Sveitarstjórnarmál - 01.04.1949, Side 19
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Við bæjarmanntölin í Reykjavík voru alls
skrásettir 51 011 manns árið 1946 og 53 836
árið 1947, en þar af vom taldir eiga lög-
heimili annars staðar 2 057 árið 1946 og
2 146 árið 1947. Þegar þeir eru dregnir frá,
kemur fram heimilisfastur mannfjöldi í
Reykjavík.
Þegar borin em saman ársmanntölin 1946
og 1947, þá sést, að mannfjölgun á öllu
landinu árið 1947 hefur verið 3 185 manns
eða 2.4%. Er það miklu meiri fjölgun held-
ur en undanfarin ár. Árið 1946 var hún að-
eins 2 324 manns eða 1.8%. Árið 1945 var
hún hins vegar 2.0%.
Árið 1947 var Sauðárkrókur tekinn í tölu
kaupstaða. Ef hann er talinn með kaupstöð-
um bæði í ársbyrjun og árslok, þá hefur fólki
í kaupstöðum fjölgað árið 1947 um 3 364
manns eða um 4.5%. En í sýslunum hefur
fólki fækkað um 179 manns eða um 0.3%.
í Reykjavík hefur fólki fjölgað um 2 736
manns eða 5.6%. I 7 af hinum kaupstöðun-
um hefur fólki fjölgað, en fækkað í einum
(Seyðisfirði) og staðið í stað í tveimur (Vest-
mannaeyjum og Ólafsfirði).
Mannfjöldinn í kauptúnum og þorpum
með fleirum en 300 íbúum hefur verið sem
hér segir:
1946 J947
Sandgerði — 392
Keflavík 1886 1 94^
Borgames 671 685
Sandur 356 357
ólafsvík 452 448
Stykkishólmur 7° 5 753
Patreksfjörður 816 876
Bíldudalur 374 386
Þingeyri í Dýrafirði 334 322
Flateyri í önundarfirði .. 440 441
Suðureyri í Súgandafirði .. 333 338
Bolungarvík 638 631
Hólmavík 368 374
15
Blönduós 418 433
Skagaströnd 398 395
Sauðárkrókur 926 —
Dalvík 540 573
Ilrísey 346 325
Glerárþorp 466 474
Húsavík 1164 1190
Raufarhöfn 327 334
Þórshöfn 317 324
Eskifjörður 7°4 710
Búðareyri í Reyðarfirði ... 385 400
Búðir í Fáskrúðsfirði .... vn OO 597
Höfn í Homafirði 327 347
Stokkseyri 464 462
Eyrarbakki 566 528
Selfoss 684 821
Hveragerði 399 430
Samtals 16 391 16 294
Auk kaupstaðanna hafa 29 kauptún og
þorp haft meira en 300 íbúa, og er það sama
tala og árið áður, því að í stað Sauðárkróks
er komið Sandgerði, sem ekki hefur verið
talið áður. í hinum þorpunum 28 hefur fólk-
inu fjölgað alls um 437 manns, eða 2.8%.
í 21 af þorpum þessum hefur fólki fjölgað,
en í 7 hefur orðið nokkur fækkun.
Þegar íbúatala í kauptúnum með meiru
en 300 manns er dregin frá mannfjöldanum
í sýslunum, þá kemur fram íbúatala sveitanna
að meðtöldum þorpum með innan við 300
manns. Þessi íbúatala var 42 154 í árslok
1946, en 41 538 í árslok 1947 (að Sandgerði
meðtöldu). Árið 1947 hefur þá orðið fækk-
un í sveitunum um 616 manns eða um
i-5%-
(Hagtíðindi, ágúst 1948.)