Hádegisblaðið - 17.09.1940, Page 1

Hádegisblaðið - 17.09.1940, Page 1
Yfirgripsmiklar loftárásir á London kl. 3 i nótt. Manntjón var ekki mikið. Þýzkar flugvélar voru enn á sveimi yfir London mestan hluta nætur. Um klukkan 3 var þó gefið merki um * V að hættan væri liðin hjá, en skömmu síðar varð aftur vart óvinaflugvéla og skotdrunur loftvarnabyssnanna heyrðust á ný. Nokkrum sprengjum var varpað yfir miðhluta borg- arinnar og í útjöðrunum. Nokkur verzlunarhús og íbúðar- hús eyðilögðust. Á einum stað féll sprengja um 40 m. frá loftvarnabyrgi, þar sem 200 manns höfðu leitað hæl- is. Ógurleg sprenging varð, en engan þeirra sakaði, sem í loftvarnabyrginu voru. Ó- vinaflugvélar hefir orðið vart yfir ýmsum héruðum í Eng- landi, en ónæðissömust varð nóttin í Midlands. Ekki er kunnugt um manntjón. I gær var tiltölulega lítið um IiQftárásir á England, en þó var sprengjum varpað hér og par í suðurhluta landsins. Merki um loftárás voru gefin 5 sinnum í London. Hið heimsfræga mál- verkasafn Tate Gallery varð fyr- ir sprengju og laskaðist allmikið. I safni pessu er fjöldi útlendra listaverka og dýrmætasta safn enskra málverka, sem til er. Öllum verðmætustu listaverkun- um hafði verið komið fyrir til geymslu á öruggum stað utan borgarinnar, svo að tjónið varð tiltölulega lítið. London kl .8. Rioosevelt Bandaríkjaforseti rit- aði undir löjjin um herskyldu í gærkveldi. Sampykkt herskyldu- laganna er talinn mikilsverðasta ákvörðun Bandaríkianna síðan 1917, er pau sögðu Þjóðverjum stríð á hendur. Roosevelt forseti, er í gærkveldi undirritaði nýju herskyldulögin.

x

Hádegisblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hádegisblaðið
https://timarit.is/publication/1054

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.