Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Blaðsíða 3
SVEITARSTJÓRNARMÁL
tímarit um málefni íslenzkra sveitarfélaga
UTGEFANDI: SAMBAND ISLENZKRA SVEITARFELAGA
RlTSTJÓRI OG ÁBYRGDARMADUR: EIRIKUR PALSSON
Ritnefnd: Jónas Guðmundsson, Ólafur D. Björnsson, Björn Guð-
mundsson og Karl Kristjánsson.
Utanáskrift: SVEITARSTJÓRNARMÁL, Pósthólf 1079, Reykjavík.
9. ÁRGANGUR
2. H E F T I
RAGNAR GUÐLEIFSSON, oddviti:
Keflavíkurkaupstaður.
í byggðasögu Keflavíkur eru um þetta
leyti merk tímamót. Á síðastliðnu ári voru
40 ár liðin siðan Keflavík varð sérstakt
hreppsfélag, og 22. marz 1949 staðfesti for-
seti íslands lög, er Alþingi hafði samþykkt
um bæjarstjóm og kaupstaðarréttindi fyrir
Keflavík, sem gengu í gildi 1. apríl s.l.
Með bréfi stjómarráðsins 15. júní 1908
varð sú breyting á takmörkum Rosmhvala-
neshrepps og Njarðvíkurhrepps,að kauptúnið
Keflavík var greint frá Rosmhvalaneshreppi
og varð sérstakt hreppsfélag ásamt Njarðvík-
urhreppi og hét þá Keflavíkurhreppur.
Rosmhvalaneshreppur heitir eftir það Gerða-
hreppur.
Það hefði verið ástæða til þess á þessum
tímamótum að skrifa sögu Keflavíkur. Sú
saga, þó ekki væri löng, mundi hafa að
geyma mynd af íslenzku sjávarþorpi undir
valdi erlendra selstöðukaupmanna; hún
mundi einnig sýna, hvemig vald kaupmann-
anna er brotið á bak aftur og hvemig þá
fyrst skapast möguleikar til framkvæmda og
vaxtar byggðarlagsins.
Þoisteinn Þoisteins-
son, fyisti oddviti
Keflavíkuihiepps.
Hér verður aðeins í stórum dráttum lýst
nokkrum myndum frá Keflavík fyrr og nú.
Hinn 13. júlí 1908 hélt fyrsta
Kpsnefndin. hreppsnefndin í Keflavíkur-
hreppi fyrsta fund sinn. —
Fundurinn var haldinn í bamaskólahúsi
hreppsins, sem þá var, en sem er nú íbúðar-
húsið Íshússtígur 3.
Hin fyrsta hreppsnefnd var þannig skipuð: