Stormur

Issue

Stormur - 23.10.1924, Page 3

Stormur - 23.10.1924, Page 3
STORMUR Ritstjóri Magnús Magnússon I. árg. Ávarp. Til þess að gott loft haldist i hibýlum manna telja læknar og skynsöm alþýða, að nauðsyn sé á því að hafa glugga opna og hyllast sem mest til þess að sól og loft leiki um herbergih. — Þrifnar húsmæður láta líka þvo gólfin daglega svo að ryk og gerlar vinni sér ekki sveit- festi í hibýlunum. Munu flestir vera orðnir á einu máli um það, að þetta sé nauðsynlegur þátt- ur í heilbrigðismálum vorum. Hafa læknar vorir gengið mjög drengi- lega fram í baráttu sinni gegn ýmiskonar hleypidómum og óþrifum, sem þjáði þjóð vora, jafnt hærri sem lægri, fyrir nokkrum áratugum síðan. — Mun yfir- leitt mega segja nú, áð heilbrigðismálum þjóðar vorrar í þessu tilliti sé komið í sæmilegt horf þegar á alt er litið. En þetta er ekki nema annar þáttur heilbrigðismálanna. Hinn þátturinn er hin andlega heil- brigði. Einn maður getur haft andleg óþrif, þótt hann hafi ekki lengur þörf fyrir lúsakamb. Eitt bæjar eða sveitafélag getur verið andlega ótútlegt og haft ýmiskonar meinleg óþrif í þeim skilningi enda þótt skolpfráræslan sé í góðu lagi og vatnið gerlasnautt. Og eilt þjóðfélag getur þjáðst af ill- kynjuðum kýlum og andlegum upp- þembingi, þrátt fyrir rúmgóða þjóð- kirkju, aðflulningsbann á áfengi, sildar- verksmiðjur, lúsalitla barnaskóla, Jónas frá Hriflu, Krossanes-Holdö og Jón Magnússon. En því miður vill það oft brenna við, að minni gaumur sé gefinn að þessum andlegu óþrifum. Menn þurfa ekki að hafa þau svo ýkja lengi til þess, að þeir hætti að aka sér undan þeim, og stundum getur jafn- vel svo farið, að þeir mennirnir, sem mesta hafa andlega óværðina, gerist forystumenn þjóðarinnar á ýmiskonar sviðum og þjóðin sjálf horfir upp til þessara manna og trúir því í barnslegri einfeldni, að nærföt þeirra séu sápu- þvegin og skjallahvit eins og hálslin þeirra. En þegar svo er komið með dóm- greind og skynsemi þjóðarinnar, þá er hún með hröðum skrefum á leið niður i Krýsivíkur-brennisteinspytlinn. Hlutverk þessa blaðs á fyrst og fremst Fimtudaginn 23. október 1924 að vera það, að reyna að opna augu þeirra manna, sem andlegu óværðina hafa, fyrir þvi, að þeir hafi þörf fyrir andlegt þrifabað, einkura þó þeirra, sem hættulegast er að smiti út frá sér, en takist ekki að opnu augu þessara manna sjálfra, þá mun unnið að því, eftir því sem kraftar leyfa, að augu annara opn- ist fyrir sýkingarhættunni, sem þjóðlífi voru er búin af þessum mönnum. Mun blaðið fara hér hlífðarlaust en hlutlaust fram og telja sér jafnskylt að vinna að útrýmingu »kakkalakkanna«, hvort sem þeir eru i stjórnarráðshúsinu, pólunum eða öðrum opinberum bygg- ingum eða þeir hafast við i húsnæðum einstakra manna. Af þessari stefnu blaðsins leiðir það, að blaðið verður ekki málgagn neius stjórnmálaflokks, sem nú er i landinu, enda mundi það þá ekki lengi verða laust við andlegu óþrifin, því að þegar núverandi stjórnmálaflokkar hér sjá sér nokkurn leik á borði, hneppa þeir sanu- girni og óhlutdrægni í spennitreyju, og 1. blað fara með visvitandi fals og blekkingar í •málgögnum sínum, lil þess að villa þjóðinni sálarsýn. Ekki ætlar blaðið heldur að setja upp margliðaða stefnuskrá að dæmi flokks- blaðanna, sem þau svo svíkja lið fyrir lið fyrir nokkrar lifrartunnur eða 30 potta mjólkur. En auk þessa aðalmarkmiðs blaðsins, sem hér að framan hefir vérið um getið, að stinga á meinsemdunum, sníða af líkþornin og leggja til nokkur sólt- hreinsandi efni í þrifabaðið, þá mun blaðið verða öruggur vörður persónu- legs frelsis. — Það mun því leggjast fast á móti hverskonar hömlum og höftum í viðskiftamálum og atvinnu- rekstri og samábyrgð. — í sambandi hér við skal þess sérstaklega getið, að blaðið hefir afnám bannlagauna á stefnuskrá sinni, og mun ræða það mál ýtarlega. Skóla og fræðslumál mun blaðið láta sig miklu skifta og mun fljótt sjást hver stefna þess er í þeim málum. ® Smurningsolíur Hinarýmsu vélategundir þarfnast mismunandi olíutegunda. Fyrir hverja vél er til ein ákveðin GARGOYLE oiía, sem er sú rétta. Undipritaðir umboðsmenn Vacuum Oil Company hf. gefa fúslega upplýsingar um hvaða olíu eigi að nota á hinar ýmsu vélar. H. Benediktsson & Co. Simi 8 (3 linur). ReykjaVÍk. Simn. „Geysir”. ® ® ® ® ® ® S s s ® ® ® ®

x

Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.