Stormur


Stormur - 13.12.1932, Qupperneq 1

Stormur - 13.12.1932, Qupperneq 1
STORMUR Ritstjóri Magnús Magrnússon VIII. árg. Þriðjudaginn, ,13. desember 1932. 42. tbl. Sagan endurtekur síg. Mörður Valgarðsson — Tryggvi Þórhallsson. Þegar Tryggvi Þórhallsson var ritstjóri Tímans vitn- aði hann tíðum í íslendingasögur og Sturlungu. Tók hann venjulega verstu mennina og verstu verkin til samanburð- ar við menn þá, sem þá fóru með stjórn á íslandi og verk þeirra. — Verður nú þessari aðferð Tryggva fylgt hér og lítill samanburður gerður á honum og Merði Valgarðs- syni. Mun fyrst rakinn nokkuð þáttur Marðar í vígi Hösk- uldar Hvítanesgoða og svo sókn hans í því máli, en síðan mun vikið að stjórnarferli Tryggva Þórhallssonar og á- byrgð þeirri, sem á honum hvílir um kreppu þá, sem nú þjakar þjóðina og þó einkum bændurna, og svo loks minst á skipun hans í bjargráðanefndina. II. Er þeir Njálssynir höfðu vegið Þráinn Sigfússon bauð Njáll, faðir þeirra, Höskuldi syni Þráins fóstur og hugð- ist að bæta með því fyrir verk sona sinna og tryggja það, að hefnda yrði ekki leitað fyrir víg Þráins. Höskuldur fór síðan að Bergþórshvoli og ólst upp með sonum Njáls og var mjög ástúðugt með þeim, en er Höskuldur var fulltíða, reisti hann bú í Vörsabæ og hélst enn sem fyr hin mesta vinátta með honum og' sonum Njáls. Þeir feðgar, Valgarður og Mörður bjuggu á Hofi. Voru báðir grályndir. Kom þeim nú saman um að reyna að spilla svo vinfengi þeirra Njálssona og Höskuldar, að af þeim rógi hlytist bani þeirra allra. Tók nú Mörður að vinna að þessu og varð vel ágengt við Njálssonu, því að þeir voru menn trúgjarnir, en Hösk- uidur vildi engu illu trúa um þá. Gat Mörður að lokum komið rógi sínum svo vel fyrir, að þeir Njálssynir fóru að Höskuldi og drápu hann, og var Mörður með í þeirri för. Er þeir höfðu unnið á Höskuldi, sagði Mörður: ,,Ráð kemr mér í hug“. „Hvert er þat“, segir Skarphéðinn. „Þat er ek mun fara heim fyrst. Enn síðan mun ek fara upp til Grjótár og segja þeim tíðendin og láta illa yfir verkinu. Enn ek veit víst at Þorgerðr mun biðja mik at ek lýsa víginu. Ok mun ek þat gera, því að þeim megu það mest málspell verða . . .“. Tók Mörður síðan við málinu af þeim er eftirmál áttu um víg Höskuldar Hvítanes- goða, en því máli lauk svo, að sættir tókust ekki, en til hefnda fvrir vígið brendi Flosi Þórðarson Njál og alla sonu hans inni, eins og kunnugt er, og hafði þá rógsiðja Marðar borið þann árangur, sem henni var ætlaður. III. Á meðan að Tryggvi Þórhallsson hafði á hendi rit- stjórn Tímans, var það höfuðiðja hans og þeirra, sem í það blað rituðu, að bera róg á millum bænda annarsvegar og útgerðarmanna og kaupstaðarbúa hinsvegar. Tókst þessi iðja svo vel, að Framsóknarflokkúrinn náði litlum þing- meirihluta og gerði Tryggva Þórhallsson að forsætisráð- herra, en hann tók Jónas Jónsson inn í ráðuneyti sitt. — Síðan stjórnuðu þeir félagar landinu í 5 ár, og fóru með fé þjóðarinnar eins og hinir verstu ránsmenn og spell- virkjar fara. — Möttu þeir vald og vilja Alþingis að engu, eyddu mörgum tugum miljóna króna af ríkisfé umfram það, sem fjárlög heimiluðu, beittu hinu mesta ranglæti í embættaveitingum, ofsóttu andstæðinga sína í stjórnmál- um, stórveiktu lánstraust og virðingu þjóðarinnar út á við, og reyndu það sem þeir gátu til þess að eyðileggja virð- ingu og traust æðsta .dómstóls landsins. — Af öllu þessu dæmalausa framferði þeirra leiddi svo það óhjákvæmilega, að ríkisskuldirnar ukust um tugi miljóna króna, allur hinn stórkostlegi tekjuafgangur fór í sukkið og sjálftökuna, og svo þegar kreppan skall á fyrir alvöru, var ekkert fyrir hendi í ríkissjóðnum til þess að milda hana. Og svo kemur það grátbroslegasta fyrir, að maðurinn Tryggvi Þórhallsson, þessi ráðlausasti, gálausasti og grunn- færasti löðurkúfur, sem við stjórnmál hefir fengist á íslandi, og mesta ábyrgðina ber allra manna á því öngþveiti, sem nú er hér í atvinnu- og fjármálalífi þjóðarinnar, er skipað- ur í nefnd til þess að bjarga þeim sömu mönnum við og þeim sama atvinnuvegi, sem hann hefir bæði beinlínis og óbein- línis steypt niður í foræðið og glötunina. Framhald á 2. síðu. Móafcotsmáííð. Hvernig er farið með stærstu glæpamálin. I. Margt hefir gerst einkennilegt í íslensku réttarfari nú á hinum síðustu tímum og verstu, en fátt mun hafa gerst kynlegra, en hin svonefndu Móakotsmál af Vatnsleysuströnd. Mál þessi eru all-flókin, og svo ískyggileg og ljót, að þau virðast ekki mega niður falla hálfköruð. Hér er ekki rúm til þess að taka mál þessi svo ítarlega til íhugunar, sem vert væri, en stiklað verður á aðalatriðum þeirra. Þau byrja á því, að Jón bóndi Hansson, er bjó í Móakoti, kærði yfir því, að tilgreindur maður, Árni Theodór Pétursson, hefði framið saurlifnað með dóttur sinni, Hansínu Kristínu, 14 ára að aldri. En í stað þess að sakborningurinn sé yfirheyrður, þá er kærandinn, Jón Hansson, sjálfur tekinn, og settur í gæslu- varðhald í mánuð, og sakaður um að hafa gert það, sem hann sakaði Árna fyrir. Setudómari var skipaður í málið sam- kvæmt ósk Jóns, Þórður Eyjólfsson, lögfræðingur. Hann hélt próf yfir dóttur Jóns, sem bar þetta á föður sinn fyrst lengi, en áð síðustu gekk hún alveg frá framburði sínum, og lýsti föður sinn algerlega saklausan, en sagði, að Árni Theo- dór hefði komið sér til að skrökva þessu, og að Árni Teodór hefði sjálfur haft samfarir við sig á gistihúsi Hjálpræðis- hersins í Reykjavík, og mun liggja fyrir vitnisburður, er styðji þennan framburð hennar. Eftir að barnið hafði gert þessa játningu, og beðið föð- ur sinn, grátandi, fyrirgefningar, og játað, að hann hafi ávalt. verið sér besti faðir, þá er Árni Teodór tekinn og yfirheyrð- ur, en meðgekk aldrei neitt, en stúlka á Hjálpræðishernum og maður, er þar var gestkomandi, vitnuðu það, að Árni hefði gist á Hernum með barnið í 2 — tveggja — manna herbergi, en annað rúmið hefði verið ósnert að morgni; en

x

Stormur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.