Baldur - 23.12.1950, Page 1

Baldur - 23.12.1950, Page 1
 XVI. ÁRGr. Isafjörður, jólin 1950. 21.—23. tölublað. illIllllllllllllllllllllllllllllllllIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllBIIBIIlllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllllHllllllllllllllllllllllllllllilllllillllllllllllllllllllllllilililliiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiini ÖRN ARNARSON: J Ó]L. Nú rennur jólastjarna og stafað geislum lætur á strák í nýjum buxum og telpu í nýjum kjól. Hve kertaljósin skína og sykurinn er sætur og söngurinn er fagur, er börnin halda jól. Þá klappa litlar hendur, og dansa fimir fætur, og fögrum jólagjöfum er dreift um borð og stól. Nú rætast margar vonir og draumar dags og nætur. Ó, dæmalaust er gaman að lifa svona jól. Og mitt í allri dýrðinni krakkakríli grætur — það kemur stundum fyrir, að börnin gráta um jól — en bráðum gleymist sorgin, og barnið huggast lætur og brosir gegn um tárin sem fífill móti sól. Og ellin tekur hlutdeild í helgi jólanætur, er heimur skrýðist ljóma frá barnsins jólasól. En innst í hugans leynum er lítið barn, sem grætur — og litla barnið grætur, að það fær engin jól.

x

Baldur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Baldur
https://timarit.is/publication/1012

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.