Dagblaðið Vísir - DV - 17.10.2007, Side 27
Julia Roberts
hlýtur heið-
ursverðlaun
Leikkonan Julia Roberts hlaut í ár
American Cinematheque-
heiðursverðlaunin, sem voru afhent í
Los Angeles á dögunum, fyrir að eiga
langan og farsælan feril að baki.
Meðal þeirra sem einnig hafa hlotið
þennan titil eru Steven Spielberg,
Martin Scorsese, Tom Cruise og
Nicole Kidman. Eftir afhendinguna
sagði hún við áhorfendur: „Ég er
bara stelpa frá litlum bæ í Georgíu,
sem átti stóran og skrýtinn draum.“
Tom Hanks, sem var meðal gesta,
bætti við eftir athöfnina að allir
elskuðu Juliu: „Allir, allir, allir.“
George Clooney mun að öllum líkindum leikstýra Leonardo DiCaprio.
DiCaprio og Clooney orðaðir hvor við annan
Kvikmyndaframleiðandinn
Warner Bros er nú að leggja drög að
kvikmynd byggðri á leikriti Beaus
Willimon; Farragut North. Standa
nú vonir til þess að félagarnir Leon-
ardo DiCaprio og George Cloon-
ey leiði saman hesta sína enn á ný
en sá fyrrnefndi er orðaður við að-
alhlutverkið, síðarnefndi við leik-
stjórastólinn. Ekki er þó útilokað
að Clooney birtist á hvíta tjaldinu í
einhverju hlutverkanna og víst er að
ef af því verður gleðjast mörg kven-
mannshjörtun.
Farragut North fjallar um ung-
an samskiptastjóra sem vinnur
fyrir forsetaframbjóðanda á hraðri
uppleið. Á meðan á kosningabar-
áttunni stendur verður hinn ungi
hugsjónamaður uppvís að bak-
nagi og öðrum ósvífnum gjörðum
spilltra stjórnmálamanna. Nafnið
Farragut North er dregið af neðan-
jarðarlestarstöðinni í Washington,
DC sem er staðsett nálæg K-stræti
þar sem fjölmargir þrýstihópar
vinna. Þess má geta að handrits-
höfundurinn Willimon vann fyr-
ir Howard Dean þegar hann bauð
sig fram til forseta árið 2004. Hans
persónulega reynsla liggur hand-
ritinu til grundvallar. Farragut
North verður sett upp á Brodway
á næsta ári og er enginn annar en
Jake Gyllenhaal orðaður við aðal-
hlutverkið í þeirri uppfærslu.
„Þetta er svolítið stórt skref fyr-
ir mig persónulega því ég hef verið
að burðast með þetta í maganum.
Ég hef tilheyrt lagahöfundateymi í
London undanfarin ár þar sem við
semjum efni gagngert fyrir aðra og ég
var farin að þrá að gera mitt eigið efni
aftur,“ segir Védís Hervör Árnadóttir
tónlistarkona en hennar önnur sóló-
plata kemur út á tonlist.is í dag. Öll
lög og textar eru eftir hana sjálfa, þar
af nokkur í samstarfi við aðra, og eru
textarnir á ensku. Platan kemur svo
út á gamla mátann eftir eina til tvær
vikur.
Var ekki í rugli
Titill plötunnar er A Beautiful
Life – Recovery Project og er hún
mjög persónuleg að sögn Védísar.
„Ég hef ekki verið í rugli eða ein-
hverju svoleiðis,“ segir hún og hlær.
„En maður er alltaf að endurnýja
sjálfan sig og þroskast. Þessi plata
er heilmikil þroskasaga og það er
kannski fyrst og fremst það sem tit-
illinn vísar í. Að mínu mati er það
líka hugarástand að lífið sé fallegt
frekar en að hamingjan sé einhver
áfangastaður.“
Védís segir enga djúpa pælingu á
bak við það að gefa plötuna fyrst út
á netinu. Þótt hafi það nokkuð með
það að gera hvað netið sé orðið sterk-
ur miðill. „Fólk leitar fyrst og fremst
uppi efni þar, allavega af minni kyn-
slóð. Mér finnst þetta því liggja bein-
ast við,“ segir tónlistarkonan.
Óvíst með útgáfu erlendis
Að sögn Védísar er hún ekki góð
í að lýsa tónlistinni sinni. En hún
reynir. „Þetta er hlýleg tónlist. Það er
mikið af nælonstrengjagítar í bland
við píanó,“ segir Védís en hún semur
eiginlega öll lög sín á píanó. „Platan
er mjög grúví og ég hef heyrt þessu
líkt við bandarísku söngkonuna
India.Arie. Það kemur ekki á óvart
því ég hef hlustað heilmikið á hana
og það er eins og það hafi eitthvað
síast inn. Það hefur reyndar líka ver-
ið talað um að þetta hljómi eins og
blanda af India.Arie og Cardigans
en þau eru mjög ólík,“ segir Védís og
hlær.
Platan er bæði tekin upp í Lond-
on og Geimsteini, stúdíói Rúna Júl
í Keflavík. Ekkert er komið á hreint
með útgáfu disksins annars stað-
ar en á Íslandi en Védís, sem á allt
efnið sjálf, segist vera að fóta sig
með það. „Það er fínt að byrja hérna
heima og sjá hvað setur,“ segir hún
en Védís kemur fram í Lídó á laug-
ardagskvöldið í tengslum við Air-
waves-hátíðina og ætlar Sigtryggur
Baldursson meðal annarra að spila
með henni. „Mig langar endilega að
spila meira, fara kannski um landið,
en maður sér bara til. Efnið er nátt-
úrlega á ensku þannig að auðvit-
að ætlar maður sér stærri hluti. En
maður gerir sér grein fyrir að það er
ekkert allt falt í þeim efnum þannig
að ég er voðalega róleg með þetta.“
kristjanh@dv.is
J.J. Abrams
leikstýrir
næstu Star
Trek-mynd
Leikstjórinn geðþekki J.J. Abrams, sem
hvað þekktastur er fyrir að leikstýra
Mission Impossible III, hefur tekið að
sér að leikstýra næstu Star Trek-mynd
eftir mánaða vangaveltur. Star Trek IX
mun einblína mest á hinn unga James
T. Kirk og Mr. Spock og segja frá þeirra
fyrstu fundum í Starflect Academy og
þeirra fyrstu ferð út í geiminn.
Heimildir segja að Abrams hafi
ákveðið þetta rétt fyrir síðustu helgi en
áður hefur hann verið að vinna með
myndina sem framleiðandi og
rithöfundur hjá Paramount Pictures.
Dillon leikur
líklega Chess
Matt Dillon mun að öllum líkindum
leika Leonard Chess, hinn goðsagna-
kennda stofnanda blúsplötuútgáfu-
fyrirtækisins Chess Records, í
myndinni Cadillac Records.
Samningaviðræður um að leikarinn
taki að sér hlutverkið að sér ku vera á
lokastigi. Myndin fjallar um sigra og
fall Chess Records en á meðal frægra
tónlistarmanna sem hófu feril sinn
hjá fyrirtækinu eru Muddy Waters,
Etta James og Chuck Berry. Leikstjóri
verður Darnell Martin, sem leikstýrði
meðal annars Their Eyes Were
Watching God, en hann skrifaði
einnig handrit myndarinnar. Áætlað
er að tökur hefjist í janúar.
Önnur sólóplata Védísar Hervarar
Árnadóttur, A Beautiful Life –
Recovery Project, kemur út á ton-
list.is í dag. Tónlistarkonan segir
að platan sé mjög persónuleg.
MIÐVIKudagur 17. OKTÓBEr 2007DV Bíó 27
Clooney og DiCaprio reyna að
sjóða saman myndina.
FEGURÐ LÍFSINS
HUGARÁSTAND