Baldur - 17.06.1954, Side 4
NÝIR BORGARAR.
ólafur Þór, fæddur 28/11 1953.
Foreldrar: Hulda S. Jóhannsdótt-
ir og Ólafur T. Ólafsson, Kirkju-
bóli í Skutulsfirði.
Pétur, fæddur 14/11 1950, Árni,
fæddur 6/3 1954. Foreldrar: Guð-
björg Árnadóttir og Guðmundur
Sigurðsson, ísafirði. — öll skírð
22/5 1954.
Ólöf Borghildur, fædd 24/2 1948,
Guðmunda Inga, fædd 4/6 1949,
Stefán Birgir, fæddur 22/8 1953.
Foreldrar: Hulda Guðmundsdóttir
og Veturliði Veturliðason, Úlfsá í
Skutulsfirði. — Öll skírð 23/5
1954.
Sveinsína Björg, fædd 10/12
1953. Foreldrar: Sigrún Sigur-
geirsdóttir og Jón Gunnar Björg-
ólfsson.
Guðmundur Óli, fæddur 13/5
1954. Foreldrar: Ólína Jónasdótt-
ir og Kristján Lyngmó, bilstj., Isa-
firði. — Bæði skírð 30/5 1944.
Kristján Guðmundsson, fæddur
11/1 1954, skírður 29/5 1954. For-
eldrar: Margrét Leósdóttir og Jó-
hann Hermann Júlíusson, bílstj.,
Isafirði.
Kristín, fædd 15/8 1950, Helga
Björk, fædd 8/5 1952. Foreldrar:
Helga Hermundsdóttir og Gunnar
Guðmundsson, verzlunarm., ísaf.
Sigríður Þórunn, fædd 26/3
1953. Foreldrar : Erla Valdimars-
dóttir og Gestur Einarsson, Rvík.
Öll skírð 5/6 1954.
Sigríður Brynja, fædd 7/2 1954,
skirð 6/6 1954. Foreldrar: Arndís
ólafsdóttir og Sigurður Th. Ingv-
arsson, véésmiður, Isafirði.
Arnheiður, fædd 21/11 1953,
skírð 11/6 1954. Foreldrar: Mar-
grét Auður Árnadóttir og Matth-
ías ísfjörð Guðmundsson, Hvítan.
Halldóra, fædd 30/11 1953. For-
eldrar: Sigríður Jóhannesdóttir og
Jón H. Guðmundss., kennari, ísaf.
Jón Guðbjartur, fæddur 25/1
1954. Foreldrar: Svandís Jóns-
dóttir og Guðbjartur Guðbjarts-
son, sjómaður, ísafirði.
Arnar, fæddur 24/12 1954. For-
eldrar: Margrét Guðbjartsdóttir
og Kristinn Arnbjörnsson, vélstj.,
Isafirði.
Guðrún Ólöf, fædd 10/3 1954.
Foreldrar: Ólöf Finnbogadóttir og
Guðmundur Ólason, sjóm., Isaf.
Guðrún, fædd 30/3 1954. For-
eldrar: Anna Guðröðsdóttir og
Magnús Arnórsson, sjómaður, ísa-
firði. — Öll skírð 13/6 1954.
Dánarfregn.
Arinbjörn Clausen, stöðvarstjóri
við Rafstöðina á Fossum, andaðist
á heimili sínu 6. þ.m.
Hjúskapur.
Hulda Svanhildur Jóhannesdótt-
ir frá Hafnarfirði og Ólafur T.
Við heimkomu Skúla Thoroddsen
úr sambandsnefndarförinni 1908.
Þeim svíður við hjartað, sem sæti’ átti’ í skut
og sjálfur rjeð stjórninni forðum,
að taka nú gefins við hálfum hlut
og hógv'ærum skapraunarorðum.
Vjer þökkum þjer, Skúli’, að þú heldur heim
með hendurnar tóinar frá skiftum þeim.
Á höfðingjafundum í húsbóndans sal
sjest hefðin og framtíðargróðinn:
með börnin sín arflausu skarta þar skal
á skörinni prófentuþjóðin.
Þú vildir ei, Skúli’, og við þökkum það,
að þú ættir móður á slíkum stað.
Hjá hverjum, sem Fjallkonan ókúguð á,
í öndvegi krefst hún að vera,
og trygðapants-handjárn vill liún ekki fá,
en hríng, sem hún fagnar að bera.
Hún vill ekki tálvon í tign síns manns,
nje tína sitt frelsi’ upp úr vösum hans.
Og fóstran, sem þráir að sjá okkur sæl
á sigurför hlekklausra þjóða:
hún fagnar þjer, sonur, sem fórst ekki’ á hæl
í fylgi með málefnið góða.
Já, vel sje þjer, Skúli. Við vorum menn.
Nú verður það sýnt, hvað við dugum enn.
ÞORSTEINN ERLINGSSON.
Ólafsson (Tryggvasonar) á Kirkju-
bóli, voru gefin saman í hjóna-
band 22. maí s.l.
Betty Marzellíusdóttir og Sigur-
björn Magnússon, rafvirki, Hofs-
ósi, voru gefin saman í hjóna-
band 5. júní s.l.
Þann 22. maí s.l. voru gefin
saman i hjónaband ungfrú Guð-
rún Friðrikka Pétursdóttir og
Eyjólfur Guðmundur Ólafsson,
Isafirði. — Sóknarpresturinn, séra
Sigurður Kristjánsson gaf brúð-
hjónin saman.
Petrína Sigrún Georgsdóttir og
Solomon Sigurðsson, sjómaður,
voru gefin saman í hjónaband 29.
maí. Sr. Magnús Guðmundsson
gaf brúðhjónin saman.
Sigrún Stella Ingvarsdóttir og
Ágúst Haraldsson, vélvirkjanemi,
voru gefin saman í hjónaband í
Reykjavík 22. maí s.l. af sr. Jóni
Auðuns.
Hörmulegt slys.
Þann 28. maí s.l. varð það
hörmulega slys að skriða féll á
Guðmund Óla Guðjónsson héðan
úr bæ, er hann var að síga í
Hornbjarg. Var grjóthrunið það
mikið, að nærri lá að þeir, sem á
brúninni voru að gæta festarinn-
ar, færu fram af. Sigið var niður
til mannsins og tókst að koma
honum upp með lífsmarki, en
hann andaðist litlu síðar.
Guðmundur óli Guðjónsson var
fæddur í Skjaldarbjarnarvík í
Strandasýslu 20. des. 1914. Hann
lætur eftir sig konu, Petólínu Sig-
mundsdóttur og þrjú ung böm.
Hann var þaulvanur fyglingur.
Flutt úr bænum.
Bjarni Sigurðsson, læknir og
frú hans, dr. Fríða Sigurðsson,
eru fyrir nokkru flutt úr bænum
til Keflavíkur, en Bjarni verður
yfirlæknir við sjúkrahúsið þar.
Richard Beck í
heimsókn.
Þann 9. þ.m. komu þau hjónin
Bertha og dr. Richarð Beck, pró-
fessor í Norður-Dakota, hingað
til bæjarins í boði Stórstúku ís-
lands og nokkura vina þeirra hér.
Að kvöldi sama dags gengust
nokkrir vinir þeirra hjóna fyrir
almennri samkomu í Alþýðuhús-
inu þeim til heiðurs, en þennan
dag átti d'r. Bech sextugsafmæli.
Þar töluðu Jóh. Gunnar Ólafs-
son, bæjarfógeti, dr. Richarð
Bech, Þórleifur Bjarnason og
Karlakór Isafjarðar söng. Þar á
meðal var kvæði, sem Haraldur
Leósson, kennari, hafði ort til af-
mælisbarnsins.
-------0-------
Sjómannadagurinn.
Hátíðahöld sjómannadagsins hér
á Isafirði voru með líku sniði og
undanfarin ár.
Dagurinn hófst með guðþjón-
ustu í ísafjarðarkirkju kl. 10,30
f.h. Sóknarpresturinn, séra Sig-
urður Kristjánsson, messaði. Kl.
1,30 e.h. hófst skemmtun á báta-
hafnaruppfyllingunni. Lúðrasveit
ísafjarðar lék, Marías Þ. Guð-
mundsson, form. sjómannadags-
ráðs, flutti ræðu, þá var keppt í
róðri í tveimur flokkum, land-
menn og sjómerin, beitingu, sundi,
vírsplæsi og netahnýtingu. I kapp-
róðri sigruðu hásetar á Sólborg,
úr flokki sjómanna, og starfs-
menn K.I., úr flokki landmanna.
Höfðu þeir síðarnefndu bezta tím-
ann. I sundi sigraði Agnar Agn-
arsson, í beitningu Hans Alexand-
ersson og í splæsi og netahnýt-
ingu Sturla Halldórsson.
Síðar um daginn var knatt-
spyrnukeppni milli togarasjó-
manna og bátasjómanna og sigr-
uðu þeir síðarnefndu. Um kvöldið
var skemmtun í Alþýðuhúsinu.
Þar flutti Ásberg Sigurðsson,
framkvæmdastjóri, ræðu, Karla-
kór ísafjarðar söng, verðlaun fyr-
ir afrek dagsins voru afhent og
Filip Þór Höskuldssyni björgunar-
verðlaun sjómannadagsins og
slysavarnafélagsins.
-------o-------
440 bæjarbúar hafa nú synt 200
metrana, — þar af eru 310 skóla-
nemendur. Hlutur utanskólafólks
er því heldur smár ennþá.
Um síðustu mánaðarmót var ísa-
fjörður hæstur í keppninni, af
kaupstöðum landsins. Herðum
sóknina og höldum forystunni, —
biðjið um sértíma í Sundhöllinni,
ef það hentar yður betur.