Sveitarstjórnarmál - 01.04.1949, Page 44
40
SVEITARST J ÓRN ARMÁL
Kosmn^altaiidbók
fyirir sveitarstj órnír.
Gefin út af Félagsmálaráðuneytinu.
í þessari bók er meiri fróðleik að fá um kosningar til sveitarstjóma
og Alþingis en í nokkurri annarri kosningahandbók, sem út hefur verið
gefin.
Efnisyf irlit:
1. Lög um sveitarstjómarkosningar.
2. Lög um Alþingiskosningar.
3. Bæjarstjómarkosningar 1946.
4. Hreppsnefndarkosningar 1946.
5. Sýslunefndarkosningar 1946.
6. Alþingiskosningar 1946.
Sveitarstjórnarkosningar.
í bókinni er að finna atkvæðatölur úr öllum kaupstöðum og kauptúnum í
sveitarstjómarkosningunum 1946, svo og hverjir hlutu þar kosningu í bæjarstjómir
og hreppsnefndir. Ennfremur er þar skrá um alla þá, er kosnir voru í hrepps-
nefndir utan kauptúna og sýslunefndir það ár.
í bókinni er skrá yfir alla hreppa á Iandinu, sýslur og kaupstaði. Þar er og
greint frá því, hver er oddviti í hverjum hreppi, forsetar bæjarstjóma, bæjarstjórar,
sýslumenn og hreppstjórar.
í Kosningahandbókinni er skrá yfir alla hreppsnefndarmenn, bæjarfulltrúa og
sýslunefndarmenn á íslandi árið 1946.
Alþingiskosningar.
Árið 1946 fóru einnig fram kosningar til Alþingis, og hefur til hægðarauka
fyrir sveitarstjórnarmenn, sem mikil afskipti hafa af þeim kosningum, verið tekin
upp í ritið skrá yfir alla alþingismenn, er þá vora kjömir, svo og atkvæðatölur
einstakra þingmanna og flokka, úthlutun uppbótarþingsæta og skipting þeirra
milli þingflokka.
Kosningahandbókin
kostar aðeins tíu krónur. Hún fæst hjá flestum bóksölum, en auk þess er hún
send gegn póstkröfu og má panta bókina hjá:
Sambandi íslenzkra sveitarfélaga,
PRENTSMIÐJAN ODDI H.F., REYKJAVÍK BOX IO79 - REYKJAVÍK.