Ný dagsbrún - 13.03.1973, Blaðsíða 3
Þriðjudagur 13. marz 1973.
NY DAGSBRÚN
Marxisminn - Leninisminn
-leiðarvisir um námsefni
MARX OG ENGELS
Um æfi og störf Marx og Engels er að sjálf-
sögðu til sægur rita, bæði á sviði almennrar
sögu og persónusögu. Engin þesskonar rit
verða hér talin, þar sem það er ekki tilgangur
þessara þátta að fjalla um sögunám almennt
eða persónusögu sérstaklega, heldur að benda
á þau rit ein, sem duga til skilnings á kjarn-
anum í fræðikenningum sósíalismans. Eftirtal-
in rit er mönnum ráðlagt að lesa, sem inngang
að frekara námi, til þess að átta sig á þýð-
ingu Marx og Engels fyrir stéttabaráttu verka-
lýðsins og hins vísindalega sósíalisma, í rétt-
um sögulegum tengslum við þróun þjóðfélags
og vísinda.
ENGELS: Karl Marx. (Á íslenzku í Úrvalsrit-
um Marx og Engels I. bindi).
Þessi ritgerð Engels var skrifuð 1877 fyrir
„Þýzka alþýðualmanakið". Hún inniheldur
stutt yfirlit yfir æfi Marx og störf og sýnir
að fræðistörf sín vann Marx mitt í önnstétta-
baráttunnar, sem ritstjóri „Rínartíðinda" og
„Þýzk-franskrar árbókar", meðlimur Komm-
únistabandalagsins og stofnandi og leiðtogi
Fyrsta alþjóðasambandsins. Engels bendir á
tvær helztu uppgötvanir Marx: söguskoðun
efnishyggjunnar og uppgötvun hans um eðli
gildisaukans, sem skýrir tengsl auðmagns og
vinnu. Engels lýsir stuttlega mikilvægi þess-
ara uppgötvana.
ENGELS: Ræða haldin við gröf Karls Marx
(í Highgate-kirkjugarði 17. marz 1883. Á ís-
lenzku í lírvalsritum I. bindi).
1 ræðunni víkur Engels enn að hinum
tveimur höfuðuppgötvunum Marx. 1 lok ræð-
unnar segir hann:
„Marx var umfram allt byltingarmaður.
Það var raunveruleg köllun hans að vinna að
því á allan hátt að kollvarpa þjóðfélagi auð-
valdsins og ríkisstofnana þess. Það var lífs-
starf hans að vinna að frelsun verkalýðs nú-
tímans, alþýðunnar sem hann hafði vakið til
skilnings á kjörum sínum og þörfum — og
gert vitandi vits um skilyrðin fyrir eigin
frelsun".
LENIN: Þrír höfuðþættir marxismans og ræt-
ur þeirra. (Á ísl. Ný dagsbrún 7. II. 1970),
I þessari stuttu ritgerð lýsir Lenin því
hvernig kenningar Marx „hófust sem beint,
óslitið framhald af kenningum helztu fulltrúa
heimspeki, hagfræði og sósíalisma" þeirra
tíma. En Marx umbylti kenningum fyrirrenn-
ara sinna. Heimspeki Marx, efnishyggjan var
til fyrir daga hans, en hann umbylti henni og
dýpkaði með díalektikinni. Hann færði efnis-
hyggjuna yfir á þjóðfélagsfræðina og söguna
(sögulega efnishyggjan) og sýndi fram á að
hagskipulagið er grundvöllurinn sem öll
stjómskipuleg og hugmyndafræðileg yfirbygg-
ing þjóðfélaganna hvílir á. Marx rannsakaði
hagskipulag auðvaldsþjóðfélagsins sérstak-
lega. Kenning hans um gildisaukann er hym-
ingarsteinn hagfræðikenningar hans. Hann
rannsakaði sögu kapítalismans frá því að
markaðsvöruframleiðsla hófst, frá einföldum
vömskiptum til stóriðju og sýndi fram á að
auðvaldsframleiðslan fæðir af sér verkalýðs-
stéttina, sem væri eina þjóðfélagsaflið sem
væri þess umkomið að skapa nýja þjóðfélags.
hætti.
LENIN: Karl Marx.
Bæklingur þessi, sem Lenin ritaði í útlegð
í Sviss inniheldur æviágrip Marx og stutt, en
einkar Ijóst yfirlit um kenningar hans. Það
er í sjö eftirtöldum köflum: 1. Efnishyggju-
heimspekin. 2. Díalektikin. 3. Söguskoðun
efnishyggjunnar. 4. Stéttabaráttan. 5. Hag-
fræðikenning Marx. 6. Sósíalisminn. 7. Bar-
áttuaðferðir öreiganna í stéttabaráttunni. (Yf-
itlit þetta um kenningar Marx er þýtt og birt
í Rétti 15. árg. 1930 undir heitinu: Marxism-
inn).
LENIN: Friedrich Engels.
Ritgerð þessi er samin í tilefni af dauða
Engels 1895. Lenin gerir þar stutta grein fyrir
æfi og störfum Engels, samstarfi hans við
Marx og helztu ritverkum hans.
Þýðingu þessara tveggja manna fyrir verka-
lýðsstéttina lýsir hann þannig:
„1 sem fæstum orðum mætti lýsa afrekum
Marx og Engels fyrir .verkálýðsstéttina þann-
ig: Þeir kenndu verkalýðsstéttinni að þekkja
sjálfa sig og verða stéttvís og þeir settu vís-
indi í stað draumóra.-------Frelsun verkalýðs-
ins hlýtur að verða eigið verk hans. Það var
ætíð kenning Marx og Engels".
Forréttindi útgerðarauðvaldsins...
Frh. af 1. síðu.
Núv. kaup 31% hækk.
Hásetar 18.837 24.676
Netamenn 21.176 27.740
Bátsm. og
matsveinar 24.702 32.359
Það verður ekki með sanni
sagt, að 18.837 kr. mánaðarkaup
sé neinar rosatekjur eins verðlít-
il og íslenzka krónan er orðin í
dag, og hraðfallandi. Sízt af öllu
getur þetta talizt nokkrum
manni bjóðandi, þegar hafður er
í huga vinnutími togarasjó-
manna og vinnuaðstæður, 12
klst. vinna á sólarhring alla daga
jafnt helga daga sem virka og
eini „frídagur" þeirra á sjó er 2
klst. stanz á aðfangadagskvöld.
Á þessu hafa útgerðarmenn enn
ekki áttað sig eftir að hafa haft
framlagðar kröfur til athugunar
Áfangasigur Iiefur náðst í Víetnam me3 friðarsamkomulag-
inu frá 27. janúar. Nú hefst nýr og veigamikill þáttur í
uppbyggingarstarfinu og baráttunni fyrir varanlegum friði.
Þjóðfrelsisfylkingin í Suður-Víetnam, FNL, þarfnast stuðn-
ings okkar í æ ríkara mæli.
Víetnamnefndin á Islandi berst m. a. fyrir viðurkenningu
íslenzku ríkisstjórnarinnar á Bráðabirgðabyltingarstjórn
Lýðveldisins Suður Víetnam og stuðningi við þjóðfrelsisbar-
áttu fólks um allan heim gegn arðráni og kúgun lieimsvalda-
sinna.
Lesendur Nýrrar Dagsbrúnar eru hvattir til að gerast á-
skrifendur að SamstöSu, málgagni Víetnamhreyfingarinnar.
Fyllið út og sendið til skrifstofu Víetnamnefndarinnar,
Ránargötu 32, eða hringiS í síma 11906.
Nafn
Heimilisfang .................................. Sími.
Áskriftargjald er kr. 200.00 Næsta blað kemur út í marz.
Munið FNL söfnunina.
í næstum hálft ár! Þeir munu
enn ekki hafa léð máls á því að
hækka fastakaupið um meira en
4%! Og þeir gera tilraunir til
gagnsóknar, með því að krefjast
fækkunar á mönnum á skipun-
um.
Það er til lítils að halda um
það íburðarmiklar hátíðaræður
að fiskveiðar séu okkar helzta
undirstöðuatvinnugrein, sú at-
vinnugrein, sem þjóðin byggi
efnahagslega afkomu sína meira
á en nokkurri annarri, kjör
þeirra sem þessi mikilvægu störf
stunda verði að bæta og hafa
þau það góð að ekki skorti menn
til að vinna þau vegna lélegra
kjara, en haga sér svo þegar til
kastanna kemur eins og búið er
að gera gagnvart sjómönnum
síðustu vikur og mánuði.
Algera stefnubreyt-
ingu
Hér þarf algera stefnubreyt-
ingu. Semja verður um fasta-
kaupshækkunina án affalla.
24.676 krónur á niánuði í fasta-
kaup háseta er ekki ofborgað
fyrir 84 st. vinnuviku við erfið
störf, oft við verstu aðstæður,
illviðri, kulda og vosbúð. Kaup
þeirra á að vera hærra en þeirra
starfshópa í landi, sem helzt
verða teknir til samanburðar.
Það er alger réttlætiskrafa. Hitt
getur engan veginn talizt sann-
gjarnt, að togarasjómenn séu
bæði verr launaðir og með miklu
lengri vinnutíma en margir sem
stunda léttari, þægilegri og þrifa
legri störf í landi.
25. 2. 1973.
Karl Marx
— — Hvað mig snertir, ber
mér hvorki heiðurinn af að
hafa uppgötvað tilveru stétt-
anna í nútímaþjóðfélagi né
baráttu þeirra sín í milli.
Borgaralegir sagnaritarar
höfðu löngu á undan mér
lýst söguþróun þessarar
stéttabaráttu og borgaralegir
hagfræðingar lýst hagrænu
eðli stéttanna. Það nýja, sem
ég gerði var: 1) að sýna fram
á að tilvera stéttanna er ein-
vörðungu tengd tilteknum,
sögulegum þróunarskeiðum
framleiðslunnar. 2) Að stétta-
baráttan leiðir óhjákvæmi-
lega til alræðis öreiganna. Að
þetta alræði er sjálft aðeins
millibilsástand fyrir afnám
allra stétta og myndun stétt-
lauss samfélags. — (úr bréfi
frá Marx til Weidemeyers 5.
marz 1852).
Friedrich Engels
Nútíma sósíalismi er í eðli
sínu fyrst og fremst af-
sprengi þeirrar skoðunar að
í þjóðfélagi okkar tíma ríki
stéttaandstæður milli eigna-
manna og öreiga, launa-
manna og burgeisa annars
vegar, en á hinn bóginn ríki
skipulagsleysi á framleiðslu-
sviðinu. En hin fræðilega
mynd hans virðist í fyrstu
vera víðtækara og rökréttara
framhald þeirra grundvallar-
sjónarmiða sem hinir miklu
frönsku fræðslustefnuhöfund-
ar 18. aldar komu fram með.
Það var með sósíalismanum,
eins og allar nýjar fræði-
kenningar, að hann varð í
upphafi að styðjast við þann
hugmyndaauð, sem fyrir var,
enda þótt hann ætti rætur
sínar að rekja til staðreynda
efnahagslífsins. — (Úr Þróun
sósíalismans eftir Friedrich
Engels).
Símaskráin 1973
Miðvikudaginn 7. marz n. k. verður byrjað að af-
benda símaskrána fyrir árið 1973 til símnotenda í
Reykjavík. Dagana 7., 8. og 9. marz, það er frá mið-
vikudegi til og með föstudegi, verður afgreitt út á
símanúmerin 10000 til 26999, það eru símanúmer frá
Miðbæjarstöðinni. Dagana 12. til og með 16. marz
verður afgreitt út á símanúmer sem byrja á þrír,
útta og sjö, það eru símanúmer frá Grensásstöðinni
og nýju Breiðholtsstöðinni.
í Pósthússtræti 3, daglega kl. 9—18, nema laugar-
inga, sem orðið hafa frá því að hún var gefin út, enda
daginn 10. marz, kl. 9—12.
1 HAFNARFIRÐI verður símaskráin afhent á sím-
stöðinni við' Strandgötu þriðjudaginn 13. marz og mið-
vikudaginn 14. marz. Þar verður afgreitt út á númer
sem byrja á fimm.
I KÓPAVOGI verður símaskráin afhent á Póstaf-
greiðslunni, Digranesvegi 9 miðvikudaginn 14. marz.
Þar verður afgreitt út á símanúmer sem byrja á tölu-
stafnum fjórir.
Þeir símnotendur, sem eiga rétt á 10 símaskrám eða
fleirum, fá skrárnar sendar heim. Heimsending þeirra
símaskráa liefst ekki fyrr en mánudaginn 12. marz.
Atlvygli símnotenda skal vakin d því að símaskráin
1973 gengur í gildi frá og með laugardeginum 17.
marz 1973.
Símnotendur eru vinsamlega beðnir að eyðileggja
gömlu símaskrána frá 1972 vegna fjölda númerabreyt-
inga, sem orðið hafa frá því að hú nvar gefin út, enda
er hún ekki Iengur í gildi.
BÆJARSlMINN
F. K.