Stormur


Stormur - 14.12.1934, Page 1

Stormur - 14.12.1934, Page 1
STORMU R RKstjóri Magtróð Ma^nússon X. árg. Föstudaginn, 14. desember 1934. 41. tbl. Móakotsmálið. Dómur í þessu ógeðslega afbrotamáli er nú loks fallinn, og vantar þá aðeins röska 3 mánuði á, að málið hafi verið 4 ár að flækjast millum þeirra f jögra rannsóknardómara, sem haft hafa það með höndum, og mun slík meðferð á sakamáli vera algert einsdæmi í landi, sem á að heita siðað. Stormi bárust dómsúrslitin, er blað þetta var næstum því sett, og getur hann því ekki farið ýtarlega út í málið nú, enda ekki séð forsendur dómsins. Það var Jónatan Hallvarðsson fulltrúi, sem loks batt enda á málið á þessu stigi og dæmdi hann Árna Theódór Pét- ursson sékan við 175. gr. hegningarlaganna, en sú grein hljóðar svo: „Hver, sem tælir stúlkubarn, sem er á aldursskeiði frá 12—16 ára, til saurlífis, skal sæta fangelsi, ekki vægara en 2 mánaða einföldu fangelsi eða hegning- arvinnu alt að 4 árum, ef miklar sakir eru. Opinbera málssókn skal samt því aðeins hefja, að foreldrar eða forráðamður krefjist þess“. 20 nýjar tegundir af karlmannaskóm nýkomnar, komið og lítið á. Lárus O. Lúðvígsson Skóverslun. Sj ávarútvegsmálin. Eins og menn sjá af grein þessari, hefir dómarinn dæmt sakborninginn í þá vægustu refsingu, sem greinin heimilar, og mun sú linkind sennilega nokkuð orka tvímælis hjá þeim, sem kunnugir eru öllum málavöxtum, en sjálfsagt hefir hér miklu um valdið, að sakborningurinn er kominn yfir sextugt og auk þess farinn að heilsu. Hæð refsingarinnar skiftir held- ur ekki svo miklu máli, en hitt varðar mestu, að nú er sá grunur, sem hvílt hefir á Jóni Hanssyni í burtu fallinn. — En þrátt fyrir það, stendur það opinbera enn í mikilli skuld við þennan mann fyrir hina óhæfilegu og ólöglegu meðferð málsins og hina hörðu meðferð sem Jón hefir orðið að þola vegna mistakanna. — Mun ritstjóri þessa blaðs halda er- indi um málið næstk. sunnudag, og munu þar próf málsins og réttarskjöl rakin, svo að almenningi gefist kostur á að sjá, hvílíkt fádæma réttarfarshneyksli er hér um að ræða, og hve ríka kröfu Jón Hansson hefir til þess að fá bætur frá því opinbera fyrir afglöp þess og slóðaskap í málinu. — Vafa- laust fer mál þetta til Hæstaréttar, svo alvarlegt og einstakt er það að efni til, og svo einstök hefir meðferð þess verið. Skúli og Steingrímur. Fullyrt er nú, að Skúli Guðmundsson kaupfélagsstjóri á Hvammstanga, sem kunnur er fyrir það eitt að ganga ber- liöfðaður hvernig sem viðrar, eigi að verða formaður gjald- eyrisnefndar. — En í Búnaðarfélaginu er sagt, að Hóla- Steingrímur eigi að verða forseti, en Metúsalem Stefánsson skrifstofustjóri hjá honum. — Sigurð á að reka, þann mann- inn, sem einna mestan áhugann hefir sýnt í málum bænda. Svo má nú heita, að útséð sé um það, að tillögur milli- þinganefndarinnar í sjávarútvegsmálunum nái fram að ganga á þessu þingi, enda þótt þær séu hinar gagnlegustu. Fer svo um öll mál, sem Sjálfstæðismenn bera fram, að þau eru drep- in af ofstopamönnum þeim og fáráðlingum, sem nú fara með meirihlutavaldið á Alþingi. Hefir aldrei slíku einræði og flokksofstæki verið beitt á þingi sem nú og nægir t. d. að benda á afgreiðslu fjárlaganna við 2. umræðu, þar sem allar tillögur andstæðinganna voru strádrepnar. Hins vegar er nú frumvarpið um fiskimálanefnd, sem borið er fram að tilhlutun Haraldar Guðmundssonar, komið til efri deildar og er vafalaust tilætlunin að knýja það í gegn um þingið, enda þótt það sé í megnustu óþökk útgerðar- manna, beggja bankanna, og þó einkum Þjóðbankans, og fisksölusamlagsins. Má það heita heimska og fífldirfska með afbrigðum, að ætla sér að knýja það fram gegn eindregn- um mótmælum allra þessara aðilja. — Svo mikil var ósvífni Finns Jónssonar, formanns sjávarútvegsnefndar neðri deild- ar, að þegar hann við 3. umræðu málsins í neðri deild var búinn að lesa upp fyrir öllum þingheimi hin eindregnu mót- mæli Landsbankans og fisksölusamlagsins, þá skoraði hann á deildina að flýta sér að afgreiða frumvarpið vegna hinnar knýjandi nauðsynjar, eins og hann orðaði það, sem á því væri að frumvarpið gengi fram, og reyndi einnig að falsa ummæli Landsbankastjórnarinnar og telja að í þeim fælist meðmæli með frumvarpinu. Með frumvarpi þessu er í raun og veru alt vald tekið af útgerðarmönnum og fengið í hendur fiskimálanefndar, sem vafalaust verður skipuð einhverjum gæðingum stjórnarinn- ar, sem ekki hafa hið minsta skynbragð á útgerðarmálum. I 5. gr. frumvarpsins er meðal annars komist svo að orði: „Þeir, sem samkvæmt 4. og 5. gr. fá löggildingu nefndarinnar sem útflytjendur, verða að skuldbinda sig til að hlíta fyrirmælum hennar um framboð og lágmarksverð á fiski, sem seldur er til útlanda, um skiftingu markaðsstaða, útflutningstíma, af-

x

Stormur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stormur
https://timarit.is/publication/1027

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.