Vikutíðindi - 03.02.1961, Qupperneq 5

Vikutíðindi - 03.02.1961, Qupperneq 5
VIKUTÍ ÐINDI 5 Hallvarður lausamaður: PISTILL DAGSIIMS Stjörnuhrap Hinir sómakæru forustu- menn Kommúnistaflokksins reyna eftir mætti að feta í fótspor húsbænda sinna í Kreml. Aftöknr tíðka þeir þó ekki liér heima á fslandi. En hinsvegar bregða þeir því fyrir sig að setja menn út af sakramentinu, ef svo ber undir. Síðasta fórnarlamb flokksforustunnar í þessum efnum er Ingi R. Helgason, sem þar til á miðju s. 1. sumri var framkvæmda- stjóri flokksins. Ingi var látinn hætta starfi sínu hjá Sósíalistaflokknum og við tók Eggert Þorbjamarson. Jafnframt var Inga bannað að mæta á fundum bæjar- stjómar Reykjavíkur, en þar var hann fyrsti vara- fulltrúi flokksins. Þjóðvilj- inn hefur ekki minnzt einu orði á þennan foringja mán- uðum saman og Ingi hefur hvergi komið fram fyrir hönd flokksins þegar frá er talin liðveizla konunúnista við Daníel á Akranesi. Inga mun vera gefið að sök að hann hafi haft með höndum umfangsmikið brask í ýmsum myndum og telja foringjar flokksins hyggilegra að víkja Inga til hliðar, ef honum kynni að verða fótaskortur á hinum hála vegi braskaranna. Síðustu fregnir af Inga R. eni þær að hann hafi nú verið dæmdur til útlegðar á Skipaskaga til halds og trausts Daníelsættkvísl framsóknarmanna þar í sveit. Konsúlsbrennivín Á bannánmum voru lækn- ar og konsúlar vinsælustu starfsstéttir hér á landi. Læknabrennivín og konsúls- brennivín þóttu þá eftirsótt- ustu fríðindi sem þyrstir menn gátu öðlast í hinum eilífa þurki. Sendiráð Sovétríkjanna hér á landi mun hafa feng- ið einhvem nasaþef af þess- um fyrri vinsældum er- lendra sendimanna. Fyrir jólin sendu Rússar öllum starfsmönnum íslenzku flugþjónustunnar á Kefla- víkurflugvelli „glaðning“, yfirmenn fengu allt að því 3 flöskur af Vodka, óbreytt- ir starfsmenn eina flösku en þrír eða fjórir fengu aðeins rauðvín, en það voru einu sjálfstæðismennirnir sem vinna í flugþjónustunni á Kgflavíkurflugvelli, munu Rússar hafa talið að ekki veitti af að hressa upp á blóðlitinn í þessum íhalds- mönnum. Sjálfstæðisbarátta Eyjakomma Þegar Dagsbrún lagði fram kaupkröfur sínar fyr- ir áramótin var þess getið að Dagsbrún hefði haft sam- ráð við verkamannafélögin í Hafnarfirði, Siglufirði og AkureyTÍ um kröfugerðina, samningagerðina og aðrar aðgerðir. Það vakti sérstaka athygli að verkainannafé- lagið í Vestmannaeyjum, sem kommúnistar stjórna, var ekki með í þessari „sam- stöðu“. Skýringm er nú komin fram. Vestmanna- eyjakommar neituðu öllu samstarfi við kommúnista á meginlandinu. Eyjakomm- ar vildu sem sé hafa meiri hraða í atburðarásinni. Eyjakommar hafa ekki lát- ið sitja við orðin tóm, þeir hafa þegar hafið verkfall meðal landverkafólks í Vest- mannaeyjum gegn vilja meginlandskomma, sem telja Eyjakomma ekki þess umkomna að skapa neitt nýtilegt fordæmi um kjara- bætur til handa verkamönn- um. Já, kommar á megin- Iandi Islands hafa eignast sína Formósu og sinn Karl Sjang Kai Sjek. Gullöld ávaxtanna Tveir ófiðraðir lyftu sér til flugs s. 1. sumar! Það voru á forsíðum blaðanna í marga daga fréttir um það að Haraldur Gíslason og Pétur Einarsson væru ýmist Á stóru myndinni hér á síöunni sjást 6 af þeim hlaup- prum, sem einna mest hafa komið við sögu spretthlaup- anna á undanfömum árum. Þeir eru talið frá vinstri: Bobby Morrow, sigurvegari í 100 m og 200 m á Ólympíu- leikunum i Melboume. Hann á bezt í 100 10,2 og í 200 m 20,6. Þá kemur Leamon King, sem varð fjórði maðurinn til að hlaupa 100 m á 10,1. Næst- ur er svo Hary, heimsmet- nafinn í 100 m á 10,0, hann á bezt 20,5 í 200 m, en það er hlaupið með hálfri beygju og jafngildir 20,7. Dave Sime er næstur Hary, hann á bezt 10,1 í 100 og 20,0 í 200, en það er hlaupið á beinni braut. Þá kemur Ira Murcnison, sem varð annar í 100 m í Mel- boume, hann varð einnig þriðji maðurinn, sem náði 10,1 í 100 m. Lengst til hægri er svo sú gamla kempa An- drew Stanfield, sem varð sig- urvegari í 200 m á Ól. í Hels- ingfors og annar í Melbourne og fékk sama tímann í bæði skiptin, 20,7. Hans bezti árangur í 200 m er 20,6. hér heima eða eríendis að selja fisk, sem flogið skyldi með til útlanda. Það var hreint ekki svo lítið að slte. Nú var komið nýtt móment Þarna var tæknin tekin í í fisksölumál þjóðarinnar. þjónustu fisksalanna; þátta- skil fyrir útgerðina. Verðið var hagstætt og ekki var hann amalegur varningur- inn, sem kaupa skyldi inn til landsins fyrir gjaldeyr- irinn: ávextir lesnir beint af trjám og dýsæt, hrað- fryst jarðarber. Þjóðin bók- staflega stóð á öndinni yfir framtakssemi þeirra félaga og annara, sem sáu þarna himinhæðir af erlendu gulli. Það \oru leigðar flugvélar til starfseminnar og vestur í Selsvör var opnaður stór gluggi á neðstu hæð og á- vextir seldir þaðan í smá- sölu. Og þessir flugfiskkóngar auglýstu dag eftir dag í dagblöðunum að nú skyldu landsmenn loksins láta það eftir sér að éta nýja ávexti. Kaupmenn tóku smjörið og ostinn út úr ísskápunum og settu hið frosna lostæti í þá og á búðarborðunum var rýmt til fyrir loðnum ferskj- um og fjólubláum plómum. Upp var runnin ávaxtaöld Islendinga. Það var aðeins eitt, sem skyggði á gleði þjóðarinnar: almenningur liafði ekki þau fjárráð, að hann gæti veitt sér þessa gleði lífsins. Böm- in stóðu við hlið mæðra shina í verzlununum og grátbáðu um flugávextina. En fjárhagur heimilanna leyfði ekki að mæðurnar keyptu plómur eða jarða- ber. Og eftir nokkrar vikur voru ávextirnir gleymdir og Haraldur og Pétur og Loft- ur o. fl. vom horfnir af for- síðum blaðanna. Flugfisk- nrinn lenti liljóðri maga- lendlngu. Sagt er að til séu I land- inu birgðir hraðfrystra ávaxta fyrir tugi ef ekki hundruð þúsunda króna. Uppgjör þessara viðskipta mun enn ókomið, en veður öH válynd og vinimir H. og P. heilsast kuldalega og maður uppí Borgamesi lief- ur ekki enn fengið 300 þús. kr. fyrir laxinn smn og Steingrímur í Fiskhöllinni kvað ekki lengur liafa efni á því að taka í nefið fyrir eigin reikning.

x

Vikutíðindi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikutíðindi
https://timarit.is/publication/1015

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.