Baldur - 07.11.1950, Qupperneq 3

Baldur - 07.11.1950, Qupperneq 3
B A L D U R 3 Undir alþýðustj órn. Efnahagsleg þróun í Sovétríkjunum 1949. málum sínum í ögrun við kon- unginn. Jóni biskupi Arasyni voru boðin grið á banadægri, en hann neitaði. Skilmálar hafa verið þeir sömu og beitt var við ögmund Pálsson Skálholts- biskups fyrr. Or því að skipinu varð ekki forðað frá strandi, hleypti biskup því til brots, er hann hafnaði griðunum. Með því móti þótti honum heldur von, að bjargast mundi eitthvað af því, sem hann sigldi með inn- anborðs, trúin sem ekki var á konungsvaldi, og landsréttindi, sem fólu í sér rétt til samnings- slita við konung og hlutu þvi að síðustu að búa konungsvaldinu gröf. Og enn eitt. Sá bjargast, sem fórnar lífi sínu fyrir eitthvað stærra. Hefði þessu blóði ekki verið úthellt, fyndum við, niðj- arnir, ekki bruna þess og sig- urhug í æðunum í dag. 0-------- Biskupskápa Jóns Arasenar. Biskupskápu Jóns biskups Arasonar, má hiklaust telja meðal merkustu gripanna í Þjóðminjasafninu. Kápan sjálf er úr rauðu flaueli en barmar og kragi gullbryddir og fagur- lega skreyttir. Ólafur Tómas- son lýsir henni svo í vísum um þá biskup Jón Arasojj og syni hans: „Skínandi var skrúðurinn einn, sem skenkti .hann heim til Hóla, með flugeli’ allur fagur og hreinn, flúraður í þeiin skóla sem langt í löndin er; aldrei borið liefur annað slikt enn fyrir sjónir mér, veit eg fútt svo fólkið rikt að finni’ hans líkann hér“. Eftirfarandi tölur sýna efna- hagsþróunina í Sovétlýðveld- unum s.l. ár. Iðnaðarf ramleiðslan. Hún fór 3% fram úr árs- áætlun, var 20% meiri en 1948 og 41% meiri en 1940. Fram- leiðslukostnaður iðnaðarins lækkaði um 7,3% og áætlaður ágóði iðnfyrirtækja hækkaði um 20 miljarð rúblur. Miðað við 1948 óx fram- leiðsla ýmsra mikilvægra vöru- tegunda frá 6—126%, eða sem hér segir miðað við einstakar tegundir: Stál 25%, kol 13%, olía 14%, rafmagn 18%, vöru- vagnar 47%, vörubílar 30%, fólksbilar 126%, rafmagnsvél- ar ca 35%, kornþreskivélar 101%, tilbúinn áburður 31%, traktorar 55%, sement 26%, út- varpstæki 65%, bómullarefnj 14%, ullarefni 19%, silkiefni 28%, leðurstígvél 22%, kjöt og smjör 6%, sykur 23%, niður- suðuvörur 35%, sápa 70%, te 21%, svo nokkur dæmi séu nefnd. Lanbúnaður. Árið 1949 var landbúnaðar- framleiðslan meirj en fyrir stríð. Kornuppskeran varð ca. 125 milj. smálestum meiri en árið 1940, sem einnig var úr- vals uppskeruár. Santa var að segja um baðmull, hör, kart- öflur o.fl. Rækktað land stækk- aði um 6 milj. hektara miðað við 1948. Húsdýra eign sam- yrkjubúanna óx á sama tíma sem hér segir: Nautgripir 21% (27% meira en 1940), svín 78% (16% meira cn 1940), kindur og geitur 19% (44% meira en 1940), hross22% (16% meirien 1940), alifuglar ca 100%. I þjónustu landbúnaðarins voru 1949 notaðar 3.—4. sinn- um l'leiri vélar, þar með talið traktorar og bílar, en 1940. I árslok var % af nautgripum og helmingur af svinum og kind- um samyrkjubúanna, kynbóta- dýr og í ríkisbúunum % af nautgripum og svínum og % af kindum. Samgsöngur og flutningar. . Árið 1949 voru vöruflutning- ar með járnbrautiun 17% meiri en 1948,'með fljótaskip- um 21% rneiri, með hafskip- um 15% meiri og með bifreið- um 28% meiri. Þar með höfðu vöruflutningar farið í öllum greinum fram úr því sem var 1940. Vöruflutningur bifreiða var meira að segja næstum 100% meiri en þá. Fjárfesting. Fjárfesting var 1949 20% meiri en 1948. Á árunum 1946 —1949 voru samanlagt stofnuð! að nýju og endurreist 5300 stór ríkisiðjuver. Verðlækkanir. Þann 1. marz 1949 lækkaði vöruverð í Sovétríkjunum um 10—30% til viðbótar þeirri verðlækkun sem varð 4. apríl 1948. Aðallega voru það neyzlu vörur, sem lækkuðu í verði en einnig hey, fóðurvörur og sement. Sparifjáreign almenn- ings hækkaði á árinu um 71 miljarð rúblur. Sala neyzlu- varnings var 20% meiri, miðað við sama verðlag og 1948, þar með komst sala allra þýðingar- meiri neyzluvara fram úr því sem var fyrir stríð. Verkamenn og starfsmenn. Þeim fjölgaði 1949 um 1,8 milj. og voru þar með orðnir 15% fleiri en 1940. Vinnuafköst iðnaðarverkamanna voru 13% meiri en 1948. Iðnskólarnir út- skrifuðu 723 000 unga faglærða verkamenn. Skólar og kennslumál. Árfð 1949 voru í Sovétríkjun- um 36 milj. nemendur eða 2 milj. fleiri en 1948. I 861 æðri skólum voru 1 128 000 náms- menn eða 316 000 fleiri en fyr- ir síðustu heimsstyrjöld, Auk þess hefur nemendum í tækniskólum og við sérfræði nám fjölgað um 333 000 frá því fyrir stríð. Sérfræðingar voru 68% fleiri en 1940. Rannsókn- arstofnanir 50% fleiri og tala vísindamanna, sem við þær störfuðu, tvöfaldaðist. Heilbrigðismál. Rúmum í sjúkrahúsum fjölg- aði 1949 um 38 000 og lækkn- um um 26 000. Húsnæðismál. Árið 1946—1949 voru í borg- unum endurbyggð og reist að nýju íbúðarhús með samtals 72 milj. m2 gólfflöt og 2,3 milj. íbúðarhús í sveitunum. Þjóðartekjur. Þj óðartekj ur Sovétríkj anna á árinu um 17% miðað við sama verðlag og árið áður. Meðallaun verkamanna og starfsmanna hækkuðu um 12% miðað við 1948 og 24% miðað við 1940. Meðal tekjur bænda voru 14—30% hærri miðað við sömu ár. Miðað er við sama verðlag bæði árin. Stálbræðslaofn í einni mestu stáliðnaðarborg Sovétríkfanna. Ofninn er af stærstu og full- komnustu gerð. Samanburður við auðvaldsríkin. Þessar tölur sýna þær miklu framfarir, sem orðið liafa í Sövétríkj unum s.l. ár. Til sam- anburðar má geta. þess að í Bandarikjunum fjölgaði at- vinnuleysingjunum á sama tíma að meðaltali um 1,5 milj. og þjóðartekjurnar minnkuðu um 4 miljarða dollara. Svipuð varð útkoman í öðrum auðvaldslöndum. Gæfumunurinn. I Sovétríkjunum á fólkið sjálft framleiðslutækin og stjórnar þeim með eigin hags- muni fyrir augum. I Banda- ríkjunum og öðrum auðvalds- löndum eru framleiðslutækin eign einstakra auðmanna og auðfélaga, sem hugsa öðru fremur um að tryggja sjálfum sér sem mestan gróða. Það gerir gæfumuninn.

x

Baldur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.