Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2007, Side 6
MIÐVIKudagur 17. OKTÓBEr 20076 Fréttir DV
Enn svolítið dofinn
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson
gegndi í gær sínu síðasta embætt-
isverki sem borgarstjóri Reykja-
víkurborgar þegar hann hitti for-
svarsmenn íþróttafélagsins Vals
og undirritaði samstarfssamning á
milli Reykjavíkurborgar og Vals um
áframhaldandi uppbyggingu á að-
stöðu liðsins.
Vilhjálmur lýsti því glaðbeitt-
ur yfir á fámennum fundi, eftir að
hafa undirritað pappírana, að hann
hefði verið Valsari í 50 ár og borg-
að félagsgjöldin til liðsins áratugum
saman. Sjálfur sagði Vilhjálmur að
tilviljun ein hefði ráðið því að þessi
undirritun hefði verið hans síðasta
embættisverk sem borgarstjóri. Að
því loknu hitti hann borgarfulltrúa
Sjálfstæðisflokksins á fundi áður
en borgarstjórnarfundurinn hófst
klukkan tvö í gær, þar sem Dagur B.
Eggertsson tók við af Vilhjálmi sem
borgarstjóri.
Blendnar tilfinningar
Dagurinn í gær var annasam-
ur hjá Vilhjálmi líkt og vanalega.
Hann byrjaði snemma í Tjarnarsal
Ráðhússins þar sem nokkur hundr-
uð manns voru samankomin til að
kveðja hann úr starfi borgarstjóra.
Hann settist svo niður með blaða-
manni DV skömmu fyrir hádegi
í einu fundarherbergja Ráðhúss-
ins. „Það eru blendnar tilfinning-
ar sem bærast í mér núna,“ segir
hann og stoppar í skamma stund til
að hugsa. „Ég er enn svolítið dof-
inn yfir þessu. En á sama tíma er ég
geysilega ánægður með þær góðu
móttökur sem ég fékk hérna og það
frábæra samstarf sem ég hef átt við
þá starfsmenn sem hafa verið mest í
kringum mig. Mér þótti einnig vænt
um þær hlýju kveðjur sem ég fékk
þegar kveðjuhóf fyrir borgarstjóra
var haldið.“
Síðustu dagar hafa að nokkru
leyti farið í að ganga frá skipan í
nefndir og ráð innan borgarinnar,
en auk borgarráðs mun Vilhjálm-
ur taka sæti í menningar- og ferða-
málaráði. „Ég þarf að hafa góð-
an tíma því ég er einnig formaður
borgarstjórnarflokksins og það er
heilmikil vinna hjá okkur fram und-
an. Núna verður þetta með öðrum
hætti. Við verðum að skipuleggja
okkur vel, efla og treysta tengslin
við fólkið í borginni. Síðan þurfum
við að undirbúa góðar tillögur og
halda uppi öflugu aðhaldi.“
Stoltur af verkum í þágu
eldri borgara
Á sunnudaginn tók Vilhjálmur
fyrstu skóflustungu að hundrað og
ellefu öryggis- og þjónustuíbúð-
um fyrir eldri borgara í Spönginni í
Grafarvogi. Eitt af stærstu kosninga-
loforðum Vilhjálms sem oddvita
Sjálfstæðisflokksins var að byggja
upp aðstöðu fyrir eldri borgara.
Hann hefur verið óspar á að gagn-
rýna aðgerðarleysi vinstri flokk-
anna í þessum efnum og bendir á
að engin þjónustuíbúð fyrir eldri
borgara hafi verið byggð í tólf ár.
„Ég er þess vegna mjög ánægður
með að hafa haft forystu með það
verkefni að byggja samtals um tvö
hundruð þjónustuíbúðir ásamt
þjónustumiðstöð fyrir eldri borg-
ara. Það er brýn þörf fyrir búsetuúr-
ræði aldraðra og þegar ég lít til baka
er ég langstoltastur af þessari vinnu
í minni borgarstjóratíð.“
Lítill einhugur nýja
meirihlutans
Þegar Vilhjálmur horfir til baka
á samstarf Framsóknarflokks og
Sjálfstæðisflokks í borgarstjórn er
hann að mestu leyti ánægður. „Við
unnum alltaf að góðum málum
og það hafði verið góður hugur og
samstaða í fólki þar til Björn Ingi
ákvað að hverfa í faðm vinstri flokk-
anna.“ Hann óttast að stjórn borg-
arinnar verði losaraleg og það reyn-
ist meirihlutanum erfitt að koma
sér saman um stór mál.
„Nú þegar eru fréttir af því að nýi
meirihlutinn ætli að slá af byggingu
mislægra gatnamóta við Miklu-
braut og Kringlumýrarbraut, sem
sjálfstæðismenn, framsóknarmenn
og frjálslyndir hafa lagt áherslu á.
Þetta var eitt af stærstu loforðum
frjálslyndra og ef þetta reynist rétt
er ekkert að marka það sem þeir
sögðu fyrir kosningar.“
Mikið ber á milli í hugmyndum
nýja meirihlutans í skipulagsmál-
um, ef tekið er tillit til kosningalof-
orða. Vilhjálmur heldur áfram að
furða sig á þætti Frjálslynda flokks-
ins. „Langstærsta kosningamál
þeirra var að flugvöllurinn ætti að
vera í Vatnsmýrinni og annað kæmi
ekki til álita. Stærsta kosningamál
vinstri grænna og Samfylkingar var
að flugvöllurinn færi úr Vatnsmýri
þannig að það verður erfitt eða
ómögulegt að samræma þessa tvo
póla. Þau hafa heldur engu svarað
ennþá.“
Vilhjálmur lýsir jafnframt áhyggj-
um af því að ástandið sem ríkti í
„Ég myndi eiginlega
ekki orða það þannig
að ég sé búinn að
jafna mig.“
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson gegndi í gær sínu síðasta
borgarstjóraembættisverki. DV fékk að fylgjast með Vil-
hjálmi á síðustu klukkutímunum sem borgarstjóri
Reykjavíkur þegar hann undirritaði samning við for-
svarsmenn Vals. Fyrr um daginn var haldið fjölmennt
kveðjuhóf fyrir hann. Vilhjálmur segist stoltastur af
uppbyggingu á sviði eldri borgara og segir að samstöðu-
leysi muni einkenna nýja meirihlutann í Reykjavík.
Borgarstjóri Þetta skilti verður
nú tekið niður og nafn dags B.
Eggertssonar sett í staðinn.
Undirritun Vilhjálmur undirritar samstarfssamning við
íþróttafélagið Val um áframhaldandi uppbyggingu á Hlíðarenda.
Það reyndist vera síðasta embættisverk hans sem borgarstjóri.
Vilhjálmur „Nú þegar eru fréttir af því að
nýi meirihlutinn ætli að slá af byggingu
mislægra gatnamóta við Miklubraut og
Kringlumýrarbraut,“ segir Vilhjálmur.