Baldur - 19.04.1958, Síða 4
BALDUR
★ ★ ★
FRA BÆJARSTJORN
Nýir borgarar.
Halldór Friðgeir, fæddur í
Fremri-húsum í Arnardal 2. des.
1957. Foreldrar: Fríða ólafsdóttir
og Guðmundur Matthíasson,
Fremrihúsum.
I'orbjöm Halldór, fæddur á ísa-
firði 24. ágúst 1956. Foreldrar:
Guðríður Matthíasdóttir og Jó-
hannes Jónsson, Isafirði. — Báðir
skírðir 3. apríl 1958.
Hannes, fæddur á ísafirði 12.
des. 1957. Foreldrar: Fjóla Hann-
esdóttir og Óskar Friðbjörnsson,
Hnífsdal.
HalLdór, fæddur á Isafirði 22.
sept. 1957. Foreldrar: Guðrún
Gísladóttir og Þórólfur Egilsson,
Hlíðarveg 5, ísafirði. — Báðir
skírðir 6. apríl 1958.
Magnús, fæddur á Isafirði 2.
des. 1957, skírður 13. apríl 1958.
Foreldrar: Kristín Þórarinsdóttir
og Guðfinnur Magnússon, Brunn-
ögtu 20, ísafirði.
Hjúskapur.
Þann 31. marz s.l. voru gefin
saman í hjónaband af sóknar-
presti, séra Sigurði Kristjánssyni,
ungfrú Fjóla Hannesdóttir og
Stefán Friðbjörnsson. Heimili
þeirra er í Hnífsdal.
Þann 5. þ. m. voru gefin saman
í hjónaband af sóknarpresti, séra
Sigurði Kristjánssyni, ungfrú
Edda Katrín Gísladóttir og Hall-
dór Hermannsson. Heimili þeirra
er í Mjógötu 3, ísafirði.
Skákkeppni í Vélsmiðjunni
Þór h.f.
/Nýlega er lokið hinni árlegu
skákkeppni í vélsmiðjunni Þór h.f.
Keppt var um bikar gefinn af Ól-
afi Guðmundssyni, forstj. Hand-
hafi bikarsins var Jóhannes Þor-
steinsson, en bikarinn hlaut að
þessu sinni Jón Þorbergsson.
Keppendur voru 13 og keppt í ein-
um flokki. Flesta vinninga
höfðu:
1. Jón Þorbergsson 11 y2 vinning,
2. Jóh. Þorsteinsson 10 vinninga
og 3. Guðm. Þorvaldsson 9 y2 vinn-
ing.
Hljómleikar L. I.
Lúðrasveit ísafjarðar hafði
hljómleika í Alþýðuhúsinu 21. f.m.
Ritstjóri Baldurs hafði ekki ástæð-
ur til að sækja hljómleikana, en
honum hefur verið sagt, að þeir
hafi tekist ágætlega og verið
Lúðrasveitinni og stjórnanda
hennar til sóma. Lúðrasveitin hef-
ur einnig haldið hljómleika í Bol-
ungarvík og Hnífsdal, og flogið
hefur fyrir að hún ætli að endur-
taka hljómleikana hér. Ef svo
verður, gefst bæjarbúum tækifæri
til að bæta fyrir alltof lélega að-
Bæjarstjórnarfundir voru haldn-
ir 19. marz, 2. og 16. apríl.
Helztu samþykktir fundarins 19.
marz voru þessar:
Sinjað erindi lögreglustjórans á
Keflavíkurflugvelli þess efnis að
bæjarsjóður Isafjarðar greiði kr.
906,75 af kostnaði vegna löggæslu-
manns s.l. ár til viðbótar við það
sem áður hefur verið samþykkt að
greiða.
Erindi hafði borist frá Ragnari
Ásgeirssyni, héraðslækni, þar sem
vakin er athygli á lögum um
hundahald frá 1953 og reglugerð
nr. 201 frá 31. des. 1957. Bæjar-
ráð lagði til að notuð yrði heimild
nefndra laga um bann gegn hunda-
haldi. Samþykkt var breytingar-
tillaga við tillögu bæjarráðs þess
efnis, að þeir, sem nú eiga hunda
í bænum, megi láta þá lifa, en
þeir mega ekki fá sér eða ala upp
hunda í þeirra stað.
Bæjarráði hafði borist bréf,
dags. 6. marz s.l. undirritað af
trúnaðarnefnd kvenná, sem rætt
hefur við bæjarráð um útsvars-
ívilnun vegna þeirra giftu kvenna
sem vinna að útflutningsfram-
leiðslunni. í bréfinu var skýrt frá
fundarsamþykkt, sem gerð var 27.
febrúar s.l. á þá leið, að konurnar
taka enga afstöðu til sérsköttunar
hjóna en ítreka fyrri kröfu um
það, að 15 þús. kr. verði útsvars-
íríar, en til vara telja þær sig geta
fallist á að viss hundraðshluti af
tekjum kvennanna verði útsvars-
frír. í bréfinu var óskað að af-
greiðslu málsins verði hraðað.
Ákvörðun frestað.
Á bæjarstjórnarfundi 26. febr.
s.l., þegar fjárhagsáætlun var sam-
þykkt, lögðu sjálfstæðismenn fram
svohljóðandi tillögu:
„Bæjarstjórn Isafjarðar sam-
þykkir að við niðurjöfiiun út-
svara fyrir árið 1958 verði látin
gilda sama regla fyrir alla ein-
staklinga bæjarfélagsins, jafnt
gifta sem ógifta, þ. e. sérsköttun
lijóna. Er niðurjöfnunarnefnd
falið að sef ja nýjan útsvarsstiga
sókn á fyrri hljómleikana og njóta
um leið ánægjulegrar skemmtunar.
Togararnir.
B.v. Sólborg landaði hér 8. þ.m.
256 lestum af fiski eftir hálfsmán-
aðar veiðiför. Verulegur hluti afl-
ans fór í skreið og „gúanó“, og
mikill hluti gotunnar var ónýtur.
B.v. Isborg kom af veiðum 13.
þ. m. með um 220 lestir.
með tilliti til þessa og leggja fyr-
ir bæjarstjórn, svo fljótt sem
verða má, tillögur sínar um per-
sónufrádrátt.“
Tillögunni var vísað til bæjar-
ráðs. Þegar hún var tekin þar til
umræðu lögðu sjálfstæðismenn
fram aðra tillögu svohljóðandi:
„Bæjarstjórn samþykkir að við
niðurjöfnun útsvara á þessu ári
verði tekin upp sérsköttun hjóna
þannig að samanlagðar tekjur
hjóna verði skipt til helminga og
jafnað niður útsvari sem um tvo
einstaklinga væri að ræða. Fjöl-
skildufrádrætti verði skipt að
jöfnu milli hjóna.“
Þessi endurfædda tillaga sjálf-
stæðismanna var felld á bæjar-
9tjórnarfundinum, að viðhöfðu
nafnakalli, með 5:4 atkvæðum.
Samþykkt var að fela skóla-
stjórum gagnfræða- og barnaskól-
ans að athuga möguleika á, að héð-
an verði gerður út bátur í vor, til
þess að gefa unglingspiltum kost
á að stunda handfæraveiðar. Skulu
þeir leggja niðurstöður sínar fyrir
bæjarráð sem fyrst.
Bréf höfðu borist frá Sigurði
Thoroddsen, verkfræðingi, varð-
andi vatnsveitumál, dags. 6. og 8.
marz s.l. — Leggur Sigurður til í
fyrra bréfinu að gerðar verði
vatnsmælingar nú í vetur og legg-
ur á ráðin um hvernig að því skuli
farið. Upplýsti bæjarstjóri í því
sambandi, að hann hefði beðið
Kristján Halldórsson að annast
þær mælingar. í síðara bréfinu er
lausleg kostnaðaráætlun um bygg-
ingu 1000 tonna vatnsgeymis að
upphæð kr. 600,000,00.
Samþykkt að veita Jóhannesi
Jakobssyni, Seljalandsvegi 52, kr.
15.000,00 lán úr byggingalánasjóði
á þessu ári, enda verði ákvæðum
regdlugerðar sjóðsins fullnægt.
Ingvi Guðmundsson, Hafnar-
stræti 6 fær leyfi til að byggja
íbúðarhús á leigulóð nr. 27 við
Engjaveg. — Ágúst Guðmundsson
fær leyfi til að byggja verkstæði
á húslóð sinni nr. 11 við Fjarðar-
stræti. — Bræðurnir Magnús og
Guðmundur Bjarnasynir fá leyfi
til að flytja hús sitt nr. 28 við
Tangagötu á lóð við Austurveg
austan við hús Halldórs Gunnars-
sonar og í sömu götulínu og það.
Byggður verði eldvarnarveggur við
austurgafl hússins. — Jakob Ein-
arsson, Brunngötu 12 B, fær leyfi
til að hækka forstofuskúr og
byggja reykháf við hús sitt á
nefndum stað.
Akið ekki um íþróttavöllinn
Einhver eða einhverjir bílstjór-
ar hafa framið þau spjöll á
íþróttavellinum, að aka bifreið um
hann nú nýlega. Þetta er, eins og
allir vita, stranglega bannað, og
ber sérstaklega að fara eftir því
banni, þegar snjó og klaka er að
leysa af vellinum á vorin og jarð-
vegur því gljúpur. Það eru því ein-
dregin tilmæli íþróttamanna í bæn-
um, að bílstjórar hafi þetta bann í
heiðri, enda er þeim það algerlega
meinalaust.
Leiðréttingar
1 greininni Frá bæjarstjórn, sem
birtist hér í blaðinu 5. marz s.l.
segir að samþ. hafi verið að selja
Rafmagnsveitum ríkisins raforku
handa Súðavíkurkauptúni á 8 aura
kílóvattstund. Þetta er ekki rétt.
Verðið er: Árskílóvatt á kr. 700,00
og 8 aurar fyrir hverja unna kíló-
vattstund.
Þá eru þær villur í síðasta blaði,
að stöðvarhús orkuversins í Bol-
ungarvík er sagt 1000 fermetrar í
stað 100 fermetrar. 1 afmælisgrein
um Bjarna E. Kristjánsson í sama
blaði er ekki rétt, að Jóna, dóttir
hans heiti tveimur nöfnum, heldur
er það Anna; hún heitir fullu nafni
Anna Sólveig.
Á fundinum 2. þ. m. voru fá mál
á dagskrá. — Samþykkt var að
heimila bæjarstjóra að panta
vatnsmæla og tæki til að hlusta
eftir leka á vatnsleiðslum. Verða
þessi tæki pöntuð í samráði við
Sigurð Thoroddsen, verkfræðing.
Einnig var samþykkt erindisbréf
heilbrigðisfulltrúa og að leyfa
Hallfríði Halldórsdóttur, Sund-
stræti 37, að byggja viðbyggingu
við nefnt hús. Hús þetta stendur
við austurenda fyrirhugaðrar
Skólagötu og er með þinglýstri
kvöð um að bæjarsjóði sé áskilin
forkaupsréttur að húsi og lóð.
Leyfið er veitt með því skilyrði að
viðbyggingin verði rifin og flutt
brott bænum að kostnaðarlausu,
þegar þess verður krafist. Komi
til sölu á húsinu og noti bærinn
forkaupsrétt, miðist verðið við
hús og lóð án viðbyggingar.
Frestað var að afgreiða erindi
frá F.O.S:!., f. h. lögregluþjóna
bæjarins, um að greiðslur fyrir
vakta- og eftirvinnu verði færðar
til samræmis við launakjör lög-
regluþjóna annara bæjarfélaga.
Bréf hafði borist frá Sjálfstæð-
iskvennaíélagi Isafjarðar, þar sem
skorað er á bæjarstjórn að breyta
fyrirkomulagi á starfrækslu
barnaleikvallarins frá því sem ver-
ið hefur undanfarið í það horf, að
á virkum dögum verði föst gæzla
á vellinum t. d. frá kl. 10—12
f. h., og verði börnum þá ekki leyft
að fara út af vellinum nema í fylgd
með fullorðnum eða barnfóstrum.
Bent er á, að fyrir slíka þjónustu
mætti hugsa sér að taka eitthvað
Framhald á 2. síðu.