Heimilispósturinn - 25.03.1961, Page 13

Heimilispósturinn - 25.03.1961, Page 13
ÉG EH BÚINN að sjá seinustu kvikmyndina, sem James Dean lék í. og innan skamms gefst Reykvik- ingum kostur á að sjá hana í Aust- urbæjarbíói. James Dean var sérstakur leikari, svo að hann átti engan sinn líka. Hann hefur verið stseldur af leikur- uni, í kvikmyndum sem á sviði, um allan heim, en enginn komizt nærri honum. Það er einkenni snillinga í leik og söng að kunna að fram- kvæma hlut þannig, að enginn geti gert eins, hversu góðri rödd eða fasi hann kann að vera gæddur. James Hean hefur haft heldur leiðinlega rödd, og fas hans er slyttislegt, svo að nálgast stimdum bjálfalegt, — en innlifun hans og túlkun, beizkjan i látæðinu, undirgefnin í svipnum, glampinn í augunum, bresturinn i röddinni, allt er þetta svo eðlilegt °g óþvingað, að maður gerir sér 'jóst (kannski loksins), að þarna er um fullkomna meðferð, sem á ekkert skylt við leikaraskap eða ýkjur, á hlutverki að ræða. Meðan ég horfði á myndina var sífellt að brjótast í hausnum á mér spurningin, hver væri þessi risi, sem myndin er heitin eftir. Og ég var alls staðar að finna hann. % sá hann í stóru jörðinni, sem hélt ibúum sínum heljartökum og gerði þá ánauðuga sér. I hugsunar- hætti hvítu Texasbúanna, sem við- urkenndu ekkert annað en hinn hvíta kynþátt og meðhöndluðu þá hörundsdekkri eins og skepnurnar, sem þeir ráku til smölunar og brennimerkingar búhöldsins, þegar hann loksins gerir sér villu sína ljósa. Hann fannst líka í búhöldinum, RISIHIHl er veglegur minnisvarði JAMES DEAN sem vill móta alla i kring- um sig eftir geðþótta sínum og duttlungum. I olíunni, þessum risa- auðæfum jarðarinnar, sem á svip- stundu breyttu aumasta vikapilti í auðkýfing, margfalt voldugri sínum fyrri húsbónda. Kannski er hann eitthvað af þessu, eða allt, — eða Séð á prufusýningu kannski eitthvað, sem ég hef ekki gert mér grein fyrir þennan tíma (3% klst.) sem myndin stóð. Ég hef ekki lesið bókina. Efnið er í sjálfu sér ekki marg- slungið, væri nánast róman á borð við ýmsar ættarsögur úr suðurríkj- unum, sem náð hafa vinsældum í framhaldssöguformi. En meðferðin á því á köflum hefur myndina upp yf- ir aðrar, sérstaklega hvað leik snertir. Texas er auðugt fylki i Bandarikj- unum. Þar voru nautgripahjarðir stórar og haglendi gott, landrými geysilegt. Þar gerðust menn vellauð- ugir á striti sinu, og tók sonurinn ætíð við búinu af föðurnum. Rock Hudson er slíkur milljónamæringur, og sækir sér konu í gróður- sælla og menningarlegra fylki, Elizabeth Taylor. James Dean er vikapiltur á búinu, honum tæmist einskonar arfur, laun fyrir margra ára þjónustu, sem hann kaupir land- skika fyrir af Rock, og upphefur hokur sitt. Getur sér óþökk annara, — nema Liz, sem hann elskar útaf lifinu, — fyrir það að sinna ekki nautgriparækt, heldur fiktar við að grafa eftir olíu. Rock er beinn af- komandi feðra sinna. Enginn, og allra sízt Liz, má hrófla við gömlum venjum og siðum á búinu, og tekst henni þó með lagni að lempa hann til, svo að búandi er með honum. Þau eignast þrjú börn, og hneigist hugur einkasonarins að hugnæmari efnum en búsýslu, sem hann vill ekki sjá, föður hans til mikilla vonbrigða. Sagan spannar yfir all-langan tíma. James finnur olíu og verður vell-auðugur, börnin vaxa úr grasi, og fara sínar eigin leiðir. Einkason- urinn gerist ekki aðeins læknir, held- ur gengur að eiga indíánastúlku, og hlýtur af margan skell. Eldri dótt- irin tekur sér eiginmann strák úr nágrenninu, sem þegar til kemur vill alls ekki taka við jörðinni, heldur .. nn ■. I I liift j* Islenzkur texti í kvikmyndir Fyrir nokkru var sýnd hér i Austurbæjarbíói kvikmyndin ÉG JáTA. Hafði verið settur i hana íslenzkur texti, og hlaut myndin feiknlega aðsókn. Var áhorfendum gef- inn kostur á að láta i ljós álit sitt, hvort taka bæri almennt upp íslenzkan texta. 97.1% þeirra svaraði hiklaust játandi. Það fer ekki á milli mála, að margar stórmyndir, sem hingað hafa verið keyptar vegna orðstýrsins, sem þær hafa getið sér erlendis, hafa kolfallið eða valdið hinum meshi vonbrigðum. Ástæðan? Seinustu árin hefur mjög verið hvarflað til raunsæis i kvikmyndagerð, sem hlýtur að hafa í för með sér, að atburðarásin byggist mjög á samtölum, þar sem atburðirnir voru áður látnir skýra efnið. Þetta veldur því, að áhorfandi, sem ekki er þvi betur að sér í tungumálinu, verður að geta sér til um efnið að mestu Ieyti, og oft vill þráðurinn slitna. Engu kvikmjTidahiisi hér dettur í hug að sýna franska, þýzka eða ítalska mynd án dansks texta, — en hvað um þær ensku og amerísku? A að ganga út frá því sem gefnu, að allir kvikmyndahúsagestir séu það vel að sér í málinu, að þeir snúi á andartaki í hausnum á sér strembnasta klassísku máli eða slangi úthverfalýðs stórborganna, sem bezt gerðu persónur kvikmyndanna eru oft látnar taka sér í munn ? Sem dæmi erlendis frá má geta þess, að í Danmörku og Svíþjóð eru innfluttar myndir alis ekki sýndar án texta. Stórþjóðirnar skipta beinlínis um tal í erlendum myndum. 1 Nato-bíóinu í París getur áhorfandinn valið um þrjú tungumál í heyrn- artækjum, sem honum eru fengin! Það er því gerð talsvert meiri krafa til mála- kunnáttu íslenzkra bíógesta en tiðkast hjá öðrum þjóðum. Heimilispósturinn vill gjarnan lieyra álit lesenda sinna á þessu atriði, og verður betur um það fjallað síðar. Við teljum liins vegar, að það sé ekki nema sanngirn- iskrafa, að kvikmyndahúsin láti setja islenzkan texta í kvikmyndirnar, að minnsta kosti þær stórmyndir, sem illskiljanlegar eru með öðru móti. byrja smátt upp á eigin spýtur. Rock leggur því nautgripina á hilluna og leigir jörð sína auðkýfingnum James til olíuvinnslu, — og verður sjálfur vellauðugur af. Undir lokin hleypur loks rembi- hnútur á snærið, sem ekki verður leystur nema með því að höggva á hann, — og það er gert rækilega. Rock losnar við fordóma sína og öðl- ast loks í augum konu sinnar þann hetjuljóma, sem hann hefur alltaf þráð . . . Ég er hræddur um, að ef James Dean hefði ekki notið við, hefði myndin orðið skrambi langdregin. Elizabeth Taylor er að vísu hin feg- ursta og víða sýnir hún skap, en hana vantar þá reisn og tign, sem ýmsar samlöndur hennar hafa til að bera, eins og Vivien Leigh til dæmis. Rock Hudson er i senn snotur og nokkuð búralegur, betri en maður hefði getað búizt við af honum í þessu hlutverki. Þarna bregður fyrir Sal Mineo með tindrandi augu og ýmsum fleiri úr yngri leikarastétt sem eldri. Að lokum: minnisstæðu atriðin eru mörg, — öll í sambandi við Ja- mes Dean. Myndin er veglegur minn- isvarði hans. béhá.

x

Heimilispósturinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimilispósturinn
https://timarit.is/publication/1016

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.