Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Side 7
SVEITARSTJÓRNARMÁL
5
Sögulegur fundur í hreppsnefnd Keflavíkur 6. apríl J949, þegar tilkynnt var að staðfest væru Iög
um bæ/arréttíndi h'iir Ketlavík. Fundinn sátu eftirtaldir fulltrúar ftalið frá vinstrí): Jón Tómasson;
Ragnar Guðleifsson, oddviti; Arnb/örn Ólafsson, ritarí hreppsnefndar; B/arni Albertsson; Guð-
mundur Guðmundsson; Steindór Pétursson; Helgi G. Ey/óífsson og Valtýr Guð/ónsson.
sem með söfnunum og fjárframlögum hefur
stutt byggingu sjúkrahússins. Kvenfélagið
Freyja var hér starfandi urn mörg ár og vann
að fegrun kirkjunnar, leikstarfsemi og öðrum
menningarmálum.
Æskulýðsfélög eru hér, barnastúkan Ný-
ársstjaman og skátafélagið Heiðabúar.
Stéttarfélög eru hér nokkur, svo sem
Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur, Iðn-
aðarmannafélag Keflavíkur, Iðnsveinafélag
Keflavíkur, Vélstjórafélag Keflavíkur, Skip-
stjóra- og stýrimannafélagið Vísir og Útvegs-
bændafélag Keflavíkur.
Þá em: Málfundafélagið Faxi og Mál-
fundafélagið Mímir. Taflfélag er hér starf-
andi og heitir Skákfélag Keflavíkur.
Auk þeirra félaga, sem hér hafa verið tal-
in, eru starfandi pólitísk félög allra stjóm-
málaflokka.
Þegar Keflavík varð sérstakt
hreppsfélag, varð hún einnig sér-
stök kirkjusókn. Árið 1915 sameinuðust
sóknirnar í Keflavík og Njarðvík, og hélzt sú
skipan, þar til 1943 að Innri-Njarðvíking-
ar endureistu hina fomu Njarðvíkurkirkju
og urðu sérstök kirkjusókn.
Árið 1914 var byggð sú kirkja, er nú stend-
ur, og var vígð 14. febrúar 1915. Hún er
byggð úr steinsteypu og hefur verið og er
enn hið glæsilegasta hús. — Sóknarprestur
Keflavíkur er séra Eiríkur Brvnjólfsson að
Útskálum.
Fjörutíu ár í sögu eins byggðarlags em að
sjálfsögðu ekki langur tími, þó hafa á þessu
tímabili án efa orðið hinar stórstígustu fram-
farir í verklegum framkvæmdum og atvinnu-
háttum, sem um getur í sögu þjóðarinnar.