Sveitarstjórnarmál - 01.08.1949, Page 30
28
SVEITARSTJÓRNARMÁL
auki er svo sjálft fulltrúaþingið (generalfor-
samling), sem fer með æðsta vald samtak-
anna.
Fulltrúum þeim frá Norðurlöndum, sem
á þinginu mættu, þótti þetta skipulag að
vonum þunglamalegt og lítt til frambúðar
og báru því fram ýmsar tillögur til breytinga
á framtíðarskipulagi samtakanna. Þeim til-
lögum \'ar vel tekið og ákveðið að vinna að
því að koma þeim í framkvæmd.
Á fundinum í Haag mættu fulltrúar frá
eftirtöldum ríkjum: Frá Austurríki 3, Belgíu
2, Kanada 3, Tékkóslóvakíu 1, Danmörku 2,
Finnlandi 1, Frakklandi 2, Bretlandi 5, Hol-
landi 4, Noregi 1, Svíþjóð 1, Sviss 1 og
Bandaríkjunum 11.
Fyrir fundinn höfðu Norðurlandafulltrú-
arnir komið saman á sérstakan fund og
ákveðið, að bera fram sameiginlega vmsar
tillögur til brevtinga bæði á fjárhagsgrund-
velli og skipulagi samtakanna og hafði Kjell
T. Evers, framkvæmdastjóri sveitarfélaga-
sambandanna norsku, orð fyrir hinni nor-
rænu nefnd.
Fidltrúar Norðurlanda báru fram þá höf-
uð breytingartillögu, að fyrirkomulag sam-
takanna yrði framvegis þannig, að æðsta vald
samtakanna yrði hjá kjömu allsherjarþingi,
er síðan kysi 5—7 manna stjóm fyrir sam-
tökin og bæri sú stjórn ábyrgð á starfsemi
þess milli þinga. Sveitarfélagasambönd ein
skyldu geta verið meðlimir bandalagsins og
gjald til samtakanna skyldi miða við íbúa-
tölu landa þeirra, sem í samtökunum væru.
Mestar deilur urðu um það, hvort einstök-
um sveitarfélögum, s. s. stórborgum, sem oft
tilhevra ekki sveitarfélagasamtökum í heima-
landi sínu, skyldi leyft að vera félagar í
bandalaginu, og þar sem það hafði áður tíðk-
ast og var auk þess fjárhagslega betra fyrir
samtökin, enda sú venja mjög algeng, að því
er Bandaríkin snerti, varð það ofan á, að það
skyldi leyft, að einstakar borgir yrðu með-
limir, auk hinna viðurkenndu sveitarfélaga-
samtaka, en þó skyldi til þess þurfa samþykki
þeirra sveitarfélagasamtaka, sem borgin ætti
að tillieyra í viðkomandi landi. Alinennt
samkomulag varð og um það, að stefna bæri
að því, að ráðinn yrði sérstakur framkvæmda-
stjóri fvrir bandalagið, og sett á stofn sérstök
skrifstofa til þess að annast málefni þess og
samband þess við sveitarfélagasamtök aðild-
arríkjanna. Að lokum var formaður sveitar-
félagasambands Hollands kjörinn formaður
sambandsins til eins árs og jafnframt verðui
aðalaðsetur þess í Hollandi þann tíma. Nú
í sumar verður haldið nýtt þing samtaka
þessara í Genf í Sviss og mun þá að lík-
indum verða gengið til fulls frá framtíðar-
skipulagi bandalagsins.
#
Formenn og framkvæmdastjórar norrænu
sveitarfélagasambandanna áttu fund með sér
í febrúar s. 1. um það, hvernig þátttöku sam-
banda þeirra skyldi háttað í bandalagi þessu,
og þá sérstaklega til að ákveða, hvort þau
ættu að gerast meðlimir þar eða ekki. Fund-
urinn var haldinn í Oslo og voru þar mættir
fulltrúar frá öllum Norðurlöndum nema ís-
landi, enda \-ar stjóm íslenzka sambandsins
ókunnugt um fundinn. Á þeirn fundi varð
engin niðurstaða, en ákveðið að leggja málið
fyrir stjómir viðkomandi sambanda og láta
þær, liverja um sig, um það, hvort sambönd-
in gengju í alþjóðabandalagið eða ekki. Þar
sem Finnland hafði þegar gerzt meðlimur
bandalagsins, þótti ekki hægt að gera bind-
andi ákvörðun um það, að Norðurlöndin
gengju öll saman inn í bandalagið, en það
mun hafa komið til álita í upphafi umræðn-
anna. Urðu því ekki frekari sameiginlegar
Uðræður milli Norðuriandaþjóðanna um
málið, en hvert einstakt samband tók málið
til meðferðar nú í vetur.
Norsku s\'eitarfélagasamböndin ákváðu á
fundi 1;. febrúar s. 1. að ganga í bandalagið,