Stormur


Stormur - 20.01.1934, Blaðsíða 3

Stormur - 20.01.1934, Blaðsíða 3
STOBMUK » , Framsókn lýgur ekki. Framsóknarmenn og blöð þeirra, „Tíminn“ og „Nýja Dagblaðið", tala nú mikið um alt, sem þeir ætli að gera fyrir Reykvíkinga, ef þeir og jafnaðarmenn nái meiri hluta í bæjarstjórn Reykjavíkur. — Þurfa verkamenn í Reykjavík alls ekki að efast um það, að þeir muni halda þessi loforð sín, því að framsóknarmenn eru ekki þektir að því, að ganga á bak orða sinna og svíkja loforð sín. — Hér fer á eftir eitt loforðið, sem Framsóknarmenn gáfu almenningi rétt fyrir kosningarnar 1931, — nokkrum mánuðum eftir að loforðið var gefið mynduðu þeir stjórn „með íhaldinu“. Greinin, sem þetta loforð er tekið úr, heitir „Fram- sókn og hinir“ og birtist í Tímanum 28. maí 1931: „Fyrir almenning 1 Reykjavík, sem hingað til hefir haft óbeit á íhaldinu, er ekki nema um einn flokk að ræða, sem unt er að styðja. Það er Fram- sókn. Hún mun aldrei styðja íhaldið, aldrei íhalds- stjórn, aldrei bráðabirgðastjóm með íhaldinu". Hvenær verðar étíð næst? Átti eg fyrrum áform glæst, eina von, sem fékk ei ræst. Nú er sú mín hugsjón hæst: Iivenær verður etið næst? Vísa þessi birtist einu sinni í Tímanum, og á prýði- lega við Framsóknina. Er með voninni, sem ekki rættist, stefnt til þess, er Framsókn ætlaði að mynda stjórn með jaínaðarmönnum á síðasta þingi, en er þau áform brugðust, þá kom „hug- jsjónin“ að komast að ketkötlum Reykjavíkur--og nú spyrja Framsóknarmenn hverir aðra: „Hvenær verður etið næst?“ Breskt síógæðí — Framsóknar- siðgæðí. I 2. blaði Tímansl926 birtist grein, sem nefnist: Siðferðiskröfur Englendinga í opinberum málum. Hún hljóðar svo: „Dagblöðin birtu þessa dagana símskeyti um mál, sem vakið hefir geysimikið umtal og athygli á Eng- landi og víðar. Kvöld eitt kom einn af lögreglu- þjónum Lundúnaborgar út í garð einn þar í borg- inni. Sér hann þá að einn háttsettur embættismaður, lögreglustjórí fyrverandi, að nafni Thomson, er þar á tali við vændiskonu. Var Thomson þegar stefnt fyrir lögreglurétt. Svaraði hann þvíYtil, að hann hefði verið að „stúdera" næturlífið og hefði hugsað sér að skrifa um það blaðagrein. En dómararnir töldu þessa afsökun ekki gilda og töldu framferði hans ósiðferðilegt. Þeir dæmdu Thomson í 8 þús. sterlingspunda sekt, sem er meira en 176 þúsund ís- lenskar krónur. Svo háar kröfur gera Englendingar til sinna opinberu starfsmanna.“ Já, það er einmitt þetta, sem Bretar gera og flestar siðaðar þjóðir gera. Og úr því að Englendingar dæmdu Thomson í 176þús. króna sekt, sem var aðeins „fyrverandi lögreglustjóri" og hafði ekki annað til saka unnið en tala við konu, sem ósið- legt orð hafði á sér, hvað mundu þá Bretar gera við starfandi lögreglustjóra hjá sér, sem almennur grunur leikur um, að hafi framið all-alvarlegt brot gegn þeim samþyktum reglugerðum og lögum, sem hann var settur til að gæta að haldin væru — og auk þess vasast í pólitík og bakar með því ríkissjóði tugi þúsunda króna út- lát á ári hverju — og dæmir þó í haturs- og ofsóknamál- um, sem óhlutvandir menn láta höfða á hendur helstu andstæðingum hans? Vilja ekki Framsóknarmenn svara þessum spurn- ingum? Og hverju ætla reykvískir kjósendur að svara henni í dag? Meðferð á almannafé. í 1. tbl. Tímans 1926 í greininni Litið um öxl er kom- ist svo að orði „Stjórninni var trúað fyrir ríkirf járhirslunni. Það er rík skylda að fara vel með alþjóðarfé. Einhver stærsta ávirðing stjórnendanna er sú, að nota al- mannafé eða eignir til að þægja gæðingum sínum eða á annan hátt til að styrkja sig í sessi“. Aldrei hefir nokkurt blað leikið stjórn sína jafn grátt og Tíminn.gerir hér. — Ávirðingar Framsóknarstjórnar- innar voru margar og miklar, en sú ávirðingin, var þó lang- stærst, hvernig hún fór með almannafé. — Því ruplaði hún og rændi og sóaði. Og það notaði hún „til þess að þægja gæðingum sínum eða á annan hátt til þess að styrkja sig í sessi“. .— Og fyrir þessa meðferð sína á al- mannafé er það ekki einungis, að þeir menn, sem þá réðu mestu um, eigi skilið fyrirlitningu og skömm alþjóðar, — heldur ættu þeir og að afplána afbrot sín með margra ára fangelsisvist. — Þá fyrst yrði framkvæmt það réttlæti, sem nauðsynlegt er, ef almenningur á ekki að missa trúna og virðinguna fyrir þeim, sem laganna og siðferðisins í opinberu lífi þjóðarinnar eiga að gæta. Sendíbréf. Björg á heimleið. Þegar fulltrúinn hætti lestrinum situr hann hugsandi og tekur svo til orða: „Þó lögreglustjórinn í Reykjavík þurfi ekki beinlínis að kvarta yfir því, að laun heimsins séu van- þakklæti, þá eru þó laun dómsmálaráðuneytisins vanþakk- læti, við tókum á máli yðar mjúkum höndum, og við fáum ofanígjöf fyrir það, ef við hefðum tekið það með harð- neskju hefðum við líka fengið ofanígjöf fyrir það“. „Má ég þá ekki fara austur“, spyr Björg. „Úr því get ég ekki skorið“ svarar fulltrúinn. „Það er best þér farið til dómsmálaráðherrans með vottorðið og sýnið honum það og látið hann gefa yður heimfararleyfi“. Björg mín stóð upp og kvaddi og þakkaði fulltrúanum fyrir meðferðina á sér. Og nú fer hún beina leið upp í stjórnarráð, og fann dyra- vörðinn. Hann var að enda við að spýta mórauðu í hráka- dallinn en ekki „á bak við möblur“. IJún spyr hvert hún geti fengið að tala við dómsmálaráðherrann. „Það er nú ekki nema ein tönnin í tíkinni“ svarar dyravörður, „það er bara einn ráðherrann heima og hann gegnir öllum embætt- unum“, og svo er henni vísað inn til ráðherrans, hann situr við borð og horfir út um gluggann og upp á Akranesið. Björg mín fær honum læknisvottorðið, segir hver hún er og skýrir frá málefnum sínum. Ráðherrann hlustar á Björgu og tekur aldrei fram í frásögn hennar, spyr hana einskis og heldur áfram að horfa á Akranesið. —

x

Stormur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.