Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Page 8
6
SVEITARSTJÓRNARMÁL
Mörgum finnst nú ef til vill, að Keflavík
hafi farið varhluta af þessum framförum, og
þeim virðist að þau örlög hafi við loðað frá
dögurn Ingólfs, er öndvegissúlur hans bárust
framhjá án þess að skolast að landi, eins hafi
flestir þeir menningarstraumar, er til lands-
ins hafa borizt, farið framhjá þessum Skaga
án þess að áhrifa þeirra gætti. Margt er að
Ragnar Guðleifsson,
oddviti, gegnir nú
embætti bæjarstjóra.
sjálfsögðu rétt í þessu, en því megum við
ekki gleyma, að á einu sviði stöndum við
jafnfætis, og á tímabili jafnvel framar en
önnur byggðarlög, en það er á sviði vélbáta-
útgerðarinnar. — Byggðin og landið um-
hverfis er gróðurlítið, en skammt undan eru
hin auðugu fiskimið. Það er því eðlilegt að
hugur þeirra manna, er hér hafa fest byggð,
hafi beinzt að því að fullkomna þau tæki,
sem lífsafkoma þeirra byggðist á. Og það eru
engar öfgar, þótt því sé haldið fram, að
vélbátar frá Keflavík og Suðumesjum hafi
til skamms tíma verið með fullkomnustu
bátum sömu stærðar og bezt búnir öryggis-
tækjum. Enda hafa sjóslys til skamms tíma
orðið hér fá miðað við sjósókn og erfiða að-
stöðu, sem hér hefur verið.
Ástæðan til þess, að þróun útgerðarinnar
hefur stöðvazt við vélbátana, er sú, að hér
vantar örugga höfn. Þó hafa Keflvíkingar nú
eignazt einn af hinum fullkomnu nýsköp-
unartogurum, er ber nafnið Keflvíkingur.
\7era má, að koma þessa togara verði til þess
að ýta á um áframhald fyrirhugaðrar „Lands-
hafnar“, sem svo aftur mundi skapa betri
skilyrði fyrir útgerð alla og þá um leið fyrir
þróun þessa bæjar.
Við síðustu hreppsnefndar-
hreppsncfndin. kosnin§ar í Keflavík hlutu
eftirtaldir menn kosningu:
Fyrir Alþýðuflokkinn þeir Ragnar Guðleifs-
son, Jón Tómasson og Sæmundur G. Sveins-
son, fyrir Sjálfstæðisflokkinn þeir Elías Þor-
steinsson, Ólafur E. Einarsson og Valdimar
Bjömsson, og fyrir Framsóknarflokkinn Val-
týr Guðjónsson. Á kjörtímabilinu hafa þeir
Ólafur og Valdimar flutt frá Keflavík til
Revkjavíkur og Elías d\'elur í Reykjavík
vegna starfa sinna. Varamenn þessara full-
trúa hafa því tekið sæti í nefndinni í stað
þeirra, og eru það þeir: Guðmundur Guð-
nrundsson, Helgi G. Evjólfsson og Bjami
Albertsson.
FRAMKVÆMDIR SÍÐUSTU ÁRA.
Árið 1945 var lögð háspennu-
frfTo^nu. lína frá Hafnarfirði til Kefla-
víkur. Jafnhliða var unnið að
því að endurbæta rafmagnskerfið innanbæj-
ar og var því lokið að mestu 1946. 23. des.
1945 voru fyrstu rafljósin tendruð með raf-
rnagni frá Sogsvirkjuninni. Áður höfðu Kefl-
víkingar rafmagn til ljósa og nokkuð til iðn-
aðar frá mótor-rafstöð, sem löngu var orðin
ófullnægjandi.
Vatnsveita
og: holræsagerð
Framkvæmdir þessar hófust
á árunum 1942—43, en aðal-
framkvæmdimar fóru fram
á árunum 1946—48. Má nú heita að holræsi
sé frá hverju húsi í bænum, en vatnsveitu-
kerfið er eigi ennþá að fullu lagt. — Vatns-
veitan er þannig, að skammt ofan við bæ-