Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Side 15
SVEITARST J ÓRNARMÁL
13
GUÐMUNDUR VIGNIR JÓSEFSSON, lögfrœðingur:
Hæstaréttardómur
um endurheimt útsvars.
Hinn 16. febrúar s. 1. var í Hæstarétti kveð-
inn upp dómur í málinu nr. 65/1948:
Hreppsnefnd Suðureyrarhrepps f. h. hrepps-
ins gegn Herði Friðbertssvni.
Þar sem dómur þessi skiptir verulegu máli
fyrir alla þá, sem við sveitarstjómarmálefni
fást, og reyndar alla þá, sem gjaldskyldir eru
til sveitar- og bæjarsjóða, þykir rétt að vekja
athygli á honum í riti þessu.
Samkvæmt því sem segir í forsendum
undirréttardómsins voru málavextir þeir, að
Hörður Friðbertsson, er lengi hafði verið
heimilisfastur á Suðureyri við Súgandafjörð,
flutti til Reykjavíkur vorið 1945 og réðst
þar á skip. Ekki tilkynnti hann við brott-
förina neina breytingu á heimilisfangi sínu.
Frá því, er hann flutti frá Suðureyri,
dvaldi hann að mestu í Reykjavík og hafði
þar allar atvinnutekjur sínar, en kom aðeins
til Suðureyrar til skammrar dvalar.
Við niðurjöfnun útsvara í Suðureyrar-
hreppi vorið 1946 var Herði gert að greiða
útsvar og greiddi hann það að fullu skömmu
eftir álagninguna.
Sama ár var einnig lagt á hann útsvar í
Revkjavík, en það færðist hann undan að
greiða, með því að hann hafði áður greitt
útsvar til Suðureyrarhrepps, þar sem hann
taldi sig eiga lögheimili. Var því af hálfu
Revkjavíkurbæjar krafizt úrskurðar um út-
svarsskyldu Harðar og úrskurðaði fógetarétt-
ur Reykjavíkur, að hann skyldi talinn út-
svarsskyldur í Reykjavík umrætt ár. Úrskurði
þessum \ar ekki áfn'jað, svo að hann varð
bindandi um úrslit málsins.
Er hér var komið, snéri Hörður sér til
hreppsnefndar Suðureyrarhrepps og mæltist
til þess, að sér yrði endurgreidd upphæð sú,
er hann hafði áður innt af hendi til hrepps-
sjóðsins, en hreppsnefndin synjaði um end-
urgreiðsluna. Var því f. h. Harðar höfðað
mál gegn hreppsnefndinni í því skyni að fá
hana dæmda til að endurgreiða útsvarið.
Undirréttur viðurkenndi endurgreiðslu-
kröfu stefnanda og segir svo m.a. í rök-
semdafærslu dómarans:
„Því hefur ekki verið haldið fram í mál-
inu, að tekjum Harðar hafi verið þannig
háttað á útsvarsárinu, að hann hafi verið
gjaldskyldur bæði á Suðureyri og í Reykja-
vík.
Svo sem að framan greinir, var Hörður
Friðbertsson heimilisfastur í Reykjavík árið
1946 og útsvarsskyldur þar. Ekki er upplýst,
að hann hafi neinar tekjur haft í Suðureyrar-
hreppi síðan hann fluttist þaðan. Kemur því
hér til ályktunar, hvort Hörður hafi með
fyrirvaralausri greiðslu útsvarsins í Suðureyr-
arhreppi glatað rétti til að endurkrefja það.
Stefnandi hefur haldið því fram, að Herði
hafi verið með öllu ókunnugt um útsvars-
skyldu sína í Reykjavík, er hann greiddi út-
svarið til Suðureyrarhrepps og hafi hann því
greitt útsvar þar í góðri trú .Þessari staðhæf-
ingu hefur ekki verið mótmælt.
Þar sem upplýst er, að Herði var kunnugt