Stormur - 12.12.1942, Blaðsíða 4
STORMUR
Á sama mánuði (júní) fæddi ær ein lamb vanskapað í
Bakkakoti í Skorrardal svo stórt að vexti sem þriggja vikna
gamalt, með svínshöfði og svínshári. Það vantaði efri slcolt-
inn upp undir augnastaðinn. Hékk svo tungan langt fram
yfir kjálkana. Voru þeir lausir frá hausskelinni, og sást
engin mynd til augnanna nema skinnið eins og annarsstað-
ar. Eyrun síð sem á dýrhundi, en fram úr hausskelinni
hékk álíka sem ærspeni lítill, og var þar gat á. Að annari
sköpun sem hrútlamb, hitt sem svín.
Á þessu ári giftust með kóngsleyfi systkinabörn norður
í Fljótum og maður í Ólafsfirði norður, sem barn átti við
skyldri konu sér, mállausri og daufri, hverja hann ektaði
með kóngsleyfi. Hennar systkin 3 mállaus og dauf og tvö
systkin í Skagafirði. Systkin 3 mállaus og dauf í Miðdals-
hjáleigu austur í Laugardal. Allar þessar manneskjur,
bæði þeir og þær, gátu stundað búsumhyggju og kunnu
alla þjónustu, sem óhindruð væri, bæði hagleik og ullar-
verknað. Almætti drottins kann enginn að útsegja.
í Tálknafirði á Vestfjörðum dó einn maður, gekk aftur
og kvaldi annan mann, gerði stórar ónáðir á bænum, þar
dó. Grafinn upp aftur tvisvar og í seinna sinni kominn á
4 fætur á grúfu í gröfinni. Þá tekið af honum höfuðið og
stungið til Saurbæjar. Síðan varð ekki vart við hann.
SIGUNGAR
milli Bretlands og íslands halda áfram
eins og að undanförnu. Höfum 3—4
skip í förum. Tilkynningar um vöru-
sendingar sendist
Culliford's Associoted Lines, Ltd.
BRADLEYS CHAMBERS,
LONDON STREET, FLEETWOOD.
Tilkynning
frá ríkisstjórninni.
Breska flotastjórnin hefir tilkynt íslensku ríkis-
stjórninni að nauðsynlegt sé að öll íslensk skip,
10 til 750 smál. að stærð, fái endurnýjuð eins
fljótt og hægt er eftir 1. desember 1942 ferða-
skírteini þau, sem um ræðir í tilkynningu ríkis-
stjórnarinnar, dags. 7. mars 1941.
Skírteini þessi verða afgreidd sem hér segir:
í Reykjavík hjá breska aðalkonsúlnum, á Akur-
eyri hjá breska vicekonsúlnum, á Seyðisfirði hjá
bresku flotastjórninni og í Vestmannaeyjum hjá
breska vicekonsúlnum.
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið,
19. nóvember 191*2.
Allskonar ritföng
SKRIFSTOFU ÁHÖLD
SKRIFPAPPÍR
UMBÚÐAPAPPÍR
KRAFTPAPPÍR
PAPPI
KÁPUPAPPÍR
BLAÐAPAPPÍR
SALERNAPAPPÍR
Á v alt fyrirliggjandi
Heildverslun Garöars Gíslasonar
S/MI 1500
,y-
t;
<TTO
-i'i.ííl
reu
Framhald
almennra bólusetninga
Föstudaginn 11. desember verða bólusett börn úr Skild-
inganess-skólahverfi í Barnaskólanum við Smyrilsveg. —
Kl. 13.30—15 skal færa þangað börn af Grímsstaðaholti
suður að Þormóðsstaðaveg. Kl. 15.30—17 börn sunnan þess-
ara takmarka.
Skyldug til frumbólusetningar eru öll börn fullra tveggja
ára, ef þau hafa ekki haft bólusótt eða verið bólusett með
fullum árangri eða þrisvar án árangurs.
Skyldug til endurbólusetningar eru öll börn, sem á þessu
ári verða fullra 13 ára eða eldri, ef þau ekki eftir að þau
voru fullra 8 ára hafa haft bólusótt eða verið bólusett með
fullum árangri eða þrisvar án árangurs..
Bóluskoðun fer fram viku síðar á sömu stöðum og sömu
tímum dagsins.
Hjeraíjslæknirinn í Reykjavík, 7. des. 1942.
Magnús Pétursson
ÍSAFOLDARPRENTSMIÐJA H.F.