Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Side 24
22
SVEITARSTJ ÓRNARMÁL
Frv. þetta var hið merkilegasta, og var það
samþykkt af Alþingi með nokkrum breyt-
ingum og birt sem lög nr. 44 frá 1946.
Lög þessi eru í IV. köflum. Fjallar hinn
fyrsti um verkamannabústaði. Ilinir eru um
byggingarsamvinnufélög, um íbúðabvgging-
ar sveitarfélaga og um innflutning og skipt-
ingu byggingarefnis o. fl.
Helztu breytingamar, sem
Breytingar lög þessi gerðu á gildandi
varðandi lögin um i
verkamannabústaði. ‘ikVcEOUlll UlTl \ Crk3I113nn3-
bústaði, voru þessar:
Ákveðið var, að réttinda laganna yrðu að-
njótandi, auk verkamanna, allir þeir ibúar í
kaupstöðum og kauptúnum, sem ekki hafa
haft yfir 7000 króna árstekjur miðað við
meðaltal þriggja síðustu ára, að viðbættum
1000 krónum fyrir ln'ern ómaga, né vfir
10 000 króna eignir. Upphæðir þessar hækka
í samræmi ráð meðalvísitölu næsta árs á
undan.
Tillag sveitarsjóðs og ríkissjóðs er hækkað
úr tveirn krónum á íbúa í fjórar krónur á
íbúa. Auk þess er sveitarstjórnunum heimil-
að hækka gjaldið upp í allt að sex krónum
á íbúa, og er þá ríkissjóði gert að leggja
jafnmikið fram á móti. Greiða skal verðupp-
bót á upphæðir þessar.
Heimilt er stjóm byggingarfélags að stofna
innlánsdeild í sambandi við byggingarsjóð,
sem tekur við innlánum frá mönnum á fé-
lagssvæðinu, sem vilja tryggja sér húsnæði
hjá félaginu. Ráðherra setur reglugerð um
starfsemi innlánsdeilda þessara að fengnum
tillögum stjórnar byggingarsjóðs. Gætu slíkar
deiklir greitt fyrir framkvæmdum bvgginga.
Þá er og ráð fyrir því gert, að lánstími geti
verið misjafn, allt frá 42 árum í 75 ár. Láns-
upphæð geti einnig verið mismunandi eða
allt að 90% af byggingarkostnaði til þess að
létta á einstakhngum um frumgreiðslur. En
vextir í öllum lánaflokkum skulu vera 2%.
Stjóm byggingarsjóðs ákveður að fengnum
tillögum sveitarstjómar og stjómar bygging-
arfélags, hvers konar lánskjör eru veitt hverju
sinni.
Heimilt er lántakendum að greiða bygg-
ingarlán að fullu, hvenær sem þeir óska þess.
Stærð íbúðar má vera frá einu herbergi
upp í fjögur, auk eldhúss.
Gera skal sérstakan kaupsamning um
hverja íbúð við þann, er íbúð fær, og eru
þeir samningar undanþegnir stimpilgjaldi.
Ekkja látins félagsmanns, börn hans og
tengdabörn, hafa forkaupsrétt að íbúðinni,
enda gerizt þau þá löglegir félagsmenn.
Leiga fvrir lóðir sé metin reglulega á tíu
ára fresti.
í því skyni að koma í veg fyrir óþarfar
vaxtagreiðslur, er stjórn byggingarsjóðs veitt
heimild til að lána einni deild fé annarrar
deildar, meðan það er ekki notað.
=*
Lögin frá 1946 eru til þess fallin að greiða
stórlega úr húsnæðisvandamálum þjóðarinn-
ar, ef fvrir hendi er nægilegt lánsfé og inn-
flutningur byggingarefnis er verulegur.
Þar er og lögfest sú meginregla, í III.
kafla þeirra, að í kaupstöðum og kauptún-
um sé sveitarstjórnum beinlínis skvlt að
útrýma óhollum og heilsuspillandi íbúðum.
Til þessa hafði verið um það deilt, hverjum
raunverulega bæri að gera slíkt, en með lög-
gjöf þessari var því slegið föstu, að það sé
skylda sveitarstjórnanna að annast fram-
kvæmd til úrlausnar um þau efni með að-
stoð ríkissjóðs. Sveitarstjórnirnar skulu í slík-
um tilfellum leggja til lóðir og 10% af bygg-
ingarkostnaði sem vaxtalaus lán, en ríkið
önnur 10% með sömu kjörum, en auk þess
ber því að leggja fram 80% af byggingar-
kostnaði að láni til 50 ára með 3%ársvöxtum.
Vegna brevtts fjármálaástands hefur þessi
III. kafli laganna lítt komið til framkvæmda.
Með lögum nr. 50 frá 1948 var og ákveðið.