði laga um búfjárhald nr. 46/1991. Er búféð talið á
haustin að lokinni sláturtíð og fram eftir vetri. Með töflunum
fylgja eftirfarandi athugasemdir:
1. Nautgripir. Tala kálfa er samtala kálfa yngri en 1/2 árs ætlaðra til mjólkurframleiðslu, sem voru 6.887 og kálfa yngri en
1/2 árs ætlaðra til kjötframleiðslu, sem töldust vera 7.521.
2. Hænsni. Aðeins eru taldir stofnfuglar, þ.e. 178.954 varphænsni, 44.065 holdahænsni og 24.020 líffuglar árið 1992, en
ekki holdakjúklingar sem til 1991 voru taldir með holdahænsnum.
3. Svín. Hér eru aðeins talin fullorðin dýr, gyltur og geltir.
4. Loðdýr. Hér eru aðeins talin lífdýr, annars vegar minkalæður og högnar og hins vegar refalæður og steggir.
5. Annar bústofn. Auk þess búfjár sem fram kemur í töflunum voru skráðar 2.592 endur, 663 gæsir, 554 kalkúnar og 430
angórakanínur árið 1992.
6. Garðávextir. Auk kartaflna og rófna voru skráð 75,4 tonn af gulrótum 1992 en þær voru ekki áður taldar á skýrslum.
Bústofnsbreytingar
Fróðlegt er að athuga tölur um bústofn yfir nokkurt árabil (sjá
hér aprflblöð og maíblöð Hagtíðinda svo og Landshagi
1992), meðal annars með hliðsjón af þeirri stefnu, sem beitt
hefur verið í landbúnaði nú að undanförnu, að draga úr
framleiðslu hinna hefðbundnu greina. Aratuginn 1970-1980
var tala nautgripa allbreytileg ár hvert á bilinu 60-67 þúsund
en tala mjólkurkúa var yfirleitt 36-37 þúsund. Arin 1982-
1984 jókst nautgripafjöldinn til muna eða úr u.þ.b. 60
þúsundum í tæp 73 þúsund árin 1984 og 1985. Kúm fjölgaði
minna eða úr 33 þúsundum í u.þ.b. 35 þúsund. Arið 1988
fjölgaði nautgripum alls um 1.800 en kúm fækkaði um 900 og
árið 1989 fjölgaði nautgripum um 2.000 alls, en kúm fækkaði
um 500 frá fyrra ári. Arið 1990 fjölgaði nautgripum um 2.100
og kúm um 756 frá fyrra ári. Árið 1991 fjölgaði nautgripum
um 2.792 en kúm fækkaði um 605 frá fyrra ári, en 1992
fækkaði nautgripum um 1.647 og kúm um 1.282.
Sauðfé fjölgaði mjög mikið á 8. áratugnum og var stofninn
896 þúsund þegar hann var stærstur árið 1977. Eftir það var
sauðfé fækkað að mun í 712 þúsund árið 1983. Því ljölgaði
lítils háttar 1984 en fækkaði svo um 5 þúsund 1985, 34
þúsund 1986, 51 þúsund 1987, 37 þúsund 1988, 26 þúsund
1989, 12 þúsund 1990, 37 þúsund 1991 og 23 þúsund 1992.
Um aldamót voru talin 43 þúsund hross í landinu en þeim
fjölgaði í 62 þúsund þegar mest lét árið 1943. Eftir það
fækkaði hrossum stöðugt niður í um 30 þúsund á árunum
1958-1964, en fór þá að íjölga á ný. Árið 1992 voru talin vera
um 75 þúsund hross í landinu eða 23 þúsundum fleiri en árið
1980.
Loðdýrum fjölgaði verulegaárin 1985,1986 og 1987,en
á árinu 1988 fækkaði refum mjög mikið, en minkum fjölgaði
verulega. Árið 1992 stóð tala refa í stað en minkum fækkaði
talsvert.
Tala búfjár og jarðargróði 1986-1992
Number oflivestock and production offteld crops 1986-1992
1986 1987 1988 1989 1990 1991 1992
Nautgripir 71.383 69.029 70.824 72.789 74.889 77.681 76.034 Cattle
þ.a. kýr 33.872 32.880 32.005 31.490 32.246 31.641 30.359 Thereof: cows
Sauðfé 675.515 624.262 586.887 560.920 548.508 510.782 487.312 Sheep
Hross 56.352 59.218 63.531 69.238 71.693 74.069 75.171 Horses
Geitur 262 264 288 323 345 350 318 Goats
Varphænsni 309.831 274.210 229.733 231.997 214.936 197.123 178.954 Hens
Svín 2.744 3.351 3.453 3.247 3.116 3.315 3.474 Pigs
Refir 21.700 20.300 9.000 7.618 4.862 5.029 5.419 Foxes
Minkar 20.100 50.400 86.645 55.973 42.336 38.617 29.035 Mink
Kanínur 5.900 3.900 3.259 2.179 1.814 1.570 430 Rabbits
Þurrhey, m3 3.229.841 3.357.750 2.953.147 2.736.737 2.513.710 2.391.574 2.087.369 Dried hay, m1
Vothey, m’ 269.080 285.351 326.384 485.321 742.695 962.943 912.492 Silage, m3
þ.a. votheysrúllur 782.519 Big-baie silage
Heykögglar, tonn 666 Hayclods, tonnes
Kom, tonn 408 Com, tonnes
Kartöflur, tonn 16.578 18.093 10.289 8.382 14.893 15.131 6.292 Potatoes, tonnes
Rófur, tonn 1.025 1.084 671 544 808 643 386 Turnips, tonnes