Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Side 20
18
SVEITARST J ÓRN ARMÁL
Meginefni laganna var það, að
fr°ágÍi929. stofna sk>,ldi byggingarsjóð í
kaupstöðum og kauptúnum til
þess að lána til íbúðarhússbygginga, samkv.
skilyrðum, er lögin ákváðu, enda hefðu verið
færð rök að því fyrir atvinnumálaráðherra af
nefndum, sem kosnar væru hlutbundnum
kosningum á viðkomandi stöðum, að þörf
væri slíkrar opinberrar aðstoðar.
Þá er slíkur byggingarsjóður hefði verið
stofnaður, skyldi honum aflað fjár á eftir-
greindan hátt:
í. Ríkissjóður leggur fram sem svarar einni
krónu árlega á hvem íbúa staðarins, í
fyrsta skipti 1930.
2. Bæjarsjóður og sveitarsjóður leggur í
byggingarsjóðinn sömu fjárhæð fvrir
íbúa, í fyrsta skipti 1930.
3. Ennfrenmr getur sjóðurinn tekið lán,
og skvldi ríkissjóður og sveitasjóðir
ábyrgjast það að jöfnu.
Byggingarsjóðurinn veitir lán til bygging-
arfélaga, sem reist eru á samvinnugrundvelli,
til þess að koma upp íbúðum fyrir félags-
menn sína.
Lán þessi skulu veitt gegn 1. veðrétti í
húsum og trvggð með veðskuldabréfi fyrir
hverja íbúð, er nemi í fyrstu allt að 85%
af því verði, sem hún kostar uppkomin, og
ávaxtist og endurborgist með jöfnum greiðsl-
um, þannig að árlegt gjald sé 6% af allri
lánsupphæðinni í 42 ár.
Bvggingarsjóðurinn skal jafnan vera í hand-
bæru fé í banka eða sparisjóði, að svo miklu
leyti sem honum er ekki varið til útlána.
Þau byggingarfélög hafa rétt til að fá lán
úr byggingarsjóðnum, sem fullnægja eftirfar-
andi skilyrðum:
1. Byggja fyrir félagsmenn sína.
2. að húsin séu úr varanlegu efni, tveggja
eða þriggja herbergja íbúðir auk eld-
lu'iss og geymslu.
3. að félagsmenn séu fjárráða og hafi eigi
haft yfir 4000 kr. í árstekjur, né eigi
vfir 4000 kr. eignir.
4. að íbúðimar séu seldar félagsmönnum
fyrir það verð, sem þær kosta bygging-
arfélagið, gegn a.m.k. 15% útborgun,
og með sömu lánskjörunr á eftirstöðv-
um og félagið nýtur hjá byggingarsjóði.
5. að byggingarnar séu reistar á lóðum,
sem ríkið eða kaupstaðirnir eiga eða
leigja.
6. að sala á íbúðum sé óheimil, nema
stjórn bvggingarfélagsins hafi áður hafn
að forkaupsrétti félagsins vegna.
7. að farið sé eftir sérstökum reglum um
viðhald húsanna undir eftirliti félags-
stjórnar.
8. að stjórn sjóðsins fallist á samþykktir
félagsins og það hlíti þeim reglum, sem
ráðherra kann að setja.
í stjórn byggingarsjóðs hvers kaupstaðar
eða kauptúns skvldu vera 3 menn, tveir
kosnir hlutbundnum kosningum af hlutað-
eigandi sveitarstjórn til 4 ára í senn, en einn
skipaður af atvinnumálaráðherra til jafnlangs
tíma, og sé hann formaður sjóðstjómarinnar.
Laun stjórnarinnar skvldu greidd úr ríkis-
sjóði.
Ríkisstjórn var gert að úrskurða reikninga
byggingarsjóðs, en sveitarstjórn bar að kjósa
t\ o endurskoðendur til eins árs í senn.
Ileimilt skyldi sveitarstjórn að ákveða að
hefjast sjálf lianda um byggingar og hlaut
hún þá sömu réttindi og skvldur sem bvgg-
ingarfélög.
Ríkisstjórnin skvldi láta gera fyrirmvndar-
uppdrætti að húsum félagsmanna til afnota
fyrir bvggingarfélög. Henni bar og að hafa
eftirlit með framkvæmdum byggingarfélag-
anna.